Afturelding - 01.09.1986, Blaðsíða 29
L.P. Stofnunin kaupir
stærsta meöferðar-
heimili Svíþjóðar
Lewi Pethrus stofnunin er nú að
kaupa Ásbrohemmet, sem er
stærsta meðferðarheimili fyrir of-
drykkjumenn í Svíþjóð. Eigninni
tilheyra m.a. um 70 byggingar, tré-
smíðaverkstæði og vélaverkstæði,
375 hektarar akra og skóga, einnig
húsdýr, áhöld og vélar fyrir um-
fangsmikinn búskap.
HV3686
TV-lnter tekur í notkun
myndver í Stokkhólmi
I september var vígt nýtt
myndver norræna sjónvarpsfélags-
ins TV-Inter í Stokkhólmi. Mynd-
verið er einkum ætlað til eftir-
vinnslu efnis, sem safnað er með
fullkomnum upptökuvögnum
víðsvegar í Evrópu. Við vígsluna
fullyrti fulltrúi Ampex fyrirtækisins
að þetta væri fullkomnasta
myndver til framleiðslu sjónvarps-
efnis, sem til væri í Evrópu.
Kirkjuleiðtogar flytjast
frá Hong Kong
Það er greinilegt að sífelll fleiri
kirkjuleiðtogar flytjast frá Hong
Kong til Vesturlanda eftir að samn-
ingar tókust milli Kína og Bret-
lands um að Kína taki við nýlend-
unni 1997. Þeir sem flytjast eru
m.a. forstöðumenn safnaða, prest-
ar, stjórnendur stofnana utan kirkj-
unnar, leiðtogar úr hópi leik-
manna, læknar, Iögfræðingar, véi-
virkjar og viðskiptamenn. Flestir
þeirra eru giftir, á aldrinum 30 til
60 ára. Ástæður brottflutningsins
eru m.a. þær að framtíðin er óviss.
Sumir kirkjuleiðtogar sjá ekki fram
á að geta haldið áfram starfi sínu
eftir 1997, svo þeir llytja til þess að
geta haldið áfram að vinna verk
Guðs.
MNS 1786
Ungt fólk frelsast á
Graenlandi
I sumar átti sér stað sögulegur at-
burður á Grænlandi, trúboðarnir
bar héldu sitt fyrsta landsmót í júní.
Mikil bjartsýni ríkir meðal þeirra,
°8 þeir trúa að mikil vakning standi
fyrir dyrum. Unga fólkið er mjög
áhugasamt við að lesa Biblíuna,
biðja og segja öðrum frá því sem
það hefur fundið. Þau vantar starfs-
fólk, og fyrirbiðjendur og segjast
hlakka til að taka á móti þeim sem
vita að þeir hafa köllun til að fara
til Grænlands.
KS3986
Stjörnuspeki og
vísindum ber ekki saman
Standast stjörnuspár nákvæmt
próf vísindanna? Rannsóknir raun-
vísindadeildar háskólans í Berkeley
í Kaliforníu svara þessari spurn-
ingu neitandi. Ekkert kom fram
sem benti til þess að stjörnur hefðu
áhrif á persónuleika fólks á þann
hátt sem stjörnuspekingar halda
fram. Niðurstöður rannsóknarinn-
ar birtust í enska tímaritinu Nature.
Gerðar voru stjörnuspár (þ.e.a.s.
persónuleikalýsingar) 128 einstakl-
inga og álíka viðmiðunarhóps, og
þær bornar saman við útkomur á
sálfræðilegu persónuleikaprófi. Til
þess að sanna gildi stjörnuspárinnar
þurfti helmingi persónuleikalýsing-
anna að bera saman. En það reynd-
ist einungis vera einn þriðji, sem
sýnir að stjörnuspekin er gervivís-
indi. Sama niðurstaða hafði áður
fengist úr annarri rannsókn.
HV4186