Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1931, Blaðsíða 130
128
skógar. Margir spara sér eldiviðarkaup með því að hafa til
eldsneytis hey, sem saman er snúið ý’mist með höndunum
eða með til þess gjörðum verkfærum. Yfir höfuð að tala
stendur hagur Islendinga þeirra, sem niður eru komnir i
þesssu bygðarlagi, miklu betur en fólks í hinum öðrum ís-
lenzkum nýlendum, enda hefir þangað leitað margt af því
fólki, sem flutt hefir frá Islandi þessi síðustu ár.
Ferðist maður 300 enskar mílur nálega beint í norður frá
vestustu Islendingum i nýlendu þeirri, er þegar var nefnd
— lítið eitt vestur á bóginn —, þá kemur maður í norð-
austurhorn Dakota, og stendur þar lítill bær Pembina að
nafni við Rauðá (Red River of the North) vestan megin. I
þeim bæ eiga nokkrir Islendingar heima, og þaðan í vestur
og suðvestur liggur Islendingabygðin í Dakota. Er ekki
meira en á 3. ár síðan hún hófst. Var landið næst bænum
nálega alnumið af fólki frá Canada og annarstaðar að þegar
Islendingar tóku til að leita þangað, og hafa því flestir þeirra
orðið að fara nokkuð langt vestur eftir til að fá sér land, svo
að meginbygð þeirra er frá 30 til 40 enskar mílur frá Pem-
bina. Þeir, sem fyrst settust þar að, voru frá Ný’ja Islandi,
og þangað leita Ný’ju Islendingar enn, en auk þeirra allmarg-
ir aðrir. Eins og slétturnar við Rauðá yfir höfuð er land
þar einkar frjósamt og hefir þann kost fram yfir landið
suður frá, sem þegar hefir verið lý’st, að þar er víða nóg af
góðum skógi, en aftur er þar lengra til markaðar og vetur-
inn bæði lengri og harðari. Meðal þess fólks, sem hér er
niður komið, eru sumir hinna fátækustu og aumustu úr
Ný’ja Islandi, enda eru þeir taldir ósjálfbjarga og eru styrktir
af norsku synódunni. Ymsir af þessu fólki urðu líka fyrir
talsverðu óhappi á síðastliðnu hausti, þar sem hey þeirra,
og jafnvel hús einstakra, brunnu upp. Hins vegar eru
nokkrir hér einnig, sem eru á góðum vegi með að komast
áfram og sem ekki hafa fengið neinn styrk neinstaðar að
og sökum landgæðanna getur varla hjá þvi farið, að þessi
íslenzka ný’lenda komist upp áður en mjög langt líður. Járn-
braut sú, sem næst er þessari bygð, liggur meðfram Rauða
að austan, í Minnesota, og er blómlegur bær að rísa upp við
járnbraut þessa andspænis Pembina, sem St. Vincent heitir.