Afturelding - 01.12.1962, Qupperneq 9
AFTURELDING
„Fyrst þökkum við
Guði, síðan göngum
við í veizlusalinn"
í 4.—5. tölublaði Aftureldingar
þessa árs, var lítillega sagt frá
Bandaríska geimfaranum John
Glenn ofursta. Eftir að það var birt,
barst okkur í hendur grein úr
„Chicago Tribune“, sem er stærsta
blað heims. I þessu blaði var for-
síðugrein um geimfarann, með feit-
letraðri fyrirsögn, er hljóðaði svo:
„Glenn rides in space with faith in
ihe Lord“. — Glenn ferðast gegn-
um himinrúmið í trú á Drottin.
Afturelding tekur nokkuð upp úr
J>essari grein, enda þótt sumt hafi
áður verið sagt í Aftureldingu.
,,....Ég sat ekki og baðst fyrir
allan tímann í geimskipinu," sagði
John Glenn í samtali við öldunga-
deildarþingmanninn, Alexander
Wilfey. „Ég hafði of mörgum hundr-
uðum hluta að sinna á þeim stutta
tíma, sem geimferðin stóð yfir til
þess að ég gæti það. En ég veit að
þar sem ég er, þar er Guð. Auk þess
hef ég til margra ára leitazt við að
lifa þannig, eins og hver dagur væri
minn síðasti dagur. Ég verð þó að
viðurkenna 'að mér hefur oft mis-
tekizt, en ég byrja alltaf á ný. Frið
við Guð og menn hef ég öðlazt fyr-
ir mörgum árum. Kristindómur
minn er ekki eins og brunalúður,
sem lætur heyra í sér á vissum neyð-
arstundum í lífi mínu, og svo þegav
hættan er liðin hjá, þarf ég ekki á
Guði að halda.“
Að þessum orðum Glenns hafði
hinn æruverðugi mannfjöldi hlust-
að með kirkjukyrrð. En þegar hann
sagði þessi orð, kafnaði rödd hans
í geysilegu lófaklappi hins mikla
mannfjölda.
Mörgum kom nú óneitanlega í
hug, það sem rússneski geimfarinn,
John Glenn
Gagarin hafði sagt, eftir sína geim-
för, að hann liefði hvergi séð Guð
eða orðið hans var. En Glenn
ofursti sagði með lotningu, að Guð
hafi verið þar sem hann var.
Eftir geimferðina voru foreldrar
Glenns sóttir til þess að vera við-
stödd þá veglegu veizlu, er geim-
faranum var gerð af hinu opinbera.
Veizlan skyldi fara fram í þekktum
skóla. En áður en gengið var til
veizlunnar, sagði móðir Glenns við
rektor skólans: „Fyrst skulum við
þakka Guði fyrir það að John er
kominn heill á húfi aftur til jarðar.
Síðan göngum við í veizlusalinn.“
Og þannig varð það.
Sagt er að þessi ákveðna afstaða
geimfarans til Guðs hafi haft mikil
áhrif á trú fólks og kristnina al-
. mennt í Bandaríkjunum. Sézt það
bezt á þeim orðum sem þingmaður
úr öldungadeildinni sagði, er hann
ávarpaði geimfarann. Þessi þing-
maður var Robert Kerr frá Okla-
homa, og er forseti öldungadeild-
arinnar; Hann þakkaði John Glenn
með hrærðum orðum fyrir það, sem
hann hefði gefið amerísku þjóðinni,
með vitnisburði sínum um lotningar-
fulla trú á lifandi Guð. Að lokum
sagði forseti öldungadeildarinnar:
„Með þessu fordæmi hafið þér gefið
þjóð vorri og öllum heiminum ómet-
anlega gjöf, andlega gjöf, sem hef-
ur hrært hjörtu okkar allra.“
Gera kristniboðarnir
nokkurt gagn?
„Heldur þú að kristniboðarnir
geri nokkurt gagn á Kyrrahafseyj-
unum?“ Þessi spurning var lögð fyr-
ir ungan, trúaðan sjómann, er hann
kom frá siglingu yfir Kyrrahafið.
„Ég skal segja þér nokkuð, sem
lýsir því fullkomlega,“ svaraði sjó-
maðurinn. „I fyrra strandaði skip
okkar við eyju, þar sem annað skip
hafði strandað árið áður, og þá var
öll skipshöfnin myrt. Þú getur sjálf-
ur skilið tilfinningar okkar, þegar
við sáum, í hve hræðilegan voða,
við vorum komnir.
Skipið sem við vorum á, var að
liðast í sundur á skerinu og við
vissum, að ef við reyndum að synda
í land, mundum við mæta dauðan-
um á ennþá hræðilegri hátt.
Þegar birta fór af degi, sáum
við okkur til skelfingar, að margir
bátar stefndu í áttina til skipsins.
Við vissum ek'ki annað, en að okk-
ar síðasta stund væri komin.
En þegar þessir eyjarskeggjar
komu nær, tókum við eftir, að þeir
voru klæddir enskum fötum og sum-
ir þeirra töluðu ensku.
Næsta sunnudag var öll skipshöfn-
in komin á samkomu til að hlusta á
orð Guðs, og þar fékk ég tækifæri
til að taka þátt í brotningu brauðs-
ins. Við sungum sálmana, sem við
vorum vanir að syngja heima í Skot-
landi.
Ég veit ékki, hvað þú liugsar um
kristniboð, eða hvort þú álítur að
kristniboðarnir sem höfðu komið til
eyjarinnar á milli skipsstrandanna,
sem ég nefndi, hefð'u gert nokkurt
gagn. En ég veit hvaða skoðun ég
hef á því.“
73