Afturelding - 01.01.1959, Blaðsíða 1
26. ÁRG,
REYKJAVÍ K 1959
1.—2. TBL,
uid aö olta maLla
Nýtt ár er runnið upp og annað
er horfið. En orð Drottins varir
að eilífu. Og það kemur til okk-
ar á þessum tímamótum með
huggun og heilrœði. Við skul-
um lesa frá þriðja kafla Jósúa:
„Þegar þér sjáið sáttmálsörk
Drottins. .. . þá leggið upp frá
yðar stað og farið á eftir henni.
Látið þó vera um tveggja þús-
und álna bil millum yðar og
hennar — komið ekki nærri
henni — til þess að þér megið
vita, livað'a veg þér eigið að
fara, því að þér hafið aldrei
farið þann veg áður.“
Það var lagt svo fyrir tilsjón-
armenn ísraels, að þeir skyldu
fara um allar herbúðir Israels,
og flytja þessi orð, er þeir áttu
að fara yfir Jórdan, og hefja
síðan fyrstu gönguna hinum
megin.
Það er næsta fögur mynd, sem hér er hrugðið upp af
sambandi Guðs við börn sín. Hann ætlar að ganga á
undan þeim og vísa þeim veginn. Þeir áttu aðeins að
gefa gaum að því, hvenær hann færi af stað, og hvaða
leið hann færi, til þess að þeir gætu fvlgt vegi hans.
„Því að“, sagði Guð, „þér hafið aldrei farið þann veg
áður.“
Þetta geta verið orð Guðs til barna hans við hver
áramót. Áfanginn, sem þá er hafinn, er okkur öllum
ókunnur. Við höfum aldrei farið þann veg áður, sem
við förum nú. Við höfum aldrei lifað árið 1959 fyrr en
nú. Við höfum aldrei mætt reynslum þess, fyrr en þær
mæta okkur eins og þær verða. Við höfum aldrei mætt
gleðidögum þess og sorgardögum, fyrr en við mætum
þeim í þeirri mynd, sem þeir koma fyrir okkur.
Vegna þess er svo gott að vita, strax við byrjun áfang-
A C A r N
2267.99
ÍSLANDS