Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1931, Blaðsíða 112
110
Landnemi, S.E. 14 35.
Jón S. Hólm. — Hann er sonur Sigurðar Hólm
og Guörúnar konu hans, sem getið er hér nýlega.
Kona hans er Eilín Ingigerður, dóttir G'uðmunda'’
Magnússonar og konu hans Salóme Ólínu Jóhanns-
dóttur, Bergsveinssonar, (Lot 29). Röskleg kona
og myndarleg. Þau giftu sig 1926. Eru við góð efni.
Jón er búmaður góður og verklaginn.
Landnemi, S.W. !4 36.
Magnús G. Magnússon. — Hann er sonur Guð-
mundar Magnússonar og konu hans Salóme Ólínu
(Lot 29). Á sama tíma sem hann tók landið, keypti
liann suðeystri kvartinn í sömu sec. Hafði hann þá
2 langbeztu heyskaparlöndin í vestri parti Fram-
nesbygðar. Magnús vann hjá föður sínum að búinu,
keypti sér góð akuryrkjuverkfæri og vann þá annað
veifið hjá öðrum, fékk sér þreskivél er þeir feðgar
unnu við nokkur haust með góðum árangri, þar til
fleiri fóru að halda út þreskivélum í bygðinni; fór
þá ágóðinn af því starfi að verða h'till. Seldi hann
þá þreskivélina og fleira af verkfærum. Nú er hann
til heimilis í Árborg. Magnús er með afbrigðum list-
fengur maður og hefi því haft nóg að gera að við-
gerðum á bílum og öðrum verkfærum. Má kalla að
alt leiki í höndunum á honum er hann snertir við að
gera. Hann er sérlega dagfarsprúður og viðfeldinn,
en fáskiftinn urn annara hagi, lætur sér ekki annað
koma við en það sem hann hefir sjálfur með hönd-
um að gera, sem alt er trúlega unnið.
Landnemi, N.W. !4 36.
Eymundur D. Pétursson. — Hann er sonur Dan-
éls Péturssonar og Þóru Bergsdóttur, sem búið hafa
í suður jaðri Víðibygðar, (N.EJ/4 6-23-2E.) en fluttu
þaðan nýlega að Gimli. Verður þeirra getið í Land-
námssögu Víðihéraðs. Kona Eymundar er Steinunn