Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1931, Blaðsíða 125
123
ist til Little Salt vorið 1880. Giftist þar Jóhönnu Halldórs-
dóttur Jónssonar. Seldi bújarðir sínar þar og flutti til Win-
nipeg vorið 1889, og þar hafa þau búið síðan. Þau hafa
jafnan tekið mikinn og góðan þátt í félagslífi Islendinga í
Winnipeg, og ávalt reynst trú feðrakirkju sinni og krist-
indómi.
Benjamín Sigurðsson, bróðir Stefáns, var einn af þeim,
sem námu land við Little Salt, flutti þangað 1880. Giftist
þar í bygð Karólínu Gísladóttur Sæmundssonar frá Hóli á
Melrakkasléttu í Norður-Þingeyjarsýslu. Bjó í téðri bygð
til vorsins 1889; seldi þá bújarðir sínar þar og flutti til Al-
bertafylkis. Benjamín og kona hans voru vel metin þar í
bygð.
Jóhannes Jónsson frá Hallgilsstöðum á Langanesi, móður-
bróðir Aðalmundar, sem getið er hér að framan. Fluttist
frá íslandi til Ameríku árið 1878; var í tölu þeirra, sem
völdu sér bújarðir við Little Salt, og var þar til ársins 1888.
Fluttist þaðan vestur á Kyrrahafsströnd.
Sigurður Guðmundsson frá Skálum á Langanesi, bróðir
Aðalmundar, kom frá Islandi til nefndrar bygðar árið 1882
og tók þá við bújörð Jóhannesar Jónssonar frænda síns og
bjó þar til ársins 1893; flutti þaðan til Garðar, og hefit'
búið þar síðan. Sigurður er fæddur á Skálum 1853 og ólst
þar upp- Hann er fríður ásýndum og góðmannlegur, sér-
lega vel vaxinn og karlmannlegur á velli. Kona hans et
Guðrún Hallgrímsdóttir einhenta frá Vík í Flateyjardal. Su
sveit er nyrzt vestanmegin Skjálfandaflóa í Suður-Þing-
eyjarsýslu. Guðrún hefir verið mikil starfskona og goö
húsmóðir. Bæði hafa þau hjón verið vel metin í hvívetna.
Börn þeirra, sem eru á iifi, munu vera i Garðarbygðinni.
Ein dóttir þeirra, Aðalbjörg, er gift Pétri Hermannssyni,
Hjálmarssonar, sem um eitt skeið var verzlunarstjóri á
Raufarhöfn á Melrakkasléttu og i Húsavík. Nú í Winnipeg.