Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1931, Blaðsíða 139
137
Guðbjargar Hjaltadóttur verður ávalt minst af ættingjum
hennar og vinum. Hún var mæt og merk kona og hrein-
hjörtuð, sem allir höfðu gott af að kynnast. Æfistarf henn-
ar var mikið og göfugt, og hún gaf svo fagurt eftirdæmi, að
mikið má af þvi læra.
J. Magnús Bjarnason.
Leiðrétting
1 landnámssögu frá Winnipegosis, sem stendur í Almanak-
inu fyrir 1930, er ættfærria Þorsteins Jónssonar (bls. 83).
Þar vantar einn ættlið frá honum til Snorra prests á Húsa-
felli. Því Þorsteinn, föðurfaðir Þorsteins Jónssonar, var
son Jakobs bónda á Húsafelli, Snorrasonar prests þar, hins
nafnkunna aflrauna- og íþróttamanns.
Það er ekki heldur rétt, að Sæunn, móðir Þorsteins Jóns-
sonar hafi verið ættuð úr Húnavatnssýslu, nema hún hafi þá
verið það nokkuð langt aftur talið, sem henni hefir þá líka
verið ókunnugt um. Ætt hennar mun hafa verið mest í
Þingeyjarþingi. Á Hálsi í Fnjóskadal var hún vinnukona,
er þau Jón kyntust, en þá var hann þar til lækninga hjá
séra Þorsteini Pálssyni.
Geta má þess til frekari skýringar um ætt Þorsteins Jóns-
sonar, að móðir Jóns föður hans var Ingibjörg, dóttir Jóns
bónda í Deildartungu, Jónssonar drbm. s. st., Þorvaldssonar
á Stórakroppi. En móðir Ingibjargar var Guðríður, dóttir
Jóns bónda í Stóraási, Þórólfssonar í Síðumúla. Frá Þór-
ólfi er ætt rakin í beinan karllegg gegnum hina alkunnu
Fitjaætt í Borgarfirði, til Höfða-Þórðar, er nam Höfða-
strönd í Skagafirði. Bróðir Jóns föður Þorsteins er Krist-
leifur bóndi á Stórakroppi, sem fréttirnar úr Borgarfirði
ritar í Lögberg.
Ennfremur má geta þess um ætt Málfríðar Friðriksdótt-
Jr, konu Þorsteins, að Málfríður móðir hennar var dóttir
Davíðs bónda á Þorgautsstöðum i Hvítársíðu og Málfríðar
Þorsteinsdóttur frá Hurðarbaki í Reykholtsdal, Þiðriksson-
ar. Bróðir Málfríðar Þorsteinsdóttur var Ásmundur, faðir
Steinunnar konu Sveinbjarnar Loftssonar í Churchbridge.
—S. M.