Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1931, Blaðsíða 121
119
Little Salt söfnuðurinn þeim, og stóð sá félagsskapur með-
an íslenzk bygð hélst við Little Salt, sem voru rétt 20 ár,
frá fyrsta landnámi árið 1879 til þess er síðasti íslenzki
bóndinn flutti þaðan í nóvember 1899. Var það Aðaljón
Guðmundsson frá Sköruvík á Langanesi.
Og að endingu má minnast þess, að þrátt fyrir örðugleik-
ana, sem frumbýlingsárunum voru samfara, var oft glatt
á hjalla hjá þessum nýbyggjum. Fólkið var flest kornungt,
þegar það flutti þangað, á aldrinum frá tvítugu til þritugs-
Þetta voru flest skyldmenni, sem höfðu alist upp í sömu
sveit á ættlandinu og í nágrenni þar, og verið leiksystkin
frá fyrstu æsku. Það hafði orðið samferða frá æskustöðv-
um sínum til þessa lands. Bújarðir sínar valdi það svo, að
það gæti verið í nágrenni hvað við annað. Það skoðaði sig
alt jafningja, eins og það hafði gert á æskuárunum. Það
lét sér ant um að styðja hvað annað, og gekk hönd við
hönd, sátt og sammála út í landnám sitt og frumbýlis-
örðugleikana. Það byrjar störf sín þar í traustinu á guð,
að vonir þeirra mættu rætast, til þess að verða sem nýtastir
starfsmenn og borgarar þessa lands, sem það hafði kjörið
sér’og niðjum sínum til frambúðar. Og þessar vonir rætt-
ust; þetta fólk hefir í hvívetna sýnt það, að það var af góðu
íslenzku ættbergi komið, kristið og löghlýðið, starfsamt og
ábyggilegt til orða og athafna. Og svo flögra endurminn-
ingarnar til þeirra fjögra manna, sem enn lifa, af þeim sem
námu þar lönd 1879 og benda þeim á liðna tíð, fornar og
foknar slóðir, og þess að margs sé að minnast og margs
að sakna frá landnámsárunum við Little Salt í Norður
Dakota.
ÞÆTTIR.
ólafur Guðmundsson var fæddur að Syðralóni á Langanesi
í Norður-Þingeyjarsýslu 2. júní 1855. Foreldrar hans voru
þau valinkunnu hjón, Guðmundur Jónsson, læknis, sem
nefndur var, og kona hans Guðrún Jónsdóttir ólafssonar
hún var ættuð úr Eyjafjarðarsýslu. Þau fluttu frá Syðra
lóni að Sköruvík í sömu sveit og bjuggu þar allmörg ár.
Guðmundur var kendur við þann bæ og jafnan nefndur