Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1931, Blaðsíða 138
136
þakklæti. — 1 Marshland-nýlendu var samankomið afbragða
fólk, og félagslífið þar og samkomulag manna á meðal var
svo gott og einlægt, að betra getur ekki. Það var sann-
kallað góðgjörða-fólk, hreinskilið og drenglundað. Og það
má óhikað segja, að þau Jón A. Magnússon og Guðbjörg
hafi verið þar í fremstu röð, hvað það snertir.
Eg gat ekki annað en dáðst að því, hvað Guðbjörg Hjalta-
dóttir, óskólagengin alþýðukona, var vel heima í íslenzkum
bókmentum, og fróð um margt. Eg man það glögt, að einu
sinni, þegar hún kom í hús mitt, snerist tal okkar aðallega
um ýms rit, sem út höfðu verið gefin á íslenzku á síðast-
liðinni öld. Og komst eg þá að því, að hún hafði lesið
“Fjölni” og “Ný Félagsrit” og ýmsar aðrar fræðibækur og
merk skáldrit. Hvort hún hefir lesið þessi rit, meðan hún
var í föðurgarði eða eftir að hún kom til Ameríku, get eg
ekki sagt. En hitt er vist að hún þekti þessi rit, mundi
margt úr þeim, og virtist skilja efni þeirra og stefnu. Þetta
var í eina skiftið, sem eg heyrði hana minnast á bókmentir.
Og að líkindum hefir hún sjaldan talað um þau málefni, því
að hugsanir hennar hafa að sjálfsögðu oftast orðið að
snúast um fjarskyld efni í hinni sífeldu baráttu við örðug-
leikana í nýbygðinni á frumbýlingsárunum. — Eg hefi
stundum hugsað um það með undrun og aðdáun, hversu vel
upplýst, og jafnvel hámentað, það bændafólk var yfir höf ■
uð, sem kom vestur um haf frá íslandi hér fyr á árum. Og
virðist mér það benda ótvíræðlega á það, að mörg heimili
til sveita á Islandi hafi verið — og séu ef til vill enn —■ 1
raun og veru æðri skólar, þar sem holl fræðsla var veitt
og þegin, næstum óafvitandi, i ríkulegum mæli.
Æfikvöld Guðbjargar var kyrt og bjart. Hún hafði unnið
sigur á hinum þungu þrautum nýbyggjaralífsins; hún sá
börn sin vera komin upp, og hún vissi, að þeim var borg-
ið; og hún hafði líka séð nokkur barna-börn sín. Og sjálf
starfaði hún fram að síðasta augnabliki. En andlát hennar
bar að mjög snögglega. Hún dó af heilablóðfalli (cerebral
apoplexy) þann 8. maímánaðar 1930. Þann 13. maí var
hún jarðsett i grafreit Marshland-bygðar, og var jarðsungin
af séra Hirti J. Leó.