Afturelding - 01.10.1985, Síða 23
ir keppnina, koma efninu fyrir
undir stimplunum og setja síðan
mótorinn saman að nýju. Einfalt
en árangursríkt.
Stuttu fyrir keppnina klifraði
tveggja ára sonur Viðars, Crister,
upp í fang föður síns, horfði á
hann með tárin í augunum og
sagði aðeins: „Pabbi, pabbi ...“
Þetta tók Viðar sem tákn frá
Guði og það varð ekkert úr
smyglinu. Sá sem tók verkið að
sér var seinna gripinn af lögregl-
unni.
— Það var mikið beðið fyrir
okkur ijölskyldunni, segir Viðar.
Við vorum bænabörn. Þegar við
áttum sem erfiðast og hjónaband
okkar og Oárhagur var í rústum,
greip Guð inn í líf okkar — við
frelsuðumst og Guð læknaði
okkur. Við fengum eins og að
reyna „gamla tímans vakningu."
— Það tók Guð aðeins viku
að byggja aftur upp bað sem
hafði tekið okkur 31 ár að rífa
niður. Allt okkar líf breyttist.
Það má segja að allt hafi orðið
nýtt.
— Eg fékk líka að reyna kraft
Guðs áður en ég komst til trúar.
Eitt sinn var ég kominn á 170
kílómetra hraða á klukkustund
begar ég kom skyndilega að
krappri beygju. Ég reyndi að
hernla en bremsurnar tóku illa.
Ég man að barr*a hrópaði ég á
Guð í neyð minni. Þá gerðist
undur. Bíllinn rann eftir beygj-
unni án bess svo mikið að
skransa. Þetta tel ég hafa verið
kraftaverk.
— Eitt af bví sem talaði sterkt
til okkar var vinamissir, heldur
Viðar áfram. Þá lagði Laila,
kona mín fram bænarefni fyrir
vininum.
— Það gerðist eitthvað innra
með mér begar ég bað, segir hún,
og næstu helgi frelsaðist ég.
— Ég áttaði mig ekki á bví
sem gerst hafði, segir Viðar. En
begar ég hafði áttað mig, taldi ég
hjónabandið endanlega glatað.
Það var óhugsandi að ég gæti
búið við kristna eiginkonu.
Viðar undirbjó nýjan bíl fyrir
keppni en gaf sér bó tíma kvöld
eitt til að fara með konunni á
samkomu.
— Þetta kvöld gerðist nokk-
uð, segir Viðar. Ég frelsaðist og
félagar mínir skildu hvorki upp
né niður begar ég sagði síðar að
gamla lífið væri að baki.
— Nú freistar nýr bíll mín
ekki einu sinni lengur.
í dag eru Viðar og Laila trú-
boðar í fullu starfi. Þau hafa bó
ekki alveg sagt skilið við land-
leiðina en nú aka bau hana ekki
lengur í beim tilgangi að vinna
til verðlauna, heldur til að vinna
sálir fyrirGuðs ríki.
Þau eru bæði bakklát og
ánægð með að mega taka bátt í
bví starfi.
M.Æ. þýddi og staðfærði.