Afturelding - 01.09.1986, Qupperneq 28

Afturelding - 01.09.1986, Qupperneq 28
503.590 safnaðar- meðlimir í Seoul Söfnuðurinn í Seoul er nú stærsti hvítasunnusöfnuðurinn í heimin- um, og hann vex stöðugt. Dr. Paul Yonggi Cho er forstöðumaður safn- aðarins. KS4286 15.000 djöfladýrkendur í Englandi. Djöfladýrkendum fer ijölgandi í Englandi. Nú eru 15.000 manns sem opinberlega játa þessa ,,trú“, og þeir hafa 30 samkomustaði út um allt landið. Sagt er frá þessu í UK Christian Handbook sem kom út nýlega. Múhameðstrúarmönn- um fjölgar einnig rnjög í landinu. Síðustu ár hafa kristnu kirkjurnar tapað hálfri milljón meðlima á meðan múhameðstrúarmönnum hefur fjölgað um 30%. KS4486 Hvaö segir Corazon Aquino um trúna á Guð? — Ég get ekki lifað án trúarinnar á Guð, segir hún. Hún segir einnig að erfiðleikar sem hún hafi lent í hafi hjálpað sér að öðlast enn meiri trú á Krist. Áður en hún bauð sig fram til forsetakjörs tók hún einn dag til bænahalds. Filippseyjar eru eina kristna landið í Asíu, flestir eru kaþólskir, en einnig er mikil vakning meðal mótmælenda. KS 4286 Erlendar fréttir Mikil trúboðsvakning í Mið- og Suður-Ameríku Á hverri klukkustund snúast 400 manns til lifandi kristinnar trúar í Mið- og Suður-Amcríku, og llestir gerast hvitasunnumenn. Sam- kvæmt nýjum athugunum tilheyrir nú áttundi hluti af 4I8 milljónum íbúa þessara landa mótmælcnda hópum. í Guatemala eru það 30% af þeim 6 milljónum sem þar búa. 1 Brasilíu, sem telst stærsta kaþólska landið í heiminum, álíta menn að nú séu fjórum sinnum lleiri for- stöðumenn mótmælenda og predik- arar en kaþólskir prestar. HV3686 Alheimsbænastund í ár fer alheimsbænastund út- varpsþáttarins Revivaltime fram þann 23. nóvember. Stór bæna- stund verður haldin í Bandaríkjun- um. Henni verður sjónvarpað um öll Bandaríkin, og auk þess verður henni útvarpað um allan heim, þangað sem Revival þátturinn nær á annað borð. Kjörorð samkom- unnar er: „Biðjið hver fyrir öðrum“ (Jak. 5:16). Talið er að meira en 120.000 manns muni taka þátt í bænastundinni út um allan heim. I fyrra voru þátttakendur 108.000 manns. KS4386 Líkur á krabbameini aukast við lauslæti Þetta sagði þýskur yfirlæknir á kristilegri ráðstefnu í Þýskalandi. Hann benti á að t.d. fengju nunnur sjaldnast leghálskrabbamein. Ef hins vegar er litið á hóp fórnar- lamba kvensjúkdóma, þá er krabbamein algengara hjá vændis- konum en öðrum sjúklingum. Þannig styðja vísindalegar rann- sóknir afstöðu Biblíunnar til laus- lætis. Pat Robertson ætlar í forsetakjör Hinn þekkti trúboði og sjón- varpsmaður Pat Robertson hefur ákveðið að bjóða sig fram til for- setakosninga í Bandaríkjunum haustið 1988. Hann hefur lengi áformað að reyna að taka við af Ronald Reagan í repúblikana- flokknum. KS4286 Stúdentamót í Hollandi Um jólin munu meira en 8.000 ungmenni allsstaðar að úr Evrópu safnast saman í Utrecht í Hollandi á stúdentamótið Mission ’87. Þetta verður fjórða slíka rnótið fyrir ungt fólk í Evrópu. MNS 1986 IBRA Radio vex fiskur um hrygg IBRA Radio, útvarpsstarf hvíta- sunnumanna í Skandinavíu er í örum vexti. Samkvæmt nýjustu fréttum eru útsendingar á 60 tungu- málum og sent er út frá 80 stöðum víða um heim. IBRA á 47 hljóðver og útsendingarnar ná til meira en 100 landa. Talið er að 600 manns taki beinan þátt í starfseminni. Út- sendingar IBRA Radio ná til svæða þar sem búa alls 3,2 milljarðar manna. HV4086 KS3886

x

Afturelding

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.