Afturelding - 01.12.1962, Síða 18
AFTURELDING
Hin mesta uppgötvun
Þcgar stjörnufræðingurinn, Galli-
leo, uppgötvaði að jörðin snérist
kringum sólina varð hann öllum
samtímamönnum sínum til athlægis.
Hann varð meira að segja neyddur
til :að taka skoðun sína aftur. Nú
er hverju einasta barni kennt það
í skólunum, að jörðin snúist um sól-
ina.
Þegar hinn mikli læknir
William Harvey, uppgötvaði það,
að hjartað dældi blóðinu út í líkam-
ann, trúði því enginn maður. Nú
láta bæði læknar og hjúkrunarkonur
fingur á slagæðina, til þess að at-
huga blóðrásina. Enginn er í vafa
um það lengur, að blóðið er á hreyf-
ingu frá og til hjartans.
Þegar verkfræðingurinn, James
Watt, uppgötvaði gufuaflið, var
heimurinn mjög í vafa um uppfinn-
inguna. Og þegar Georg Stephenson
var að smíða eimreið, til þess að not-
færa sér þetta afl, var hann álitinn
draumóramaður. En nú bruna hrað-
lestir, knúnar áfram af gufuaflinu,
um lönd og álfur, sem staðfesta
þennan sannleika.
Þegar Morse uppgötvaði það, að
hægt væri að senda rafmagn í gegn-
um vírþráð, og orðsending gæti far-
ið yfir Atlantshafið á broti úr
sekúndu, voru allir sammála um að
það væri ómögulegt. Nú er enginn
í vafa um það lengur.
Bifreiðar, þráðlausar skeytasend-
ingar, flugvélar, neðansjávarritsími
o. fl., sem á byrjunarstigi var mjög
gagnrýnt og mætti undrun og at-
hlægi, hafa fengið viðurkenningu
sína, og hafa orðið öllu mannkyni
til hagræðis og blessunar.
Þegar J. Y. Simson, hinn mikli
læknir í Edinborg, sem var frægur
fyrir það að uppgötva svefnlyfið
(klóróformið), var spurður um,
82
hvað væri hin mesta uppfinning
hans, svaraði hann ákveðið: Mesta
uppgötvun mín var, þegar ég upp-
götvaði það, að ég var mikill synd-
ari og Jesús var mikill frelsari.
Gagnvart þessari uppgötvun er
heimurinn enn þá kærulaus og efa-
blandinn, enda þó að hún sé mest
af öllum. Enginn kemur til himins
nema fyrir Jesúm Krist.
Spurt og svarað
SPURT: Mig langar til að spyrja
um það, hvort það muni vera sama
upprisan, sem talað er um í 1. Þess.
4,16 og í Opinberunarbókinni 20,
4—6. S. F.
SVAR: Þetta eru tvö stig í sömu
upprisu, fyrri upprisunni eða upp-
risu réttlátra. Orðið í 1. Þess. 4,16
segir frá fyrri þættinum í endur-
komu Krists. Þá munu allir þeir,
sem dáið hafa í lifandi trú á Krist,
rísa upp, og þeir sem lifa og eftir
eru, verða ásamt þeim hrifnir burt
í skýjum til fundar við Droltin í
loftinu. Eftir að burthrifningin hef-
ur átt sér stað, gengur þrengingin
mikla yfir heiminn. Þá kemur Anti-
Kristur fram, en þegar vald hans
verður sem mest, verður hver sá
deyddur, sem reynir að halda fast
við trúna á Drottin, og vill ekki til-
biðja líkneski dýrsins. (Opinb.13,
15). Þegar svo Jesús kemur sýnilega
til jarðarinnar með sínum heilögu,
(sambr. Júdasarbr. 14. vers) í lok
þrengingarinnar miklu, til að sigra
Anti-Krist og dæma þjóðirnar, sem
hafa fylgt honum, þá er það, sein
þeir rísa upp, sem liðið hafa píslar-
vættisdauða undir valdatíma Anti-
Krists, og þeir munu ríkja með
Kristi í þúsund ár. „Þetta er fyrri
upprisan“, segir í Opinberunarbók-
inni 20,6. Með því er átt við, að þá
fullnast fyrri upprisan.
Á. E.
AFTURELDING
kemur út annan hvorn mánuO —
aö undanteknum júli og ágúst —
og verður 84 síður á ári. — Árg.
kostar kr. 35.00 og greiðist i
febrúar. Verð í Vesturhelmi 2 doil.
A Norðurlöndum 8 danskar kr. —
1 lausasölu kr. 8.00 eint.
IUTSTJÖBI: Ásmundur KiríkBson.
ÚTGEFANDI: Filadelíia. — Siml
16856. — Rltstjórn og afgreiðsla:
Hverflsgötu 44, Reykjavik.
Borgarprent & Co. — Reykjavik.
ÁHEIT OG GJAFIB TIE
FlLADEEFlUSAFNAÐABINS.
N.N. Rvík kr. 4000, S.J. Rvík 622,55,
M. H. Noregi 591.71, M.S. Noregi 4.675.43,
H. M. Rvík 500, S.H. 1000, S.J. Rvík
I. 618.65, N.G. Bæ 200, N.N. Drangsnesi
600, N.N. Drangsnesi 200, G.G. BarSastr.
500, (1 minningu um Þ.S.) G.K. 400, (í
minningu um Þ.S.) H.G. BarSastr. 100,
Reikandi 500 G.B. Hafnarf. 500, N.N.
Rvík 500, H.J. Rvík 200, Þ.IJ. Rvík 500,
N. N. Fljótum 200, U.J. Rvík 100, N.N.
Rvík 200, K.J. Stykkish. 1000, Amerísk
stúlka Keflavík 900, N.N. Rvík 125, N.N.
Rvik 200, S.J. Rvík 3.101.05, K.A. Sví-
þjóð 1.666,85, N.N. 55, A.K. 1000, Þ.H.
500, Ó.S. Hafnarf. 200.
Samtals kr. 26.256.24
OBGEESJÓÐUR
Ebba kr. 100, A.B. 100, S. Akureyri
500, N.N. Akureyri 500, A.B. Rvík 100.
S.J. Rvik 2,244,96. — Samt. kr. 3,544,00.
Kristniboðssj. G. Eiland.
V.M. Rvík kr. 30, S.J. Rvík 25, G.L. 300
V.M. Rvík 100, G.K.G. Rvík 100, N.N.
50, N.N. Akureyri 3000, S.J. Rvik 25,
A.G.M. Rvík 20, M.A. 100, K.H. Rvík
100, Þ.Á.E. Rvík 25. — Samt. kr. 3,875,00.
Minninpargjafir kristnib.sj.
R.G. Rvik kr. 25, R.G. Rvík 25, G.J. 25,
N.N. 25, N.N. 50, N.N. 20, N.N, 70,
Á.Á. 50, Á.St. 25, Á.S. 25, V.M, 50
N.N. 100, Þ.Á. Rvík 25, Á.G. og G.R, 50,
R. og R.G. 50, Í.E.Þ.E. 150, J,G, 25,
A.G. 25, Þ.E. 25, N.N. 25„ N.N. 25,
Á.B. Rvík 900.
FíladeljíusöjnMurinn jlytur öllum, er
minnzt hafa safnaðarins á þennan hátt,
innilegar þakkir, me 3 ósk um Guös
blessun.