Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1935, Page 67

Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1935, Page 67
69 indamensku höfundar, sem kostað hefir jafnan kapps um, að finna skoðunum sínum stað í frum- heimildunum sjálfum, en hættir sér aldrei langt út á haf óvissunnar í tilgátum, sem frjósamar geta að sönnu orðið í vísindalegum efnum, ef vel og viturlega er á haldið. Auðvitað styðst Reeves einnig við hinar nýjustu og hestu rannsóknir sinn- ar tíðar á viðfangsefni hans, einkum á hann mikið að þakka ritgerðum dr. Storms. Eins og hæfir jafn merku riti er allur frágangur þess prýðis- vandaður. Norrænufræðingar víðsvegar um lönd, bæði í Norður og Vesturálfu, birtu ítarlega ritdóma um þessa bók Reeves í merkum vísindalegum tímarit- um (Smbr. H. Hermannsson, Islandica, II., bls. 68- 69), og luku lofsorði á hana eins og verðugt var. Á íslenzku ritaði, dr. Valtýr Guðmundsson langt mál og lofsamlegt um hana í “Tímariti Bókmenta- félagsins” 1892, og í vikublaðinu “Lögbergi” árið áður (11. febrúar 1891). Bendir hann meðal ann- ars á, að bók þessi sé “dýrmætur og ómissandi fjársjóður” amerískum sagnariturum, sem kynnast vilii elsta kaflanum í sögu lands síns, og hafi einnig mikla þýðingu fyrir oss íslendinga, “þar sem hún færir Ameríkumönnum heim sanninn um það, að vér höfum fyrstir fundið Ameríku”. Er ekki að efa, að þetta rit Reeves, jafn sannleikselskur og rök fastur eins og hann er í málaflutningi sínum, haf' sannfært marga lesendur um söguleg sannindi Ameríkuferða íslendinga. Skuldum vér honum bv’ mikla þökk fyrir, að hafa með riti þessu haldið drengilega fram rétti vorum á erlendum vettvangi og aukið á hróður þjóðar vorrar. Og svo traustlega bygði Reeves, að bók har^ stendur enn um margt í góðu gildi, þó meir en fjörutíu ár séu liöin frá útkomu hennar, og ýms mjög merk rit um Vínlandsfundinn, er nýju ljósi yarpa á viðfangsefnið, hafi samin verið og prentuð á því tímabili. Má þar vitna til ummæla Halldórs prófessors Hermannssonar, er kveður svo að orði í
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar
https://timarit.is/publication/400

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.