Afturelding - 01.04.1962, Blaðsíða 5
AFTURELDIN G
ORAL ROBERTS:
Lnn aini ftahLsuagni. fiftLt pLg
Kæri vinur minn, mikilvægasta
spurning þessa heims, sem þú getur
spurt sjálfan þig að, er: „Hvað á
ég að gjöra til þess að frelsast?“
Þessari spurningu var varpað
fram af rómverskum embættismanni,
fangaverðinum í Filíppiborg, fyrir
nær 2000 árum síðan (Post. 16,30).
Hann fékk ákveðið svar, skýrt og
skorinort við spurningunni.
Svarið til þín er eins ákveðið og
jafnskýrt, af því að það er gefið
þér í Guðs heilögu bók, Biblíunni.
Það er aðeins ein leið fyrir þig til
bjálpræðis. Það er aðeins einn, sein
getur frelzað þig. Það er Jesús Krist-
ur frá Nazaret, sonur hins lifanda
Guðs. Biblían segir okkur skýrt:
„Og ekki er hjálpræðið í neinum
öðrum, því að eigi er heldur annað
nafn undir himninum, er menn
kunna að nefna, er oss sé ætlað fyr-
ir hólpnum að verða.“ (Post. 4,12).
Jesús sagði sjálfur: „Ég er vegur-
inn og sannleikurinn og lífið; eng-
inn kemur til föðurins nema fyrir
mig.“ (Jóh. 14,6). Úr því að ekki
er neinn annar vegur, verðum við
að komast inn á þennan veg. Vegur-
inn er Jesús frá Nazaret. tlr því að
hjálpræðið er ekki í nóinum öðrum,
verðum við að taka á móti þessari
persónu, Jesú Kristi. Jesús hefur
sagt okkur frá fremur einföldum
atriðum viðvíkjandi því að taka á
móti frelsinu. Þau eru:
1. KomiS til mín.
Auðvitað verðum við að finna
þörf okkar að koma til hans. Sér-
hver sem finnur nauðsyn þess má
og getur komið. Hinir sjúku geta
komið án þess að yfirgefa hvílubeð
sinn. Hinir bækluðu og lömuðu geta
komið, jafnvel þótt þeir geti ekki
gengið. Hinir blindu geta komið.
Þótt þeir sjái ekki náttúrlegan veg,
geta þeir fundið veginn til Guðs. —
Hinir heyrnardaufu og málhöltu
geta komið því að engin skemmd,
mannleg lífæri, geta lokað vegin-
um til Jesú, þegar sál í auðmýkt
hefur þörf fyrir að finna hann.
Syndarinn má koma; fyrir því get-
um hann og til fulls frelsað þá sem
fyrir hann ganga fram fyrir Guð.
Allir mega koma, og til sérhvers,
sem kemur segir hann: „Ég mun
veita yður hvíld.“ (Matt. 11,28).
2. GjöriS iiSrun, því aS
himnaríki er nálœgt.
Til þess að sjá sem sannasta
mynd af okkur verðum við að auð-
mýkja okkur og iðrast af einlægni.
Við verðum að viðurkenna, að við
höfum öll syndgað og skortir Guðs
dýrð. (Róm.3,23). Vegna þess að iðr-
un er nauðsynleg til frelsunar, þurf-
um við að sjá okkur sjálf sem synd-
ara, sakfelld og í brýnni þörf fyrir
hjálpræðið. „Því að laun syndar-
innar er dauði, en náðargjöf Guðs
er eilíft líf fyrir samfélagið við
Krist Jesúm, Drottin vorn.“ (Róm.
6,23). Iðrun þýðir hugarfarsbreyt-
ingu hjá j)ér, þú verður að snúa þér
frá syndinni, til Krists, frelsara
þíns. „Því að hryggðin Guði að
skapi verkar afturhvarf til hjálp-
ræðis, sem engan iðrar.“ (II. Kor
7, 10).
3. Jesús segir okkur aS trúa:
„Því að svo elskaði Guð heiminn,
að hann gaf son sinn eingetinn, til
þess að hver, sem á hann trúir glat-
ist ekki, heldur hafi eilíft líf.“ —
(Jóh. 3, 16).
Páll sagði við fangavörðinn í Fil-
ippíborg: „Trú þú á Drottin Jesúm,
og þú munt verða hólpinn.“ (Post.
16,31.
Jóhannes sagði: „Hver sem trúir
að Jesús sé Kristur, er af Guði
fæddur.“ Og einnig: „Sá sem hef-
ur soninn hefur lífið; sá sem ekki
hefur Guðs son hefur ekki lífið. —
(1. Jóh. 5, 1 og 12).
Svo að, vinur minn, vegur frels-
isins er ekki margbrotinn eða tor-
skilinn. Ilann er einfaldur. Taktu
þessi þrjú einföldu og auðveldu skref
til hjálpræðis og þú munt hljóta
endurfæðingu að ofan. Því næst
fylgir þú Jesú trúlega: Því að vér
framgöngum í trú, en ekki í skoðun
(II. Kor. 7). — Alveg eins og við
erum ekki frelsuð vegna tilfinninga,
heldur trúar. Þannig höldum við
áfram í frelsinu fyrir trú á Guð, og
gleðikennd og friður kemur sem
ávöxtur af stöðugri notkun trúar okk-
ar á Jesúm Krist.
Komdu til hans núna. .. . hann
vill frelsa og bjarga þér.
Þýtt G. I.
21