Afturelding - 01.09.1986, Side 31
grein fyrir kristniboðsstarfi með
kvikmyndum. Allt frá upphafi
vissum við að ferðin yrði bæði
andlega og líkamlega erfið. En
við fengum orð frá Drottni í far-
arbyrjun: „Sjá ég sendi engil
minn á undan þér og hann mun
greiða veg þinn.“
Við fengum svo sannarlega að
finna fyrir tilvist engilsins. Oft í
mynd manna sem komu í veg
okkar á réttri stundu og stað.
Áður en við héldum af stað
létum við bólusetja okkur og
fengum margar sprautur. Við
vorum á heimleið úr slíkum
leiðangri. Fimm sekúndum áður
en við stigum inn um hliðið
heima kom ungur maður fyrir
hornið, læknirsem við þekkjum.
— Svo þið eruð enn í Sví-
þjóð? Ég hélt að þið væruð kom-
in til Indlands . . . Fenguð þið
vegabréfsáritun?
— Hvað áttu við, það þarf
ekki áritun til Indlands, hafi
maður sænskt vegabréf.
— Jú, það breyttist eftir
morðið á Indiru Gandhi, nú
þurfa allir áritun.
Okkur lá lífið á að komast í
indverska sendiráðið. Klukkan
var þegar orðin hálftvö á föstu-
dagseftirmiðdegi og við vorum
bókuð í flug á sunnudagsmorgn-
inum. Þrátt fyrir að eiginlega
væri búið að loka sendiráðinu og
venjulega tæki tvær vikur að af-
greiða vegabréfsáritanir vorum
við búin að fá áritun klukkan
þrjú sama dag. Án áritunarinnar
hefðum við lent í vandræðum í
Indlandi.
Eftir að hafa heinrsótt tíu fylki
á Indlandi ætluðum við til Sri
Lanka. Indverskir og amerískir
vinir okkar réðu okkur frá því,
sögðu þar ríkja borgarastyrjöld.
En við höfðum beðið yfir mál-
inu og vorum fullviss um að við
ættum að halda áætlun.
Slitin símalína
Við ætluðum að halda upp frá
Madras í suðurhluta Indlands.
En fyrst urðunt við að ná sam-
bandi við kristniboðana, sem við
ætluðum að heintsækja. Ég fór
snemma nrorguns og pantaði
símtal, en var sagt fljótlega að
ekki næðist samband vegna bil-
unar. Ég vildi ekki afpanta sam-
talið, því það var tilgangslaust
að leggja af stað fyrr en einhverj-
ir væru til að taka á móti okkur.
Klukkan hálf átta um kvöldið
fengurn við loks samband. Við
heyrðum undrandi rödd við
hinn enda línunnar:
— Hvernig náðuð þið sam-
Hvítasunnstarfið
Frh. af bls. 15
Sjómannastarfinu í Reykjavík
lið, við að dreifa út blöðurn og
smáritum til erlendra ferða-
manna sem koma til landsins
með skemmtiferðarskipum.
Þetta er vaxandi trúboðsakur
sem vert er að gefa gaum að.
Þegar þetta er ritað Standa fyr-
ir dyrum viðamiklar endurbætur
og lagfæringar á safnaðarhúsinu
að utan því það er komið nokk-
uð til ára sinna. Á þessum tíma-
móturn viljum við færa þakkir
öllum sem lagt hafa hönd á plóg-
inn í starfinu á Selfossi og biðj-
um Drottin að blessa þá ríku-
lega.
bandi? Við höfurn ekki fengið
sínrhringingu í þrjár vikur! En
við komum á morgun á flugvöll-
inn og tökum á móti ykkur.
Þetta símtal varð vinsælt um-
ræðuefni í heimsókn okkar á Sri
Lanka, því eftir það hringdi eng-
inn og ekki þýddi að hringja
þaðan. Einhversagði:
— Það er ljóst að engill ykkar
hefur verið úti í frumskóginuni
og tengt þræðina saman til að
símtal ykkar næði alla leið.
Hví ekki? Guði og englum
hans, sendiboðum og hjálpur-
unr, er ekkert ómögulegt!
EH 18/19 1986
— stytt í þýðingu.
,,Guði séu þakkir sem gefur
oss sigurinn fyrir Drottin vorn
Jesúm Krist!"
Hallgrímur S. Guðmannsson
Sketjungur h.f.
687800
Enfcaufnboó
Barnfóstra óskast
Barngóð kona óskast til að
gæta 5 ára telpu, sólarhrings-
pössun, u.þ.b. 15 daga i
mánuði. Bý i Teigahverfi, upp-
lýsingar i sima 91-39815.
AFTURELDING
53. árgangur4, —5. tbl. 1986
Útgefandi: Filadelfia-Forlag, Hátúni 2,105 Reykjavik.
Sími: 91-20735/25155. Ritstjóri og ábyrgöarmaöur: Einar J.
Gislason, simi 91-21111. Setning og prentun: Prentstofa G.
Benediktssonar. Uppsagnir miöast viö áramót. Vinsamlegast til-
kynniö breytingar á heimilisföngum og áskriftum til skrifstofunn-
ar. Árgjaldið er 650 krónur.