Afturelding - 01.09.1986, Síða 21
kallaðir hinir „sjö dagar af
huppah“, en brúðguminn leiddi
brúði sína fram að þeim lokn-
um, nú blæjulausa svo allirgætu
séð hver hún væri.
SAMANBURÐUR
J■ Ritningin segir að kirkjan sé
brúður Krists, (Efesusbr.
5:22-33)
2. Jesús vfirgaf hús (hibýli) Föð-
ur síns og kom til jarðarinnar
fyrir nœrri 2000 árutn.
5. Jesús kom til þess að gera
sáttmála við okkur þegar Hann
kom.
4. Sama kvöldið ogJesús gaflof-
orð sitt í Jóhannes 14, stofnsetti
hann kvöldmáltíðina. (vínbikar-
inn og brauðið), (1. Kor. 11:25).
5. Eins og gyðingabrúðguminn
keypti Kristur brúði sína (kirkj-
una) með sínu eigin lífsblóði, (1.
Kor. 6:19-20).
6. Eins og gyðingabrúðurin var
helguð brúðgumanum um leið
og sáttmálinn var gerður, svo
hefur kirkjan verið helguð og
vígð Kristi, (Ef.5:25-27; 1. Kor.
1:2; 6:11; Hebreabr. 10:10;
13:12).
7. Kristur yfirgaf brúði sína þeg-
ar Hann snéri aftur til Föður
síns á Himnum eftir upprisuna,
(Jóh. 6:62;20:17).'
8. Kristur hefur verið að búa
brúði sinni stað, þegar Hann
kemur aftur að sœkja hana,
(Jóh. 14:2-3)
9. Alveg eins og gyðingabrúð-
guminn kom með brúðarsvein-
unum, svo kemur Kristur til að
sœkja brúðina með fylgdarliði
engla frá húsi föðurins,
(l.Þess.4:16)
10. Eins og gyðingabrúðurin veit
kirkjan ekki alveg hvenœr Jesús
kemur aftur.
11. Gyðingabrúðguminn kom
með kalli og raust. Það nmn
Kristur einnig gera, (1. Þess.
4:16).
12. Þegar gyðingabrúðhjónin
komu til húsa föðurins voru
gestir þegar mœttir. Þannig
verða hinir heilögu úr Gamla
Testamentinu einnig viðstaddir.
Þá veröur kirkjan öll sameinuð
Frelsaranum, þar með verður
hún sannarlega brúður Hans.
13. Gyðingabrúðurin var falin í
hjónaskálanum í sjö daga. Svo
mun kirkjan vera falin í húsum
Föðurins í Þrengingunni miklu í
sjö ár. Enginn á jörðinni mun
sjá hana.
14. Alveg eins og brúðguminn
tók brúði sína ogsýndi hana öll-
um eftir sjö daga, svo mun Jesús
koma með kirkju (Brúði) sína í
lok þrengingarinnar og sýna öll-
um hver hin sanna brúður er,
(Kol.3:4).
Ágústa Guðmundsdóttir
Hartings.
Agústa Guömundsdóttir Hartings er
búsett í Bandaríkjunum. Hún varö
fcgurðardrotting íslands 19.