Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1934, Page 49
49
1914. Fluttist það ár til Pine Valley, keypti hálft land
og hefir búiS þar síðan. Þau hjón eiga eigi börn á lífi,
en hafa alið upp frá barnæsku til fulloiðins ára þrjár
stúlkur, er ein þeirra ekkja eftir norskan mann, en hinar
hjá fósturforeldrum sínum. Eru þau hjón starfsöm,
greiðagjörn og vel þokkuð.
GESTUR JÓHANNESON. Er hann fæddur í Roseau
bygð í Minnesota. Fluttist þaðan með foreldrum sínum:
Jóhannesi Jóhannsyni Jónssonar, ættuðum úr Eyjafirði,
og Guðríði Sigríði Halldórsdóttur Þorlákssonar, einnig
ættaðri úr Eigjafirði, til Pine Valley. Nam þar land, og
bjó á því nokkur ár. Kona hans er Þórunn Jónsdóttir
frá Akurey í Landeyjum og Arnbjargar Andrésdóttur frá
Hemlu í Landeyjum. Gestur er hraustmenni og dugnað-
armaður með afbrigðum og konan honum samtaka til
framkvæmda. Þau búa í Selkirk, Man.
GuSfinna Ágústa Bjarnadóttir
Eiríkur Sigfússon
HREINN GUÐMUNDUR HREINSSON. Hann er
sonur hjónanna: Hreins Hreinssonar Guðlaugssonar frá