Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1935, Page 82

Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1935, Page 82
84 og skildi hvarvetna eftir djúp og svíðandi sár. Foreldrar mínir mistu son sinn á unga aldri. Ekki man eg til að Herdís fengi bóluna. — Herdís var mjög vel gefin til sálar og líkama, með afbrigðum greind og mæta vel hagmælt, ætíð glöð og ætíð reiðubúin til* að hjálpa, hver sem með þurfti, og hún gat til náð; enda kom það sér vel þenna hörmunga-vetur í Mikley, bæði hjá okkur og annarstaðar. að einhver væri, sem bæði hafði vilja og þrótt til að hjálpa og líkna. Og gerði Herdís sannarlega það, er hennar kraft- ar leyfðu. — Sumarið 1877 giftist hún Jóhannesi Bjömssyni (Bray) frá ósi á Skógarströnd. Voru þau gefin saman, ásamt tvennum öðrum hjónum, undir beru lofti, af séra Jóni Bjarnasyni. Svo að segja mátti, að í kirkju þeirri, er Herdís var gift, hafi sannarlega verið hátt til lofts og vítt til veggja; og gat ekkert verið, sem betur samsvaraði hennar göfuga og hreina hugarfari. Þetta haust bygðu þau hjónin sér kofa nálægt kofa okkar (þetta gátu ekki kallast hús), og var hún eftir sem áður í óslitnu sambandi við okkur, að þvi 'leyti, að við nutum hennar glaðvæm um- gengni og uppörvunar, sem ekki veitti af á þeim erfiðu tímum. Meðal þeirra, sem settust að á eynni, var hinn al- kunni snillingur, Kristján Jónsson frá Geitareyjum. Hann var aldavinur Herdísar, meðan hann lifði. —- Árið 1878 fluttust þau Jóhannes og Herdís til Winnipeg og settust að á Point Douglas; þar bjuggu þau, þar til að þau fluttust vestur í bæinn og settust að á McMicken St. og Ellice Ave.; og þar bjuggu þau, þar til að Jóhannes dó (árið 1903). Eftir það fluttist Herdís að 426 Langside St., og bjó þar til dauðadags. — Ári síðar er Herdís fluttist til Winnipeg, flutti eg þangað, og hefi altaf átt heima í Winnipeg síðan. Svo við vorum altaf í nágrenni, og eg naut þeirrar ham- ingju, að umgangast þessa tryggu og göfugu vinkonu mina fram til hinstu stundar. Blessuð sé minning hennar.” Þessi fögru og vel sögðu orð hinnar góðu vin- konu Herdísar eru, að mínu áliti, í alla staði sönn og rétt. Enda hafði þessi kona náin kynni af Her- dísi í rúma hálfa öld, og vissi vel um hagi hennar allan þann tíma; vissi um baráttu hennar á frum- býlings'-árunum; vissi um hina dæmafáu góðgerða- semi og höfðingskap, hreinlyndi hennar, trygð og staðfestu. Það var vorið 1882, að eg fyrst komst í kynni við þau Jóhannes og Herdísi. Þau áttu þá heirna á Point Douglas í Winnipeg. Eg var þar í nágrenni við þau í nokkur ár, og kom iðulega í hús þeirra. Þar var oft gestkvæmt, og var á móti öllum tekið
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar
https://timarit.is/publication/400

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.