Afturelding - 01.12.1962, Page 2

Afturelding - 01.12.1962, Page 2
(Stuðiaberg í Dverghömrum á Síðu). Ilaínaði ráðherra§töðu — eo . . • Þegar ritstjóri Aftureldingar var í Svíþjóð s.l. sumar, var sagt frá því á fjölmennri tjaldsamkomu, að næsta dag mundi Ephraim Kay- umba frá Kongó koma til borgarinn- ar og jafnframt tala á tjaldsam- komunni sama kvöld. Þar sem all- mikið hafði verið talað um mann þennan, margra hluta vegna, vakti þetta nokkra eftirvæntingu hjá fólki að sjá og heyra þennan mann. Kvöldið eftir var hið stóra tjald troðfullt. Ephraim Kayumba talaði Guðs orð í krafti Heilags Anda, svo að auðséð var að boðskapurinn af vörum þessa þeldökka gáfumanns, snerti við hjörtunum. Ephraim Kayumba er mikill mað- ur vexti og kveður mikið að honum. Hann hefur notið góðrar menntun- ar. Þegar Kongó varð sjálfstætt ríki, var honum boðin ráðherra- staða, en hann hafnaði tilboðinu, og tók á sig andúð landsmanna sinna fyrir, annarra en kristinna. Ástæðan fyrir því, að hann neitaði að verða ráðherra, var sú, sagði hann, „að Drottinn minn og frelsari hefur kallað mig til að boða fagnaðar- erindið.“ Fyrir nokkrum árum skírði Drott- inn hann í Heilögum Anda. Rétt um sama leyti vitraðist móður hans það frá Guði, að hann mundi takast ferð á hendur til mjög fjarlægs lands og prédika fagnaðarerindið þar fyrir hvítum mönnum, án þess sjálf- ur að þurfa að greiða einn eyri í ferðakostnað. Og nú var fylling tímans komin. Einmitt í sumar köll- uðu hvítasunnumenn hann til Sví- þjóðar og buðu honum að greiða allan kostnað við ferðir hans, ef hann vildi koma, án þess að þeir hefðu neitt vitað um vitrun móður hans. Fyrir tíu árum leið Kayumba af vondum hjartasjúkdómi. Læknar höfðu gefið upp alla von um það að hann fengi nokkurntíma bata. í neyð sinni gekk hann til Krists með sjúkdóm sinn, og Drottinn læknaði hann fullkomlega. Og nú á síðast- liðnu sumri feraðist hann bæði um Svíþjóð, Finnland og Noreg og varð mörgum til blessunar gegnum trúarferskan vitnisburð sinn. Við vini sína sagði hann við eitt tæki- færi, að vel gæti svo farið að heim- ferð hans aftur til lands síns, gæti þýtt það, að hann þyrfti að innsigla trú sína og köllun með blóði sínu.

x

Afturelding

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.