Afturelding - 01.09.1986, Page 24
að reyna eitthvað af þessu innra
frelsi meðan á veikindum mín-
um stóð.
Páll og Sílas lentu í fangelsi.
En „... uin miðnœtti báðust þeir
Páll og Sílas Jyrir og lofsungu
Guði, en bandingjarnir hlustuðu
á þá“, (Postulasagan 16:25).
Þessir menn voru fangelsaðir. í
hinu ytra voru þeir fangar, en
hið innra sjálfsöruggir og frjálsir.
Pétur er annar, sem Biblían
segirokkurað hafi lent í fangelsi.
Það var búið að kveða upp yfir
honum dauðadóminn. Síðustu
nóttina fyrir aftökuna lá Pétur í
klefa sínum og svaf! Hann var
hlekkjaður við tvo hermenn,
sem gættu hans. Mannlega séð
var útlitið dökkt og vonlaust, en
hið innra átti Pétur slíkan frið og
öryggi að hann lagðist til svefns.
Hann vaknaði við englaheim-
sókn í dauðadeildina. Hlekkirnir
losnuðu og fangelsishliðið opn-
aðist vegna yfirnáttúrulegra at-
burða. Leyfðu mér að segja —
það er einmitt þetta líf sem þú
færð að reyna, ef þú lifir þig inn í
Guðs orð og breytir eftir þvi. Þú
ert barn þess Guðs sem hefur allt
vald í hendi sér.
Mig langar að reyna að skýra
nánar hvað það rnerkir að lifa í
Orðinu og breyta eftir leiðsögn
þess. Ég tek dæmi um það sem
við þekkjum öll, það eru áhyggj-
ur og óróleiki. Biblían talar mik-
ið um þessháttar reynslu. Ef við
eigum að lifa eftir Orðinu, þá
verðum við að vita hvað Biblían
segir um áhyggjur. En það er
ekki nóg. Við verðum einnig að
taka skýra viljaákvörðun um að
gera það sem Biblían segirokkur
að gera, þegar um áhyggjur og
óróleika mannsins er að ræða.
„Komið til min, allir þér sem
erfiði hafið og þungar byrðar, og
ég mun veita yður hvíld", segir
Jesús (Matteus 11:28). ,, Verið
ekki hugsjúkir um neitt, heldur
gjörið í öllum hlutum óskir yðar
kunnar Guði með bœn og beiðni
og þakkargjörð. Og friður Guðs,
sem er œðri öllum skilningi,
mun varðveita hjörtu yðar og
hugsanir yðar í Kristi Jesú“,
(Filippíbréf 4:6-7). Þegar þú
finnur að óróleiki og áhyggjur
setjast að í huga þínum, þá verð-
ur þú að gera eins og Orðið segir.
„ Vér brjótum niður hugsmiðar
og allt, sem hreykir sér gegn
þekkingunni á Guði, og hertök-
um hverja hugsun til lilýðni við
Krisl“, (II. Korintubréf 10:5).
Við tökum viljaákvörðun um að
beina hugsunum okkar inn á
þær brautir, sem Biblían kennir
að eigi við um aðstæður okkar,
og hlýðum þannig trúnni. Við
látum ekki kringumstæðurnar
stjórna hugsunum okkar og við-
brögðum. Ef við á þennan hátt
leggjum okkur, með áhyggjurnar
og kvíðann, alfarið í hendur
Guðs, þá fáum við að reyna að
friður Guðs, sem er æðri öllum
skilningi, mun varðveita hugs-
anir okkar og hjörtu í samfélag-
inu við Krist Jesúm.
Vinur minn, breyttu eftir
þessu!
Þá ert þú kominn inn á spenn-
andi og örugga ævibraut. Fyrir-
heitið og vissan um að „Jesús
Kristur er i gœr og í dag hinn
sami og um aldir“ kemur þér
sannarlega við!
Endir.