Afturelding - 01.10.1985, Side 19

Afturelding - 01.10.1985, Side 19
þessa sömu uppsprettulind. Á hverju kvöldi sest ég á rúmstokk- inn hjá þeim og við biðjum sam- an. Það er fyrst þá sem ró færist yfir þau og þau sofna djúpum og værum svefni. 15. desember 1982 Jólaundirbúningur. Jólastress. Ég ákveð að víst skulum við halda jól en ekki gegn hvaða verði sem er. Vinur sem líka þjáist af krabbameini kemur í heimsókn. Við tölum lengi sam- an. Baksturinn geturbeðið, hann er ekki svo mikilvægur. Það er annað mikilvægara — vinur í angist og neyð. Tíminn er það dýrmætasta sem við eigurn og öll höfum við 24 stundir til umráða á sólar- hring. Það merkir að við erurn rík! Hugsið ykkur ef við gætum gefið hvert öðru meiri tíma í jólagjöf. Það myndi áreiðanlega gleðja meira en dýrustu gjafir. Jólin eru góð hátíð og ég hlakka til þeirra. Lifandi ljós, jólagreinarog lifandi frelsari. 24. desember 1982 Aðfangadagskvöld. Fjölskyld- an safnast saman í setustofunni, dekkar borðið og tekur fram jólagjafir. Við sitjum í hring og þökkum Guði. Þökkum fyrir að Lars er á lífi. Þökkum fyrir að ég er svo gott sem góð. Þökkum fyr- ir að við sem fjölskylda getum haldið jól saman. Það er ekki lengursjálfsagt. Við opnum jólagjafirnar hvert af öðru og gleðjumst sem böm. Hvílíkjól! Á jóladag varð Lars að vinna í hafnsögubátnum. Þar sem ég er ein með bömunum koma eftir- köstin. Ég geng inn í herbergi og græt. Veit ekki af hverju. Elsta dóttirin, 16 ára, kemur inn til mín. Hún reynirað skilja. Reyn- irað hugga. 29. desember. Nýárið nálgast. Viðburðaríkt ár liggur að baki og nýtt ár bíður okkar sem áreiðanlega verður ekki síður viðburðaríkt. Við vit- um ekki hvað nýtt ár ber í skauti sér en það er gott að geta — hvað sem á dynur — haldið sér í eitt- hvað sem er öruggt — traust og alltaf til staðar. Guð og fyrirheiti hans. Ég les í Biblíunni minni orð sem ylja og hugga: „Óttast þú eigi, því að ég er með þér. Lát eigi hugfallast, því að ég er þinn Guð. Ég styrki þig, ég hjálpa þér, ég styð þig með hægri hendi réttlætis míns.“ Þessi orð höfða til mín hér og nú. Ég vil mæta nýju ári með opinn faðminn, lifa nærri lífinu, nærri Guði. Framhald í næsta blaði EXPíO » ss Undirbúningur EXPLO ’85 ernú í fullum gangi. Friðrik Ó. Schram liefur verið ráðinn framkvæmda- stjóri ráðstefnunnar, auk hans vinna að undirbúningi Kristjana Diðriksdóttir og Eirný Ásgeirsdótt- ir. Einnig leggur fjöldi sjálfboðaliða hönd á plóginn, enn vantar samt Ijölda fólks til starfa. Viljir þú leggja hönd á plóginn, þá væri vel þegið að þú hefðir samband við skrifstofu EXPLO '85. Ráðstefnan verður haldin í Menntaskólanum við Hamrahiíð, og hefst að kvöldi föstudagsins 27. desember með almennri samkomu. Kennsla hefst að morgni laugar- dags, kennt verður alla morgna. Síðdegis kemur tveggja tíma dag- skrá, sem send er um gervihnött til allra þáttökulanda EXPLO '85. Dagskráin verður cins uppbyggð alla ráðstefnudagana. Ráðstefnunni lýkur síðdegis á gamlársdag. Á kvöldin verða svo samkomur. Þáttakendur í samkomunum vera úr hinum ýmsu kristnu kirkjudeild- um, sönghópar og ræðumenn. Eru allar líkur á að samkomurnar verði fjölbreyttar. Allt kristið fólk, sem hefur áhuga á hvatningu og fræðslu um virkari þáttöku í safnaðarlífi er hvatt til að taka þátt í ráðstefnunni. Ætlunin er að hafa barnagæslu á staðnum, svo fjölskyldufólk geti óhindrað tekið þátt í ráðstefnunni. Einnig verða seldar léttar veitingar. Þctta er kjörið lækifæri til að laka sér svolítið f'rí í jólafríinu og hug- leiða það sem Guðsríki heyrir til. Skrifstofa EXPLO ’85 veitir allar nánari ttpplýsingar, þar fást fallcgir kynningarbæklingar og tekið er við skráningu á ráðstefnuna. EXPLO ’85 Stakkholti 3, 105 Reykjavík Sími91-27460

x

Afturelding

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.