Afturelding - 01.01.1985, Blaðsíða 5

Afturelding - 01.01.1985, Blaðsíða 5
Vitnisburdur Yngvi Rafn Yngvason Aí hvcrju elska cg Jcsú? Yngvi Rafn Yngvason Hvað er það sem gerir Jesú svona dýrmætan fyrir mig? Er það eitthvað af hinu jarðneska eða eru það hlutirnir sem ég eignast fyrir bæn? Nei og at'tur nei. Það sem gerir hann svona dýrmætan fyrir mig er það að hann frelsaði mig og leysti mig undan ofurþunga syndarinnar. Hann frelsaði mig frá því að reyna áfengi, tóbak og eiturlyf. Allt það gamla tók hann og negldi á krossinn. Jesús gaf mér sigur, stórkosllegan sigur yfir öllu óvinarins veldi, því hann tók lyklavöldin af Satan með dauða sínum á Golgata og frið- þægði fyrir syndir okkar. Hvað á ég við? Ég á við það að við erum öll, hvert og eitt, synd- arar í augum Guðs, því við höf- um brotið gegn vilja hans. Við getum öll örugglega fundið eitt- hvað atvik úr okkar lífi þar sem við höfum brotið gegn samvisku okkar. Ég bið þig kæri vinur sem ekki þekkir Krist. Ekki halda að Guð fyrirgefi, án þess að þú biðj- ir um fyrirgefningu. Guðs Orð segir: „Hver sá sem biður mun öðlast. Jesús sagði: „Enginn kemur til föðurins nema fyrir mig.“ Fyrir þig er aðeins ein leið til Himins og það er í gegnum hann. Biddu hann að fyrirgefa þér syndirnar og hrcinsa þig með blóði sínu. Þá fyrst muntu raun- verulega skilja hvers vegna ég elska Jesú. Hann hefurverið mitt sverð og skjöldur um sjö ára skeið og hefur svo sannarlega svarað bænum mínum. Hann hefur leitt mig og varðveitt og gefið mér af sínum Heilaga Anda. Hann er minn besti vinur. Jesús elskaði mig af fyrra bragði . . . þess vegna elska ég Jesú. Yngvi Ral'n Yngvason.

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.