Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1931, Blaðsíða 128
126
því, að þeir höfðu ekki peninga til að komast lengra. Þetta
er ekki svo viðurhlutamikið fyrir einhleypa menn, sem duga
til að vinna, því þeir geta ugglaust á skömmum tíma unnið
sér svo mikið inn, sem með þarf til þess að kosta ferð sína
vestur í þau héruð landsins, þar sem nóg er af ágætu landi
að fá fyrir allsendis ekkert. En það er mjög vafasamt,
hvort fátækir fjölskyldumenn, sem upphaflega berast fyrir i
Ný’ja Skotlandi eða annarstaðar í austustu héruðum heims-
álfunnar, verða nokkurn tima á æfi sinni færir um að kom-
ast þangað vestur í land, þar sem vel er verandi. Á Wash-
ington-eynni í Michigan-vatni mun þeim fáu Islendingum,
sem þar hafa verið hafa liðið fremur vel, þó að jarðvegur
sé þar ekki hinn bezti; en menn eru nú farnir að tínast
þaðan vestur til ný’lendunnar í Minnesota, enda geta ekki
nema fáeinir bændur komist fyrir þar á eynni. Nýlendan í
Shawano county í Wisconsin er líka alt að því hætt að vera
til. Þar er skóglendi allmikið, en jarðvegur sendinn og
magur. Atvinnu hefir þar verið fremur góða að fá, helzt
við skógarhögg. En af því að landið er svo lélegt til akur-
yrkju, hefir mönnum ekki þótt fý’silegt þar til frambúðar,
og hafa þeir því leitað þaðan vestur til Dakota og Minnesota.
Nýlendur Islendinga i Minnesota og Dakota eru mjög
haganlega settar, því að þær liggja i einhverjum ágætustu
akuryrkju-héruðum Norður-Ameríku. Þeir Islendingar, sem
fyrst settust að í Minnesota-n’ýlendunni, höfðu áður haft
aðsetur í Wisconsin, en fluttu þaðan, af því þar var fivergi
orðið hentugt land að fá ókeypis. Fyrsti íslenzki landnemi
settist að í þessari ný’lendu sumarið 1875. Hann byrjaði þar
bú með nálega tómum höndum, en á nú orðið mjög gott bú.
Að sama skapi hefir yfir höfuð að tala gengið öllu þvi fólki,
sem síðan hefir flutt þangað. Eg heimsótti bygðarlag
þetta í aprílmánuði síðastliðnum, dvaldi þar vikutíma, og
sannfærðist fyllilega um, að hagur landa vorra þar stendur
mjög ánægjanlega. Sumir, sem þangað hafa flutt, voru ann-
ars, eftir íslezkum mælikvarða að dæma, vel efnum búnir,
þegar þeir komu, enda hafa nokkrir þeirra i upphafi keypt
sér áður numin lönd með all-víðlendum hveitiökrum á, í
staðinn fyrir að setjast að á ónumdu landi, sem öllum inn-