Afturelding - 01.09.1986, Page 27

Afturelding - 01.09.1986, Page 27
A Evrópumóti 1981 í Finnlandi enska og portúgalska, en allt efni er þýtt jafnóðum á fleiri mál, þar á meðal sænsku eða norsku. Eins og ævinlega er íjöldi söngvara, kóra og hljómsveita til staðar og margir ræðumenn taka til máls. Þeirra á meðal: Olof Djurfelt (Svíþjóð), Paul Wiever og Ray Bevan (England), Attila Fabian (Ungverjaland), Adolf Rutz og Jakob Zopfi (Sviss), Kai Antturi (Finnland), José Pessoa (Portúgal) og Van Ameron (Holland). Ahugi er fyrir því að efna til hópferðar frá íslandi á mótið. Ætlunin er að fara í a.m.k. Ueggja vikna ferð. Nokkrum tíma yrði varið til sólbaða og skoðunarferða og síðan viku á ■nótinu. Samkomur mótsins verða einkum á morgnana og kvöldin, ætlunin er að miðdegið verði til frjálsar ráðstöfunar. Portúgal er vinsælt ferðamannaland og gefst hér hjörið tækifæri til að verja sumarleyfinu á andlega uppbyggjandi hátt. Undirritaður hefur sótt nokkur alþjóðleg mót hvítasunnumanna og telur að fólk þurfi ekki að óttast tungumálaörðugleika. Þeirsem eitthvað gagn hafa af norðurlandamálum, ensku eða þýsku, geta auðveldlega fylgst með því sem fram fer. Þess utan er hið alþjóðlega samfélag trúaðra nokkuð, sem skilst fullkomlega, án lungumálakunnáttu. Æskilegt erað þeir, sem hafa áhuga á að fara í slíka ferð, gefi sig fram við undirritaðan hið fyrsta vegna nauðsynlegs undirbúnings. Guðni Einarsson, sími 91-20735/25155. Fulltrúar evrópskra hvitasunnumanna og portúgalska undirbún- ingsnefndin.

x

Afturelding

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.