Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1931, Blaðsíða 120
118
lögð þaðan norðaustur slétturnar til Pembina, og þaðan til
Winnipeg. Þessi síðarnefnda járnbraut lá um 2. mílur
norðvestur frá íslenzku bygðinni. Þarfari gestir gátu ekki
lagt leið sína til frumbyggjanna þar um slétturnar enn þess-
ar tvær járnbrautir, því allar framfarir i viðskiftalífi
mann lifna með bættum samgöngum. Meðfram þessum
brautum risu upp smá kauptún með verzlunarbúðum, korn-
hlöðum, pósthúsi og járnsmiðju, og svo var þar auðvitað
járnbrautarstöð. Eitt af þessum kauptúnum reis upp ör-
skamt frá Little Salt, sem nefnt var Cashel. Það varö
verzlunarstöð Islendinganna. Þó má geta þess að oft sóttu
þeir nauðsynjavörur sínar til Grafton, óx sá bær hröðum
skrefum og hafði meira vörumagn til framboðs.
Eftir að þessar tvær járnbrautir hófu flutninga um land-
ið, lögðust fljótlega af gufubátaferðirnar um Rauðána. —
Strax og þessar miklu samgöngubætur komu, urðu einnig
umbætur á búskap nýlendumanna. Frumbýlingsskýlin
hurfu og í þeirra stað voru bygð timburhús; akvegir um
landið bættir, skólahéruð mynduð og barnaskólar bygðir.
Þó var ekki bygður skóli innan vébanda Little Salt, sem nú
lá eins og lófastór blettur umkringdur annara þjóða land-
námi.
Arið 1885, þegar íslenzka lútherska kirkjufélagið mynd-
aðist og hóf kristniboðsstarf sitt, myndaðist lúterskur söfn-
uður meðal Islendinga við Little Salt. ólafur Guðmundsson
var kosinn forseti safnaðarins og einnig kjörinn erindreki
hans á'fyrsta kirkjuþingið, sem haldið var í Winnipeg 1885.
Þessi söfnuður var nefndur eftir nýlendunni, Little Salt.
Ekki var þar bygð kirkja, en þessir prestar komu þangað og
framkvæmdu þar ýms embættisverk: Séra Hans Thorgrim-
sen; séra Jón Bjarnason (vígði þar grafreit og gerði fleiri
prestsverk). Séra Friðrik J. Bergmann var prestur þessa
safnaðar frá 1886 til 1892. Messur voru haldnar í skóla-
húsum þar í nágrenninu og einnig á heimilum bændanna í
téðri bygð. Grafreiturinn var vígður á landi Aðaljóns Guð-
mundssonar. Þegar þeir Islendingar, sem höfðu bygt sér
heimili í áðurnefndum bæ, Grafton, mynduðu lútherskan
söfnuð og bygðu þar kirkju í kringum 1890, sameinaðist