Afturelding - 01.10.1985, Qupperneq 9
9
Úr Kíladclfíu
Heimsóknir
lícum gerir þaö eftir þeim
lögum, sem hann hefur sjálf-
ur sett. Þau lög eigum við að
virða og halda i heiðri i’u í
œsar. Fóstrið er sjálfstœð
sköpun, sem móðurinni er
trúað fyrir til forsjár um tíma.
Fóstureyðing er deyðing þess
lífs sem tendrast hefur. Slíkt
vanhelgar og saurgar landið.
Efsvoer, hvernig er þá háttað
samvisku og anda þess er
stendur fyrir evðingu fósturs-
ins?
Biblíán greinir frá móður-
kœrleika, ástúð og barnelsku.
A dögum Biblíunnar, eins og
í dag, voru til konur, sem ekki
gátu eignast börn. Svo kom
langþráð barn og var það
tekið sem bœnasvar. Eitt Ijós-
asta dœmið er Hanna, sem
varð móðir Samúels spá-
manns. (I. Samúelsbók 1. og
2. kafli). Enn er til fjöldi
kvenna, sem geta ekki eign-
ast börn, en þrá að ganga
börnum í móðurstað. Vœri
það ekki lausn á vcinda
margra verðandi mœðra, sem
geta ekki alið önnfyrir barni
sínu affélagslegum ástœöum,
að geta lagt þcið í hendur
konu sem þráir barn?
Ég bið Drottin um /eiðsögn
fyrir valdsmenn og starfs-
menn heilbrigðisstofnana. Að
þeir hlýði orðum Páls postula
er Itann reit: „Farið ekki
lengra en ritað er“. Gerum
ekkert, sem veldur vanhelgun
og saurgun. Sláum vörn um
líf okkar sjálfra og þeirra sem
við erum ábyrg fyrir, en geta
ekki borið liönd fyrir höfuð
sér.
Einar J. Gíslason.
Mikið hel'ur verið um hcimsókn-
irtil Fíladelfíusafnaðarins í Reykja-
vík á útlíðandi sumri. Ekki l'ærri en
um áttatíu manns hafa heimsótt
söfnuðinn og tekið þátt í samkom-
um safnaðarins.
Hér er um að ræða tvo gesti l'rá
Kanada, fimm frá Færeyjum, fimm
frá Svíþjóð og nær sjötíu l'rá Banda-
ríkjunum. Þar munar mest um tvo
kóra, fyrst komu Celebrant Sing-
ers, með tuttugu og tvo liðsmenn og
á eftir þeim komu Continental
Singers, með fjörutíu og fjóra liðs-
rnenn. Allir þessir geslir voru í
heimilum safnaðarfólks og annarra
trúaðra vina, sem vcittu þeim gist-
ingu og góðan grciða.
í lok ágúst komu hingað frá Sví-
þjóð þau Bill Löfbom og hjónin
Mona-Lisa og Ingemar Almqvist.
Þau dvöldu hér nær tvær vikur og
héldu alls tólf samkomur i Reykja-
vík, Kcflavík og á Selfossi.
Þessi heimsókn var mjög árang-
ursrík. Margir fengu fyrirbæn vegna
sjúkleika og fólk fékk að reyna
lækningu mcina sinna. Margir leit-
uðu Drottins til frelsis og fengu að
taka við honum. Fimmludaginn 5.
september var umræðuefnið „Skírn
andans". Þeim. sem vildu eignast
þessa reynslu, var bent á að setjast á
fremsta bekk. Bill Lölbom og lijón-
in gengu milli fólksins og lögðu
hendur yfir það. „Fengu þcir þá
Heilagan anda", cins og segir í
Postulasögunni. Einstaklingar, er
höfðu beðið lengi eftir þessari
reynslu léngu að eignast þelta ljúft
og liðugt. Ekki færri en sex fengu að
meðtaka þessa gjöf umrætt kvöld.
Við heyrðum þau tala tungum og
mikla Guð.
Bill Lölbom hefurskrifað hingað.
Hann er nú kominn lil Californiu,
þarsem hann á heima. Hann langar
til að heimsækja ísland þegar aftur
á næsta ári.
Nýlega kom til okkar Michael
Fitzgerald frá Bandaríkjunum.
Hann cr íslenskur í móðurætt og á
nána ættingja búsetta hér á landi.
Michael er forstöðumaður í Hvíta-
sunnusöfnuði í Bandaríkjunum og
stcndur fyrir vaxandi starfi. Hann
hefur heimsótt okkur einu sinni
áður og hefur þjónustu hans fylgt
blessun.
EJG
Mynd: Guðni F.inarsson