Afturelding - 01.12.1986, Qupperneq 20
flMBMDfflS
Sovéskur liðsforingi gerist kristinn
Ungur maður var neyddur
til að ganga í sovéska herinn.
í persónuskilríkjum hans
stóð stimplað orðið ,,bapt-
isti“. Háttsettum liðsforingja
varfalið það hlulverk að snúa
honum til kommúnisma.
Skömmu síðar var ungi mað-
urinn kallaður fyrir til viðtals.
Hann hafði undirbúið sig
með bœn fyrir þessa stund og
strax ogfyrsta spurningin var
lögð fyrir hann, byrjaði hann
að vitna um trú sína. Andi
Guðs tók að starfa á hjarta
liðsforingjans og í fjórar
klukkustundir hlýddi hann á
hinn djarfa vitnisburð her-
mannsins.
„Hefurðu Biblíu,“ spurði liðs-
foringinn að síðustu. „Nei“, var
svarið. „En ef þú vilt gjarnan
eignast hana skal ég skrifa til
föður míns og biðja hann að
útvega hana.“ Biblían kom og
eftir því sem liðsforinginn sökkti
sér meira niður í hana, því
áhugasamari varð hann. Dag
einn spurði liðsforinginn hvort
það væri mögulegt að hann fengi
að heimsækja föður unga
mannsins. Það varauðsótt mál.
Liðsforinginn, eiginkona hans
og einn sonur þeirra, sem einnig
var í hernum, tóku sér viku frí til
að dvelja hjá þessari kristnu
íjölskyldu. Það var í fyrsta sinn
sem þau fyrirhittu lifandi trúað
kristið fólk. Þarna var lesið í
Biblíunni og alla vikuna rætt um
andleg mál uns brottfarardagur-
inn rann upp. Þegar lokasamtal-
ið féll síðasta kvöldið, gaf liðs-
foringinn og fjölskylda hans
Guði líf sitt. Þetta var nútima
endurtekning á 10. kafla Post-
ulasögunnar um afturhvarf
Korneliusar - rómverska liðsfor-
ingjans.
Eftir þetta lögðu liðsforinginn
og sonur hans leið sína á
flokksskrifstofuna þar sem þeir
skiluðu til baka flokksskírtein-
um sínum. „Við getum ekki ver-
ið kommúnistar lengur því við
höfum tekið kristna trú,“ sögðu
þeir. Sonurinn sem var lautinant
að tign í hernum var umsvifa-
laust settur af, en faðirinn, sem
bar hærri tignarstöðu, var vikið
frá herþjónustu um stundarsak-
ir.
Þessari dásamlegu frásögu er
þó þar með ekki lokið. Dag
nokkurn fékk þessi nýendur-
fæddi liðsforingi bréf frá öðrum
syni sínum, sem einnig gengdi
herþjónustu í Rauða hernum á
Ijarlægum slóðum. Þessi sonur
hans hafði ekki minnstu hug-
mynd um það sem gerst hafði í
lífi foreldra hans og bróður.
Með mikilli undrun las íjöl-
skyldan bréfið sem var sent frá
austasta og fjarlægasta hluta
Sovétríkjanna.
„Kæru foreldrar!
Undursamlegir hlutir hafa
gerst í lífi mínu. Ég veit ekki
hvernig á að útskýra það. Ég les
daglega í Biblíunni og Guð hefur
komið inn í líf mitt.“
Þarna hafði Guð einnig átt
sinn þjón sem hafði líka vitnað
um trú sína fyrir þessum unga
hermanni. Þar með hafði öll
fjölskyldan snúist til trúar á Jesú
Krist.
Þessi frásaga er sönn í öllum
atriðum. Kristinn sendiboði frá
Vestur-Evrópu hefur hitt þenn-
an umrædda liðsforingja í eigin
persónu og heyrt hann greina frá
lífsreynslu sinni í kristnum söfn-
uði.
Þýtt HG/Dansk
Europamission febrúar 1986