Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1935, Page 65

Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1935, Page 65
67 Heiti ritsins sótti Reeves í fyrirsögn kapítula í Príssbók: “Fundið Vinland góða”, og er það ekki valið af handahófi. Undirtitill bókarinnar, “The History of the Icelandic Discovery of America” (Sagan af Ameríku-fundi ís'lendinga), er einnig eftirtektarverður; höfundurinn hefir eflaust viljað draga athygli lesenda að þeirri staðreynd, að ís- lenzkir menn eigi heiðurinn af, að hafa fundið Vesturheim fyrstir allra Norðurálfumanna. Rfi sannleiksást og sanngirni stýrðu penna Reeves hér sem annarsstaðar í merkisriti þessu. Hann fer drengilega og röggsamlega úr hlaði. í kjarnorðum inngangi hrekur hann með sterkum rökum aðfinslur þeirra sagnfræðinga amerískra, sem véfengt hafa frásagnir íslenzkra heimilda um Vínlandsfundinn, og færir traustar stoðir undir sannfræði þeirra. Játar hann þó jafnhliða, að ýsmir ákveðnustu formælendur þessa máls, eins og sjálfur C. C. Rafn, sem manna mest útbreiddi. þekk- inguna á Ameríkufundi íslendinga, hafi gengið svo langt í staðhæfingum sínum og getgátum, að mál- staður hans og skoðanabræöra hans hafi fyrir það orðið tortryggilegur í augum gagnrýninna and- stæðinga, og fengiö þeim vopn í hendur. Rekur Reeves síðan í stuttu máli frásagnir hinna helstu handrita um Vínlandsfundinn og höfuð niðurstöð- urnar, sem dregnar verði af gaumgæfilegum lestri þein-a. Annars telur hann áhrifadrýgst, að láta hinar gömlu heimildir tala sem allra mest máli sínu sjálfar; því er það aðaltilgangur rits hans og meginefni, að safna þeim í eina heild á frummálinu og í enskum þýðingum, með þeim skýringum ein- um saman, sem ólijákvæmilegar eru til fullkomins skilnings' og áttavissu. Auk inngangsins er ritið í sjö köflum. Segir fyrst frá smágreimmi þeim um Vinland, sem finn- ast í hinum elstu heimildum, og eru þær teknar upp á íslenzku og í þýðingum. Annar kaflinn er ensk þýðing á Eiríks sögu rauða úr Hauksbók, en hinn þriðji þýðing á frásögnum í Flateyjarbók um
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar
https://timarit.is/publication/400

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.