Afturelding - 01.12.1986, Page 14

Afturelding - 01.12.1986, Page 14
Snorri Óskarsson Ritað í hjörtu mannanna? Ég trúi því að Guð hafi gefið okkur rétt til að veiða dýr okkur til lífsviðurværis. Afkoma ís- lendinga grundvallast á veiðum og þaðan streymir lífsviðurværi okkar. En veiðar eru háðar lög- málum og þau setja okkur skorður, landamæri svo dýrin njóti verndar. í Vestmannaeyjum eru hinar ýmsu veiðar stundaðar og kemur þar til lega þeirra og fjölbreytt dýralíf. En hvað veldur því að menn setja sér reglur og hafa óskráð lög gagnvart nýtingu og veiðum? Um allan heim fara menn eftir einhverjum reglum varðandi nýtingu dýrastofnanna. Það eru aðeins veiðiþjófar eða eiginhagsmunaseggir sem vilja veiða takmarkalaust og án tillits til nokkurs nema gróðasjónar- miðs. Lundinn er veiddur í þús- undatali, en samt fjölgar honum. Við rænum hann ekki eggjum og nýtum ekki pysjuna, þótt hún komi í hundraðatali á götur bæjarins í ágúst og september. Nei, við sleppum pysjunni og leyfum henni að vaxa. Öðru máli gegnir um fýlinn. Við rænum hann eggjum og tök- um ungann þegar hann situr á sjónum, en fullorðni fuglinn er látinn í friði. Við sjáum langan slóða af fýlageri elta bátana þeg- ar á aðgerð stendur en það reynir enginn að veiða fýl til matar. Svo má nefna svartfuglinn. Hann er veiddur sem fullorðinn fugl að vetrarlagi og rændur eggj- um á vorin, en unginn er alger- lega friðaður. Hvað skyldi valda þessum hætti á mismunandi nýtingu fuglanna? Jú, hefðin er þar ríkur þáttur, hagkvæmni má einnig nefna. En heldur þú að það sé tilviljun að í fimmtu Mósebók, tuttugasta og öðrum kalla, vers- unum sex til sjö séu lögð boð fyr- ir manninn um nýtingu dýr- anna? Þar er svo frá sagt: „Ef

x

Afturelding

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.