Afturelding - 01.12.1986, Síða 30
Fornleifafundir í
Landinu helga
Nýir fornleifafundir eru aó
varpa Ijósi á atburói i Gamla
og Nýja testamentinu, og
auka áhuga á uppgreftri.
Þrátt fyrir bardaga, stjórn-
málasamsæri og trúarbragða-
deilur flykkjast fornleifafræðing-
ar til Landsins helga og eru að
uppgötva mikilvægar og óvænt-
ar staðreyndir og vísbcndingar
varðandi atburði sem sagt er frá í
Biblíunni.
Eftirfarandi uppgötvanir eru
helstar:
Staðurinn sem gyðingar telja
helgastan; musterið horfna sem
Salómon konungur í Jerúsal-
em byggði fyrir næstum 3.000
árum.
Sannanir fyrir för ísraels-
manna frá Egyptalandi til Fyrir-
heitna landsins, og ný túlkun
á 4.000 ára gömlum rústum
hinnarfornu Jeríkóborgar.
Húsið í Kapernaum í Galilcu
þar sem sagt er að Pctur postuli
hafi búið og að Jesús hafi gert
kraftaverk.
Uppgötvanir sem þessar hafa
vakið gífurlegan áhuga bæði al-
mennings og fræðimanna á forn-
leifafræði Biblíunnar. Lciðsögu-
menn hjálpa ferðamönnum að
rannsaka forn stræti, sjávarhclla
og eyðimerkurhauga, af hverjum
eru til svo margar eftirlíkingar
frá tímum konunga og spá-
manna Biblíunnar.
Á meðan eru fræðimenn að
safna fé til þess að hefja uppgröft
að nýju eða bjarga eldri upp-
greftri frá skemmdarverkum og
veðrun. Margir vísindamenn eru
að safna sjálfboðaliðum til að
grafa, sem fá vinnu sína metna
til náms.
Nýjasta uppgötvunin eru rúst-
ir 27 feta altars, sem fornleifa-
fræðingarnir segja að Jósúa gæti
hafa byggt. Hann varð leiðtogi
ísraelsmanna á eftir Móse og
sigraði Jeríkó, eftir því sem segir
í Biblíunni. Hin3.100 áragamla
bygging — á toppi Ijallsins Ebal
nálægt borginni Nablus á Vest-
urbakkanum — bcr merki
kindabeina og hugsanlega
blóðbletta frá dýrafórnum.
J