Alþýðublað Hafnarfjarðar - 20.06.1956, Blaðsíða 2
2
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR
+—— -------— -----------------------------
i
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR
ÚTGEFANDI:
Alþýöuflokkurinn í Hafnarfirði.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
Eyjólfur Guðmundsson, (sími 9607).
AFGREIÐSLA í ALÞÝÐUHÚSINU, SÍMI 9499.
PRENTSMIÐJA HAFNARFJARÐAR H.F.
Fiirðnle^t frainboð
Á fundi Alþýðu- og Framsóknarflokksins í Bæjarbíó 14. þ. m. flutti Áki
Jakobsson snjalla og merkilega ræðu. Birtist hér kafli úr ræðunni:
Framboð hins svonefnda Al-
þýðubandalags, sem raunar er
ekki annað en kosningaheiti á
Sósialistaflokkknum, eru sum
með nokkuð furðulegum hætti.
Þegar Hannibal Valdimarsson
frétti um framboð Friðfinns Ól-
afssonar í Norður-ísafjarðarsýslu
fyrir Alþýðuflokkinn, þá fann
hann upp það snjallræði, sem á-
reiðanlega enginn annar stjórn-
málamaður hefði látið sér til hug
ar koma, að senda konu sína
gegn Friðfinni, sem er bróðir
hennar.
Þegar ákveðið er að ég verði
í kjöri fyrir Alþýðuflokkinn á
Siglufirði, brugðu þeir þegar við,
Einar Olgeirsson og Hannibal
Valdimarsson, fóru norður á
Siglufjörð og reyndu allt, sem
þeir gátu, til þess að fá mág minn
Þórodd Guðmundsson, til þess
að fara fram á móti mér.
Svona er offorsið mikið. Virð-
ing fyrir fjölskylduböndum og
tengdum er engin, Þeir skirrast
ekki við að snúa vináttu og
frændsemi upp í óvild og kala í
þeim eina tilgangi að ná sér niðri
á Alþýðuflokknum.
Hér í Hafnarfirði er framboð
Sósíalista með nokkuð svipuð-
um hætti. Að vísu er hér ekki
vegið að fjölskylduböndum,
heldur er hér gengið á trúnað
manna á meðal, og stofnað til
framboðs, sem er í senn bæði
furðulegt og ódrengilegt. Sós-
íalistaflokkurinn býður hér
fram Geir Gunnarsson, er starf-
ar sem varabæjarstjóri á veg-
um sameiginlegs bæjarstjóm-
armeirihluta Alþýðuflokksins
og Sósíalistaflokksins. Hið svo-
nefnda Alþýðubandalag, sem
þykist vera að sameina verka-
lýðinn, skeytir því engu, þó að
með þessu sé stórspillt bæjar-
stjómarsamstarfi Alþýðuflokks
ins og Sósíalistaflokksins. Þetta
lýsir bezt einingarviljanum.
Auk þess er hér um svo einstakt
drengskaparleysi að ræða, að
mér finnst það ekki mega liggja
í láginni. Geir Gunnarsson er
hér ráðinn varabæjarstjóri af
fjómm Alþýðuflokksmönnum
og einum Sósíalista. í starfinu
er hann trúnaðarmaður bæjar-
fulltrúanna og því tengiliður
milli þeirra og hinna f jölmörgu
íbúa bæjarins, sem hann þarf
að hafa samskipti við í starfi
sínu. Það lendir í hans verka-
hring, fyrir hönd bæjarstjórnar-
innar að greiða úr fyrir mönn-
um á ýmsan hátt. Af þeim afl-
ar hann sér vinsælda, sem hafa
gert hann sérstaklega eftirsótt-
an frambjóðanda fyrir Alþýðu-
bandalagið. Vegna vinsælda,
sem Geir Gunnarsson aflar sér
í starfi, sem fjórir Alþýðuflokks
menn og einn Sósíalisti ráða
hann í, er hann svo látinn bjóða
sig fram til þings, og það á
meðan hann ennþá gegnir starf
inu, í þeim eina tilgangi, að
reyna að fella frambjóðanda A1
þýðuflokksins, sem hefur verið
þingmaður staðarins um árabil,
og tryggja kosningu íhalds-
mannsins. Þetta er svo einstæð-
ur ódrengskapur og brot á öllu
velsæmi, að furðu sætir.
Eg var um fjögra ára bil bæj-
arstjóri á Siglufirði, ráðinn af
þrem Alþýðuflokksmönnum og
tveim kommúnistum. Ég hef því
kynnst því, hvílíkan trúnað bæj-
arfulltrúar þurfa að fela bæjar-
stjóra eða þeim, er gegnir svip-
uðum störfum. Ég neitaði alger-
lega að nota mér þessa aðstöðu
gegn samstarfsflokknum. Ég
lýsti því yfir, að ég mundi ekki
gefa kost á mér til framboðs
gegn samstarfsflokknum á með-
an ég gegndi starfinu.
Ég þekki ekki Geir Gunnars-
son persónulega, og vil því ekki
bera á hann, að hann sé ódreng
ur. En hann hefur látið liafa
sig til þess ódrengskapar að
misnota trúnað, sem honum
hefir verið sýndur. Hann er
ungur maður og hefur ef til vill
ekki varað sig á því, er honum
verri menn hvöttu hann til
þessa verks. Það er eitt af því,
sem ungir menn þurfa að vara
sig á, að láta ekki espa sig til
verka, sem þeir síðar sjá eftir
alla ævi og fylgir þeim eins og
skugginn þeirra.
Ég skora á Hafnfirð-
inga að láta ekki þetta
ódrengilega framboð
verða til þess að fella
Emil Jónsson og tryggja
íhaldinu þingsætið á-
fram.
Það er hollt fyrir Geir
Gunnarsson að fá hirt-
ing fyrir brögð þau, sem
hann hefur í frammi.
Sameinist um að fella
íhaldið. Tryggið alþýð-
unni þingsætið í Hafnar-
firði með því að senda
foringja hafnfirzkrar al-
þýðu Emil Jónsson á
þing þann 24. júní.
Áki Jakobsson.
..H.vsin við
vegfamótia^
Eins og margir munu hafa
heyrt eða lesið um, urðu oft öm-
urleg endalok margra ógæfu-
manna, sem fyrir ýmiss óhöpp
urðu að fara huldu höfði og er
þeir náðust, voru þeir látnir lífi
týna og að lokum dysjaðir utan-
garðs og þá helzt við vegamót.
Að ég rifja þetta upp kemur til
af því, að ein óhappastefna, er
kommúnismi nefnist, varð á út-
mánuðum fyrir því einstæða
óhappi, sennilega mesta óhappi
allra alda., sem nokkur stjórn-
málastefna hefur nokkurn tíma
orðið fyrir, að upp komst um þá
óheyrilegustu spillingu og
grimmd í höfuðstöðvum þessar-
ar stefnu Moskvu, og að sjálfur
foringinn hefði verið óðsjúkur
fjöldamorðingi, sem einskis
sveifst. Eðlilega hafði þetta af-
drifaríkar afleiðingar fyrir
kommúnistaflokka margra landa
og þá einnig hér á okkar landi.
Nú t. d. þora þeir hvergi að bjóða
fram, fela sig og fara huldu
liöfði. Hér hefur starfað flokk-
ur komma um nokkur ár við lít-
inn orðstír, helzt þann að kljúfa
verkalýðshreyfinguna, og mætti
líkja honum við plóg íhaldsins,
sem hefur haft það hlutverk að
plægja í sundur samtök hins
vinnandi fólks og gera þau að
eins konar notadrjúgum kosn-
ingaakri fyrir íhaldið. Margir
hafa sjálfsagt veitt því athygli
hvað skeði, er kommar komust
fyrst á Alþing. Jú, einmitt þá,
með þeirri tunglkomu og þeim
rosabaug, sem þeirri tunglkomu
fylgdi, hefst valdatímabil íhalds-
ins. Þetta er ærið íhugunarefni
fyrir vinnandi fólk til sjávar og
sveita, ekki sízt núna, er það
sameinast um tilraun að ýta
þessum flokkum, íhaldi og
kommum frá valdaaðstöðu í
landinu. Eins og áður er getið
eru kommar svo hræddir núna
að þeir þora hvergi að bjóða
fram. En í stað þess hafa þeir
skipt um nafn eins og afbrota-
menn og fela sig, en reyna jafn-
framt að gera bandalag við sjálfa
sig. Hér í Hafnarfirði hafa nokkr-
ir nytsamir sakleysingjar orðið
til að skjóta skjólshúsi yfir þenn-
an óhappaflokk.
Ekki er vitað hvort það er til-
viljun eða kaldhæðni örlaganna,
að þessir sakleysingjar hafa
nefnt málgagn sitt Vegamót. En
margur mun ætla, að vel færi
á því að nafn og áhrif þessa ó-
happa-feluflokks væri einmitt
dysjað við þessi vegamót til æ-
varandi viðvörunar fyrir aldna
og óborna. Og við ykkur, sem
standið ráðvilltir á þessum vega-
mótum vil ég segja þetta; hrist-
ið af ykkur álagaham kommún-
isma og kastið honum eins og
steini á dysina,. þá verðið þið sem
nýir menn, og þá mun birta yfir
svip mannsins, sem myndin er af
í blaðinu Vegamót. Þá munuð
þið sjá meira t. d. það að Alþýðu-
bandalagið er aðeins stundarfyr-
irbrigði, sem Brynjólfi hefur þótt
henta að blása upp eins og sápu-
kúlu í vandræðum sínum og láta
þá Hannibal og Alfreð spegla
sig í. Og ekki verða þeir öfunds-
verðir ef Brynjólfi dytti í hug
einhvern daginn að blása á kúl-
una, þá væri Alþýðubandalagið
búið að vera. Kunnugir telja að
hann þyrfti ekki svo mikið fyrir
að hafa ,heldur aðeins að anda
á listann þeirra á kjördegi, þá
myndi röðin á listanum ruglast
þeir efri færast niður og þeir
neðri færast upp. „Ult er að eiga
þræl að einkavini," var einu sinni
sagt, en kannske er ekki betra
að eiga mikið undir kommum.
Eða hvað segja atburðirnir frá
Moskvu um það?
En svo ég snúi máli mínu aftur
til ykkar Vegamótamenn í Hafn-
arfirði þá má telja að þið séuð
ljónheppnir. Svo er mál með
vexti, að einn stálgreinur frjáls-
lyndur og mikilhæfur maður,
Sjálfstæðisflokkurinn er búinn
að hafa hafnarmálin á heilanum
síðan hann missti hér meirihlut-
ann, hvort heldur verið hafa
bæjarstjórnar- eða alþingiskosn-
ingar.
I þeirra augum hefur Emil
Jónsson verið hinn illi andi þess
máls, alltaf fyrir og þaðan af
verra.
En hvernig var saga hafnar-
innar áður en Emil fór að skipta
sér af þeim málum?
Það mun hafa verið 1913 eða
14 að fyrsta hafnfirzka konan
steig í ræðustól í þessum bæ.
Það var þegar vígð var hér ný
hafskipabryggja, sem nú geng-
ur almennt undir nafninu:
„Gamla bryggjan". Þetta var
mikið mannvirki og sannarlega
talsverð tekjulind fyrir hafnar-
sjóð. Blómatími virtist fram-
undan og vafalaust hefur þá
verið margt gert og ekki óvit-
urlegt. En tímamir liðu og ekki
bólaði á neinu hafnarmann-
virki. En 1914 er stofnað hluta-
félag hér í bænum af nokkrum
vel efnuðum bæjarbúum. Mark
mið þess félags var að kaupa
hafnarbryggjuna og hefur það
líklega verið fyrsta hlutafélag-
ið hér í bæ, sem hafði það að
markmiði að skaða bæjarfélag-
ið. Þetta félag hirti síðan hin-
ar daglegu tekjur hafnarsjóðs-
ins. Þetta var áhugi Sjálfstæðis-
mannanna í hafnarmálum Hafn
firðinga þá.
Væri nú vel gert og elskulegt,
ef Iíamar vildi gera svo vel og
upplýsa hvað varð um andvirði
bryggju þessarar. Það mun hafa
gengið illa að finna andvirðið í
hafnar- eða bæjarsjóði og ekki
var það lagt í hafnargarða.
hefur nýlega markað stefnuna
fyrir ykkur frá þeim vegamótum,
sem þið standið núna ráðvilltir
á. Ég veit að margir ykkar verða
fúsir að fylgja honum á betri og
farsælli braut.
Hann skorti ekki reynslu og
þekkingu, og farið að dæmi
Áka Jakobssonar og fylgið
honum ásamt óteljandi öðrum
mönnum inn í raðir hins vinn-
andi fólks til sjávar og sveita,
og fólksstraumurinn mun aft-
ur liggja til Alþýðuflokksins,
gamla og góða flokksins, sem
aldei hefur brugðist og aldrei
skipt um nafn, en hefur ætíð
staðið trúan vörð um rétt hins
veikari og þeirra er höllum fæti
standa í þjóðfélaginu. Hafn-
firðingar, nú er tækifæri að
skipta um stjórnarstefnu, fylkj-
um okkur um umbótaflokkana
kjósum Emil Jónsson, og
hjálpum þar með að gera sigur
umbótaflokkanna algjöran
þannig, að þeir nái meirihluta
á Alþingi.
Nú liðu ár og dagar. íhaldið
tapaði meirihlutanum. Þessi ó-
lukkufugl íhaldsins, hann Emil
kemur fram á sjónarsviðið og sér
allt með öðrum augum en íhald-
ið. Hann lætur byrja á norður-
garðinum. Nú hefur víst íhald-
ið orðið ánægt, þegar það sá
óskadraum sinn rætast. En þá
ærðist íhaldið fyrir alvöru,, þvi
að garðurin var á bandvitlausum
stað, eins og allt, sem Emil kom
nærri. Voru nú góð ráð dýr og
dugði hvorki læknisfræði né lög-
fræði, og var nú fenginn verk-
fræðingur og boðað til borgara-
fundar. Verkfræðingurinn skrif-
aði upp á vottorðið, höfnin var
allt of stór, því stór og góð höfn
var í Reykjavík.
Eftir þeirra tillögum átti garð-
urinn að koma rétt við sporðinn
á „Gömlu bryggjunni“. Þá hef-
ur það og komið í ljós, að botn-
lagið þar var enn ver fallið til
þess að bera hafnargarðinn en
það, sem hann stendur nú á.
Þetta var nú ekki aðalatriðið,
heldur hitt að vera á móti fram-
kvæmd hafnargerðarinnar. Þetta
var og er nefnilega allur áhugi
íhaldsins fyrir hafnargerðinni.
Um gömlu bryggjuna er það
að segja, að hafnarsjóður fékk
hana keypta aftur eftir 25 ár,
þá lélega og illa fama og kost-
aði mikið að gera við hana.
Eftir að hafa kynnt sér sögu
hafnargerðarinnar er ljóst, að
það þarf alveg eindæma hreysti
til þess af Sjálfstæðisflokknum
að láta nokkuð sjást frá sér um
það mál og það á prenti. Þessi
fávitaháttur á skrifum Hamars
um hafnarmálin hlýtur að
koma af ókunnugleika ritstjór-
ans. — x+y
X EMIL JONSSON
F.
25 ÁRR ÚTLEGÐ