Afturelding - 01.04.1959, Blaðsíða 1
26. ÁRG.
REYKJAVÍ K 1959
3.—4. TBL.
k^Aídu) TSlamioall
E»etta er lííid
.3
■j-iiaQ
Hér er brot aí sögu þess manns, sem þrátt fyrir
menntun og möguleika aö komast áfram í lífinu, er
ekki hamingjusamur, en glímir við gátur tilverunnar
og leitar svars. — Þetta gœti verið saga mín eða
þín eða sérhvers manns, sem er leitandi.. — Allan
Tömberg fann það, sem hann þráði. Hann fann lífið.
Allan Törnberp;.
að var í janúarlok, árið 1928. Það hafði verið mikil
aðsókn að samkomum okkar í Hvítasunnusöfnuðinum
í Sundsvall Eldur vakningarinnar brann kröftuglega og
margir gáfu Guði líf sitt. Áihyggjuefni okkar var ekki
hvernig við ættum að fá fólk til að koma á samkom-
urnar, heldur hitt hvar við áttum að fá húsrúm fyrir
alla, sem vildu koma.
Postullegir atburðir höfðu skeð og blöðin höfðu vakið
athygli á okkur. Fólk var í hreyfingu og meðal annarra
sem komu á samkomur o>kkar var prestur einn, sem
kunni grísku. Hann fékk að heyra talað í tungum á
fögru, grísku máli og það gerði það að verkum, að hann
fékk allt annað álit á Hvítasunnuhreyfingunni en áður.
Frá þessu sagði hann síðan í nokkrum blöðum.
Sunnudagskvöld eitt, á þessu tímabili, tók ég eftir
fimm ungum mönnum sem sátu framarlega í salnum á
samkomunni. Af öllu að dæma voru þeir ekki vanir að
sitja á samkomum sem þessari. Þeir horfðu í kring um
sig og höfðu athygli á öllu og virtust skemmta sér stór-
lega ef einhver sagði: „Dýrð sé Guði!“ eða „Hallelúja!“
En þeir trufluðu engan og framkoma þeirra var prúð-
mannleg. Eftir samkomuna kom einn af þessum piltum
til mín og bað mig um samtal. Ég var vant við látinn
og bað hann þess vegna að bíða í nokkrar mínútur. Hann
fór þá aftur til félaga sinna, en ég þóttist sjá, að þeir
væru allir skólapiltar. Þeir reyndust líka allir vera stú-
dentar, ef ég man rétt.
Þegar ég gaf mig á tal við þá, spurði sá er bað um
samtalið, hvort ég tryði allri Biblíunni. Því svaraði
ég játandi. Þá spurði hann mig hvort ég gæti líka trúað
sköpunarsögu Biblíunnar. Ég sagðist gera það. Þessu
næst vildi hann vita, hvort ég tryði framþróunarkenning-