Alþýðublað Hafnarfjarðar


Alþýðublað Hafnarfjarðar - 23.03.1956, Side 1

Alþýðublað Hafnarfjarðar - 23.03.1956, Side 1
F.U.J.-félagrar! flunið árshálftíiiia Sjá auglýsingu inn í blaðinu. \H\Æ\f Æ\m IF JJ AIHHD AR XV. ÁRGANGUR HAFNARFIRÐI, 23. MARZ 1956 5. TÖLUBLAÐ Stefnumál Alþýðuflokksins i framkvæmd Að hálfnuðu kjörtímabili er Alþýðuflokkurinn á góðri leið með að efna fyrirheit sín fyrir síðustu bæjarstjórnarkosningarnar Fyrir síðuslu bæjarsljórnarkosningar hét Alþýðuílokkurinn m. a. að beila sér íyrir byggingu fiskiðjuvers á vegum Bæjarútgerðarinnar, endurbótum á gatnakerfinu, aðgerðum í húsnæðismálum, byggingu íþróttahúss og bókasafns og áframhaldandi hafnargerð. fisfííðjuvers Á síðastliðnu kjörtímabili jók Bæjarútgerðin skipastól sinn um tvo nýsköpunartogara og bætti stórlega aðstöðu sína í lancli til saltfiskverkunar og fiskherzlu með byggingu fiskþurrkúnar- liúss, harðfiskgeymslna og fjölda nýrra fiskhjalla. En -Alþýðu- flokksmenn vildu ekki láta þar við sitja. Fyrir síðustu bæjar- stjórnarkosningar hétu þeir því, að Bæjarútgerðin eignaðist eig- ið fiskiðjuver, svo að aðstaða skapaðist til vinnslu aflans í landi. I þessu skyni tryggðu þeir Bæjarútgerðinni yfirráð yfir Akurgerðiseigninni, en þar eru hin ákjósanlegustu skilyrði fyrir starfsemi slíks fyrirtækis. Þrátt fyrir mikla örðugleika hefur þessu máli miðað svo vel áfram, að fálið er að hægt verði að hef ja starfrækslu í húsinu á síðari hluta þessa árs, hamli veður ekki að ráði byggingarframkvæmd- um það sem eftir er vetrar. Það er fullkomin ástæða fyrir verkafólk bæjarins að fagna yf- ir, hve vel þessu mikla hagý- munamáli þess hefur reitt af. Með byggingu þessari er stigið stórt skref í átt til aukinnar at- vinnu og bættra afkomumögu- leika alls verkafólks í bænum. Qmnngerð o. fl. Á s. 1. tveim áium var úthlutað 215 byggingar- lóðum, lagðir voru 1900 m. aí vatns- og holræsa- lögnum, gerðir 1200 m. af nýjum götum og malbik- aður 600 m. langur kafli af aðalumferðargötum bæjarins. Á siðustu árum hefur bærinn stækkað óðfluga. Byggzt hafa á skömmum tíma heil bæjarhverfi. Þessi þróun hefur lialdið áfram af fullum krafti síðustu tvö árin. Á árinu ’54 voru 110 hús í bygg- ingu með 154 íbúðum, en árið ’55 voru þau hvorki meira né minna en 126 með .samtals 196 íbúðmn. Á sama tíma voru veitt- ar 215 byggingarlóðir. Bærinn hefur lagt sig fram við að full- nægja eftirspurn eftir lóðum, og reynt að fremsta megni að mæta þörfum þeirra, sem í byggingu standa með gerð nýrra gatna, vatnsveitu- og holræsalögnum. Allar liafa þessar framkvæmdir kostað gífurlegt fé og það því fremur, að gatnagerð mun hvergi á landinu jafn-örðug vegna hraunsins, sem bærinn er byggður á. Vafasamt er, að nokkurt bæjarfélag liafi á und- anförnum árum lagt fram meira fé hlutfallslega til þessara mála og sýnt betri árangur, þegar miðað er við allar aðstæður. Á s. 1. tveim árum voru lagðir | um 1900 m. af vatns- og liolræsa- lögnum og gerðir 1200 m. af nýjum götum. Gerð gatna úr varanlegu efni hafði á undanförnum árum set- ið á hakanum vegna ýmissa fjár- frekra stórframkvæmda, er bær- inn stóð í s. s. vatnsveitu úr Kald- árbotnum, byggingar Sólvangs, hafnarmannvirkja o. fl. o. fl. Þess vegna taldi Alþýðuflokkur- inn það eitt af höfuðverkefnum líðandi kjörtímabils að gera var- anlegt slitlag á aðalumferðagöt- ur bæjarins og þá fyrst og fremst Strandgötu og Reykjavíkurveg- ar. Á síðastliðnu ári voru malbik- aðir um 600 m. langir kaflar af þessum götum, 415 m. af Strand- götunni og 180 m. af Reykjavík- urveg. Eins og allir vita og liafa daglega fyrir augunum, hefur flokkurinn staðið við heit sín í| þessu efni og mun kosta kapps um, að þessum framkvæmdum verði haldið áfram. Húsnœdismól Sambýlishúsið vænt- anlega fullbyggt á þessu ári. Alþýðuflokkurinn hefur jafn- an látið mikið til sín taka um úr- bætur á húsakosti alþýðunnar við sjávarsíðuna. Orækasta sönn- un þess er lagasetningin um verkamannabústaði og fram- kvæmd þeirra mála. Fyrir ötula forgöngu ýmsra Alþýðuflokks- manna hafa risið af grunni fleiri verkamannabústaðir hér í bæn- um en í nokkrum öðrum kaup- stað á landinu miðað við fólks- fjölda. Bæjarstjórnin, undir forystu Alþýðuflokksins, hefur á marg- víslegan hátt bætt úr þörfum fólks, sem er á hrakhólum með húsnæði. Bærinn hefur keypt húseignir hingað og þangað um bæinn, sem síðan hafa verið leigðar út til fólks í hús- næðisvandræðum. I því sam- bandi má nefna, að húseignin Austurgata 26 var keypt í þessu skyni á yfirstandandi kjörtíma- bili. Þá hefur bærinn — meira en nokkurt annað bæjarfélag — gengið í ábyrgð fyrir lánum lijá fjölmörgum einstaklingum, sem brotizt hafa í að koma sér upp þaki yfir höfuðið. Sá stuðningur hefur riðið baggamuninn hjá mörgum og gert mönnum kleift að konxa áformum sínum í fram- kvæmd. Á undanförnum árum hefur hér verið starfandi lnisnæðis- nefnd á vegum bæjarins. Nefnd | þessi hefur veitt mörguin hús- næðisleysingjanum ómetanlega fvrirgreiðslu. Formaður þessar- ar nefndar í f jölda ára hefur ver- ið Guðmundur Gissurarson bæj- arfulltrúi, en núverandi formað- ur hennar er Þórður Þórðarson verkstjóri. En þrátt fyrir þá aðstoð, er að framan greinir, hafa verið hér stöðug húsnæðisvandræði vegna hinnar öru fólksfjölgunar í bæn- um. Alþýðuflokkurinn hafði á stefnuskrá sinni fyrir síðustu bæj arstjórnarkosningar, að bærinn hefði forgöngu um byggingu ódýrra og hagkvæmra íbúða í stórri íbúðarsamstæðu, sem síð- an yrðu seldar eða leigðar eftir atvikum. Húsnæðisnefnd hafði þá um nokkurt skeið haft undir- búning málsins með höndum. Árangurinn er þegar kominn í ljós. Risið er af grunni, sunnan við Ásbúð, stórt og myndarlegt hús með tólf íbúðum, og verður húsið væntanlega fullbyggt á þessu ári. Bæ'rinn hefur haft með höndum framkvæmd byggingar- innar, en að öðru leyti lxefur mál- ið fyrst og fremst verið í hönd- um húsnæðisnefndar. Á þennan hátt hefur fólki gefizt kostur á góðum íbúðum með hagkvæm- um kjörum. Ibúðirnar hafa þeg- ar verið seldar með kostnaðar- verði. Þess er að vænta, að áfram verið haldið á þessari braut. fþróttahúsið Ef ekki stæði á fjárfest- ingarleyti, gæti bygging þess hafizt nú þegar. Á síðasta kjörtímabili var lok- ið við yfii'byggingu sundlaugar- innar og þar með náð merkum áfanga í byggingu íþróttamann- virkja í bænum. En Alþýðu- flokknum var og er ljóst, að þrátt fyrir þennan áfanga er enn mikið ógert til þess, að aðstaða til íþróttaiðkana sé viðunandi. Flokkurinn hét því fyrir síðustu bæjarstjórnarkosningar að vinna að byggingu fullkomins íþrótta- húss og jafnliliða undirbúa byggingu íþróttaleikvangs. Af hálfu bæjarins er ekkert því til fvrirstöðu, að byggingarframkv. hefjist nú þegar. Bærinn hefur keypt lóð undir húsið fyrir 100 þús. kr. — Grundarlóðina við Austurgötu — og þar með hefur húsinu verið ákveðinn staður. Peningar eru í sjóði til byrjunar- framkvæmda og öllum teikning- um svo til lokið. Aðeins stendur nú á fjárfestingai'leyfi frá stjórn- arvöldunum, en öllum er liulið hvenær þeim aðilum þóknast að veita það. Málin standa því þannig, að jafnskjótt og stjómar- völdin veita fjárfestingarleyfi, verður byrjað á byggingarfram- kvæmdum. Það er því ekki sök bæjaryfirvaldanna, að byggingin hefur enn ekki hafizt, heldur ríkisvaldsins. Hafnfirzkir íþróttamenn hafa mikinn áhuga fyrir þessari fram- kværnd sem eðlilegt er. enda mun hún gerbreyta allri aðstöðu þeirra til íþróttaiðkana. Þeirra verkefni er því fyrst og fremst það, að vinna ötullega að þessu máli og láta stjórnarvöldin eng- an frið hafa, fyrr en fjárfesting- arleyfi er fengið og málið þannig kornið á öruggan rekspöl. SóUnsafnið Gert er ráð fyrir, að húsið komist undir þak fyrir haustið. Fyrir síðustu bæjarstjórnar- kosningar var að mestu lokið við teikningu af væntanlegu bóka- safnshúsi. Húsinu hafði verið valinn staður miðsvæðis í bæn- um við fremur kyrrláta götu, Mjósundið. Einnig liafði verið byrjað á að grafa fyrir grunni hússins. En stjórnarvöldin synj- uðu þá um fjárfestingarleyfi, svo (Framhald á bJs. 4)

x

Alþýðublað Hafnarfjarðar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublað Hafnarfjarðar
https://timarit.is/publication/411

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.