Alþýðublað Hafnarfjarðar - 20.06.1956, Blaðsíða 1
Hafnfirðingar!
EMIL JÓNSSON
skal á þing.
ALÞYÐ UBLAD
Alþýðuflokksfólk!
Leggið ijkkar skerf
í kosningasjóðinn.
IHIAvlF FMA.IRI IF JJ AIR
XV. ÁRGANGUR
HAFNARFIRÐI, 20. JUNI 1956
12. TÖLUBLAÐ
TDómur reynzlunnar:
S jálfstæðisflokksforystan hér í bæ seldi s jáli ri
sér eignir, sem allir bæjarbnar áttn tilkail
tU, og hagnaðist ólöglega nm kr. 684 þns.
Hvaðii réttsýnu, liugsandi Hafufirðliigrui* grctui* eftir doiniun í Lýsi og: tljjöl-
■milinu falið Ingrdlfi Flygrenriug* forsjá niala sinna a Alþingri Islendingfa?
Kjörorð Sjálfstæðisflokksins:
Fyrst einkahagsmunir, þá flokkshagsmunir, en síðast
þjóðarhagsmunir. Þannig túlkaði Ólafur Thors stefnu íhalds-
ins á síðasta landsfundi SjáLEstæðisflokksins.
Breytni Flygenrings:
Keypti í þágu sinna einkahagsmuna ólöglega hluta-
bréfin margumtöluðu í Lýsi & Mjöl h. f. Fékk þau gegn
víxli á nafnverði. Bréfin hafa verið metin af óvilhöllum
mönnum á þrefalt hærra verði. Hagnaður hans á einni
kvöldstund varð því kr. 100 þúsund!
Fyrir réttinum óskaði Flygenring, sem var trúnaðar-
maður bæjarbúa í varastjórn Lýsi & Mjöl h. f., eftir eft-
irfarandi bókun í réttarbókina : ,,Vitnið (þ. e. Ingólfur
Flygenring) óskar að taka fram, að það meðal annars með
þessum kaupum (þ. e. hlutabréfakaupunum) vildi sporna
við yfirgangi áf hálfu bæjarsjóðs og forráðamanna bæjar-
sjóðs í félaginu, sem vildu ná undirtökum í því.“
Hver þarf að efast um hug Flygenrings til almanna-
hagsmuna eftir þennan skýlausa vitnisburð hans?
Talandi tákn:
Allir þekkja eðli ránfuglsins.
Finnst ykkur óeðlilegt, að Sjálf-
stæðisflokkurinn hefir sjálfur val-
ið sér slíkt tákn? Finnst
þér samboðið réttlætistil-
finningu þinni að kjósa
Flygenring?
Hlutabréfabrask íhaldsins í Lýsi og Mjöl,
athafnir í anda stefnu Sjálfstæðisflokksins:
Lýsi & Mjöl h.f. er fyrirtæki, sem að meiru en hálfu var
eign Hafnarfjarðarbæjar og þar með allra bæjarbúa. í helgi
gamlárskvöldsins 1952 misnotuðu Sjálfstæðismenn meirihluta-
aðstöðu sína í stjórn félagsins til að selja sér og sínum fyrirtækj-
um án heimildar, óráðstöfuð hlutabréf félagsins til að reyna að
rýra hlut bæjarins í félaginu og ná þar meirihluta hlutafjárins.
Dómur réttarins féll á þá lund, að hlutabréfakaupin voru ógild
talin. Fullir örvæntingar áfrýjuðu íhaldsmennirnir málinu til
Hæstaréttar, líklegast til að friða hjörðina fyrir kosningar. En
um niðurstöðuna í Hæstarétti efast enginn, sem málið þekkir.
Auk Flygenrings koma mest við sögu í Lýsi og Mjöl málinu
tveir efstu mennirnir á stuðningslista IngóLEs Flygenrings í kosn-
ingunum 24. júní n. k., þeir Jón Gíslason og Stefán Jónsson, báð-
ir bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hér í bæ. Jón Gíslason
keypti umrætt gamlárskvöld og seldi sjálfum sér hlutabréf fyrir
kr. 267 þús., með nafni sínu á ótryggðum víxli. Sömu bréf voru
metin á kr. 801 þús., hagnaður Jóns því kr. 534 þús.! Stefán
Jónsson fékk helming þeirra hlutabréfa, sem Flygenring hafði
keypt, án þess að stjórn félagsins vissi!! Hagnaður Stefáns nam
kr. 50 þús.!
Á sunnudaginn staðfesta Hafnfirðingar við kjörborðið dóm
réttarins um aðfarir forystu Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði
að eignum bæjarbúa með því að gera ósigur Flygenrings sem
allra mestan og þvo íhaldsblettinn af Hafnarfirði. Frjálshuga
Hafnfirðingar hljóta að fordæma siðleysi og fjármálaspillingu
flokks braskaranna, Sjálfstæðisflokksins, sýna siðmenningu sína
og réttlætishugarfar og sameinast einhuga um Emil Jónsson.
Kjósið með réttlætinu. — Kjósið gegn bröskurunum. — Kjósið Emil.
Sij»iu* Emil§ er sigiu* kiniia réttsýnu kjósenda.