Alþýðublað Hafnarfjarðar - 23.06.1956, Síða 4
4
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR
Óhaldsþiónusta ,,Alþýðubandalagsins“ i algUymingi:
Kommúnistablaðið „Yegamót“ af-
neitar dðmsstaðreyndum í Lýsi og
Mjöl-málinu og kallar þær fals!
Kr 1111111 að sanna Im'íih- lijjóiiu.sílu síii;i við
Fljgeiiriiis? — Italitjaldasanislarl íliuldsiiis
og koiiiina í kuisiiiiig'uiiiiiii orðið opiiibci't.
Kommúnistar hafa ærzt út af hinni sönnu lýsingu á dóms-
staðreyndum í Lýsi og Mjöl-málinu, sem Alþýðublað Hafn-
arfjarðar greindi frá á dögunum, og vakti allt hugsandi fólk
í þessum bæ til enn gleggri meðvitundar um hið gjörspillta
hafnfirzka íhald, sem seldi sér eignir hæjarbúa og græddi
684 þús. krónur. Svo gegndarlaus er umhyggja kommúnist-
anna fyrir „heiðri“ Flygenrings, að blað þeirra kallar skrif
Alþýðublaðsins, sem voru blákaldar staðreyndir úr dóms-
bókunum, „fals og hræsni“, og afneita kommúnistar því enn
einu sinni staðreyndum, sönnuðum fyrir rétti. Það hæfir
hugsanaheimi kommúnistanna.
Kommúnistablaðið ber á Alþýðuflokksmenn þau helberu
ósannindi, að þeir hafi staðið saman að fjármálahneykslinu
í Lýsi og Mjöl með Sjálfstæðismönnum. Allir Hafnfirðingar
vita, að það voru ekki Alþýðuflokksmenn, heldur Sjálfstæð-
ismenn, sem seldu sér ldutabréfin. Málshöfðuninni var hins
vegar beint gegn allri stjórn Lýsi og Mjöl h.f., eins og lög
mæla, en í stjóm þess félags eru 3 Sjálfstæðismenn, en að-
eins 2 Alþýðuflokksmenn.
Alþýðuflokksmennirnir, í stjórn félagsins, sem blekktir
höfðu verið með villandi upplýsingum til að samþykkja í
upphafi greindar hlutabréfasölu til Flygenrings og félaga,
kröfðust þess, að hlutabréfakaupin gengju til baka, er þeir
vissu um hinar röngu forsendur, sem bréfin voru seld á.
En íhaldsmennimir vildu ekki sleppa hlutabréfunum. Það
var meirihluti Alþýðuflokksmanna í bæjarstjórn undir for-
ustu Emils Jónssonar, sem ákvað málshöfðunina gegn Lýsi
og Mjöl h.f., en ekki kommúnistar. Það var Alþýðuflokks-
maðurinn Arni Gunnlaugsson, lidl., sem flutti málið af hálfu
Hafnarfjarðarbæjar og fletti ofan af hinu siðlausa hluta-
bréfabraski. Það var íhaldið, en ekki Alþýðuflokksmenn í
stjórn félagsins, sem áfrýjuðu málinu til hæstaréttar.
Hin lævísu lygaskrif kommúnistablaðsins um Lýsi og Mjöl-
málið sanna það aðeins, sem áður hefur verið sagt hér í
blaðinu, að kommúnistar þola ekki, að sannleikurinn úr dóms-
bókunum um hugarfar Ingólfs Flygenrings til hagsmuna
bæjarfélagsins komi fram á prenti. Ekkert sannar betur, að
framboð Geirs Gunnarssonar er gert til að reyna að fleyta
Flygenring á þing enn einu sinni. Svo tala þessir óheilla-
og ódrengskaparmenn um „verkalýðsást“ og þykjast ílialds-
andstæðingar!! Hvað er meiri hræsni?
Þáttur kommúnistanna í Lýsi og Mjöl-málinu er sá einn
að sýna engan áhuga, meðan rannsókn málsins stóð yfir, og
gera sem allra minnst úr þessu hneykslismáli í Þjóðviljanum.
Hver þarf eftir lcstur síðasta „Vegamóts“ að efast um
hlutverk Geirs Gunnarssonar í þessum kosningum?
Látum þennan hjálparkokk íhaldsins fá þá hirtingu, sem
hann hefur til unnið fyrir allan sinn ódrengskap í þessum
kosningum. Það gerum við með því að sameinast öll um
Emil Jónsson. Sigur Emils er sigur hafnfirzkrar alþýðu, en
ósigur íhaldsins og hjálparkokksins.
SAMEINUÐ ALÞÝÐAN MYNDAR SKJALDBOR UM
EMIL JÓNSSON OG SIGRAR GLÆSILEGA í ÞÁGU
HAGSMUNA SINNA.
Ingólíur og íþróttahúsid
Allir vita, að seinasta kjörtímabil hefur Sjálfstæðisflokkurinn
haft á hendi leyfiveitingar fyrir öllum nýbyggingum þ. á. m. Morg-
uriblaðshöllinni frægu. Hvað hefur þingmaðurinn, Ingólfur Flyg-
enring, gert til þess að knýja út fjárfestingarleyfi fyrir okkar nýja,
ágæta íþróttahúsi?
Lóöin er fengin.
■Jt Teikningin er íyrir hendi.
Peningar fást úr Félagsheimilasjóöi.
'Jc Fjárfestingarleyfiö???
Hvers vegna komst þú ekki með fjárfestingarleyfið, Ingólfur?
Á sunnudaginn kemur munum við, á verðugan hátt, þakka þér
fyrir dugleysið í þessu stórmáli hafnfirzkrar íþróttaæsku.
íþróttamaöur.
ttigui- IJmil* tryffífir fFanitid Fittkiújuversiiis.
Því kjoKiim við fyFÍF liagsniBiiii allra lia\jarbúa.
Osaiiuimli
Yegamóót lirakin
Að gefnu tilefni vottum
við undirritaðar, að orðsend-
ing sú, sem birtist í 11. tbl.
Alþýðubl. Hafnarfjarðar frá
16. júní 1956, er skrifuð af
föður okkar, Óskari Jónssyni
sjálfum og afhent ritstjóra
Alþýðublaðs Hafnarfjarðar
til birtingar, með okkar vit-
und.
Hafnarfirði, 22. júní 1956.
Margrét Óskarsdóttir.
Anna Óskarsdóttir.
KJÖRSEÐILL
við alþingiskosningarnccr í Hafnaríirði 24. júní 1956.
Geir Gunnarsson
Frambjóðandi Alþýðubandalagsins
Emil Jónsson
Frambjóoandi Alþýðuflokksins
Ingólfur Flygenring
Frambjóðandi SjálfstæðisfIokksins
Kári Arnórsson
Frambjóðandi Þjóðvarnarflokks Islands
A Landlisti Alþýðuflokksins
B Landlisti Framsóknarflokksins
IJngl fólk kýs Emil
D Landlisti Sjálfstæðisflokksins
Við, hafnfirzkar konur, urðum
ekki lítið undrandi, þegar við
lásum grein frú Rósu Stefáns-
dóttur í Vegamótum.
Rósa segist hafa dvalið hér að-
eins 2 ár. Það hlaut að vera! —
Hefði hiin dvalið liér lengur
hefði hún aldrei látið þann
barnaskap frá sér fara, að Geir
Gunnarsson leysti þarfir hús-
næðisleysingjanna hér í bæ bet-
ur en gert hefur verið af fidltrú-
um Alþýðuflokksins.
Það skyldi enginn halda, að
kommar fái unga fólkið með
sér. Við, sem hér erum fædd og
uppalin, vitund ofur vel, að það
er verk Alþýðuflokksins og full-
trúa hans, sem hefur gert Hafn-
arfjarðarbæ það sem hann er og
hefur orðið m. a. til þess, að frú
Rósa vildi heldur búa hér en
annars staðar.
Þetta veit hafnfirzk æska og
hún gleymir því ábyggilega ekki
á sunnudaginn og kýs Emil Jóns-
son.
Með sáttanefndastörfum sín-
um hefur Emil sýnt hug sinn til
sjómanna og verkamanna, hvað
svo sem ósannindum kommún-
istanna líður.
Sigur Emils er sigur æskunn-
ar. Við skulum standa vel saman
þá verður sigur Emils stór og
glæsilegur.
Ung Alþýðuflokkskona.
F Landlisti Þjóðvarnarflokks íslands
G Landlisti Alþýðubandalagsins
Þannig lítur kjörseðillinn út eftir að Emil Jónsson, frambjóðandi
Alþýðuflokksins hefur verið kosinn.
Athugið sérstaklega, að nafn Emils Jónssonar er NÆST EFST
á seðlinum, en ekki efst eins og áður.
Kosningaskrifstofa
Alþýðuflokksins og Framsóknarilokksins
er í AlÞýðuhúsinu.
Bílasímar: 9499 og 9285
Skrifstofusími . . . 9985
Kjörskrársími . . . 9734
Upplýsingasími . . 9685
Skrifstofan verður opnuð kjördaginn kl. 8 f. h.
Starfsfólk er vinsamlegast beðið að mæta þá.
Mætum öll og vinnum að glæsilegum sigri Emils Jóns-
sonar.
KOSNINGANEFNDIN.