Afturelding - 01.12.1986, Blaðsíða 25
2
Þegar Páll postuli
sótti um vist á
trúboðaskólanum
Hvernig myndi forstööumaður
trúboðaskóla bregðast við umsókn
Páls postula?
Hr. Saulus Paulus,
Lausráðinn trúboði,
Korintu, Grikklandi.
Kœri herra Páll!
Við fengum nýlega umsókn
þína um nám undir okkar leið-
sögn. Það hefur alltaf venja hjá
okkur að svara umsækjendum
hreinskilnislega og opinskátt.
I hreinskilni sagt crum við
undrandi að þú skulir yfirleitt
hafa getað unnið þér traust sem
trúboði. Sagt er að þú þjáist af
alvarlegum augnsjúkdómi. Það
er að sjálfsögðu óyfirstíganleg
hindrun til áhrifaríkrar þjón-
ustu. Stjórn skólans okkar krefst
6/6 á báðum augum allra um-
sækjenda okkar.
Er það satt að þú hafir setið í
fangelsi? Sumir segja að þú hafir
setið inni í u.þ.b. tvö ár í Ses-
areu, og einnig setið í fangelsi í
^óm. Þú ert einnig ásakaður um
hafa móðgað helstu menn
viðskiptalífsins í Efesus svo
heiftarlega að þeir kalla þig
»rnanninn sem setti allt á annan
endann.“
Við höfum enga þörf fyrir
menn sem þjást af slíku sýndar-
mennskubrjálæði, og við vorum
hreint ekki hrifnir af þessu
smekklausa „yfir múrinn í
körfu" atriði í Damaskus, sem
lengi verður í minnum haft.
Algjör skortur þinn á þeim
næmleika, sem sendimenn þurfa
að hafa veldur okkur óróa.
Sendifulltrúar láta það ekki
henda sig að vera grýttir, eða
sofa fyrir utan borgarhliðin. Hef-
ur þér aldrei dottið í hug að
mildari tjáningarmáti gæti aflað
þér vina? Við sendum þér hér
ineð bókina frá Daleios Carne-
gus “Aðferðin til að vinna Gyð-
inga og hafa áhrif á Grikki,“ í
von um að hún geti orðið þér til
hjálpar.
Þjónusta þín ber vott um allt
of mikinn óstöðugleika: Fyrst ert
þú í Litlu Asíu, síðan í Make-
dóníu, svo á Ítalíu, og nú hefur
þú uppi tilgangslausar áætlanir
um að koma til Spánar. Mikil-
vægara er að einbeita kröftum
sínum en dreifa þeim. Þú verður
að skilja að þú einn getur ekki
unnið allan heiminn. Þú ert
aðeins einn lítill Páll.
Dr. Lúkas segir okkur svo frá
að þú sért lítill, sköllóttur, oft
veikur, og að þú sofir illa á nótt-
unni vegna þess að þú hafir svo
miklar áhyggjur af litlu söfnuð-
unum þínum. Hann segir okkur
líka að þú gangir um eirðarlaus á
kvöldin og biðjir hálfa nóttina.
Heilbrigð sál í hraustum líkama
er eiginleiki sem við krefjumst af
öllum umsækjendum okkar.
Til Tímóteusar skrifaðir þú:
„Ég hef barist hinni góðu bar-
áttu. . . .“ Við sendum enga trú-
boða í „bardaga.“ Jesús kom til
þess að flytja frið. Þú hrósar þér
af því að hafa „barist við villidýr
í Efesus." Hvað í ósköpunum
áttu við?
Okkur þykir það leitt, bróðir
Páll! Því miður höfum við ekki
not fyrir þig. Ef við tækjum við
þér brytum við þær starfsreglur,
sem gilda fyrir sérhvert félag sem
vinnurað utanlandstrúboði.
Kœr kveðja,
Logikos Rationalis
formadur
Udf.4886, - ÞýttGM