Afturelding - 01.08.1976, Blaðsíða 14
TJALDSAMKOMUR
koma eftir síðustu samkomuna í tjaldinu, og var
bað mjög góð samkoma og voru þar á þriðja
hundrað manns.
Næst var tjaldið reist í Kirkjulækjarkoti, þar
sem er árlegt síðsumarmót um Verslunarmanna-
helgina. Að þessu sinni 30. júlí til 2. ágúst.
Viðbótin var strax látin í tjaldið, vegna reynslu
frá fyrra ári. Og var tjaldið fullsetið svo að segja
á hverri samkomu. Mótið var mjög svo blessað,
og aliir fundu fyrir nærveru Drottins. Sá stóri
atburður skeði að um 40 manns skírðust x
Heilögum Anda.
Svo var það Grindavtk 6.—8. ágúst. Þar voru
það aðallega börnin sem sóttu samkomurnar, en
þau náðu því að verða yfir 100. Og voru það
góðar samkomur. Var það síðasti staðurinn á
þessu sumri.
En fleiri höfðu áhuga að fá tjaldið. Og væri
það gott ef að hægt yrði að fara á fleiri staði fyrir
sumarið. En þá þurfum við kannski lengra
sumar og það held ég að við getum ekki fengið.
En eitt gætum við beðið Guð um sem mundi
auðvelda okkur að fara á fleiri staði yfir
sumarið, það er fleiri verkamenn. Biðjum um
vakningu á íslandi.
Sam D. Glad.
Prestur sagði við gamla hrörlega konu: ,,Það
er víst bágt að vera svo gamall, finnst þér það
ekki?” ,,Nei” svaraði hún brosandi, ,,Þeim
mun dýpra sem kemur í bollann, verður
drykkurinn sætari, því allur sykurinn situr á
botninum.”
14