Afturelding - 01.12.1986, Page 8

Afturelding - 01.12.1986, Page 8
ALFA FM 102£ Kristileg útvarpsstöð í fyrsta skipti á íslandi er nú starfrækt útvarpsstöð, sem flytur eingöngu kristilegt efni. Út- varpsstjóri er Eiríkur Sigur- björnsson. Við spurðum Eirík um kveikjuna að þessari starf- semi. „Þetta er gamall draumur. Fyrir íjórum árum hóaði ég sam- an nokkrum bjartsýnismönnum með það í huga að stofna út- varpsstöð og sjónvarpsstöð, sem mundu þjóna þeim tilgangi að ná með fagnaðarerindið til þjóð- arinnar. En þá var fjarstæða að hugsa sér að leyfi yrði gefið fyrir slíkri stöð. Við vorum saman komnir í turnherberginu á Hótel Borg, og báðum um það að út- varpsrekstur yrði gefinn frjáls. Síðan þreifuðum við okkur áfram, og nú hefur okkur tekist að koma af stað útvarpsstöð, sem hefur með höndum út- breiðslu fagnaðarerindisins. Á bak við tjöldin er mikið stríð, samanber það sem stendur í Efesus 6:10-12, að baráttan er við ill öfl sem vilja brjóta þetta Eiríkur Sigurbjörnsson útvarpsstjóri niður á allan hátt. En fyrir bænir trúaðs fólks fær stöðin varð- veislu gegn illum árásum. Það er trú mín að með þessari útbreiðslu nái orð Guðs til allra, bæði ríkra og fátækra. Fólk hefur talað við mig gegn- um síma og lagt inn bænarefni, og sumir hafa verið í mikilli neyð. Þetta sýnir að stöðin er þegar farin að skila árangri. T.d. hringdi ungur maður og sagðist hafa verið að fikta í útvarpinu sínu, og komið inn á stöðina okkar. Hann sagði að boðskap- urinn sem hann heyrði þar hefði breytt lífi sínu. Að lokum vil ég þakka öllu

x

Afturelding

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.