Alþýðublað Hafnarfjarðar - 07.07.1956, Qupperneq 1
Hafnfirðingar!
Stuðlið að útbreiðslu
Álþýðublaðsins.
ALÞYÐ UB LAÐ
Grein um útsvör-
m eru a
4. síðu.
IHIAIFR*IAIRt IFJJA.IRMEDA.IR1
XV. ÁRGANGUR
HAFNARFIRÐI, 7. JÚLÍ 1956
14. TÖLUBLAÐ
Emil Jónsson kosinn þingmaður
Hafníirðinga með yfirburðum
EMIL JÓNSSON
Áki Jakobsson
Þingmenn Alþýðufl.
llinbótaflokkarnir unnu glæsilegan kosninga-
sigur utan Reykjavíkur. llnnu 5 ný kjördæmi.
Álþýduflokkurinn vann Hafnarfjörð, Akureyri
og Siglufjörð. - Framsóknarflokkurinn vann
Seyðisfjörð og Barðastrandarsýslu.
Umbótaflokkamir unnu glæsi-
legan kosningasigur utan Rvík-
ur. Unnu 5 ný kjördæmi. Alþýðu-
flokkurinn vann Hafnarfjörð,
Akureyri og Sigfufjörð. Fram-
sóknarflokkurinn vann Seyðis-
fjörð og Barðastrandarsýslu.
Alþýðuflokkurinn hefur nú 4
kjördæma kosna þingmenn: Har-
ald Guðmundsson, Reykjavík,
Emil Jónsson, Hafnarfirði, Frið-
jón Skarphéðinsson, Akureyri,
Áka Jakobsson, Siglufirði. Auk
þess fær hann 4 uppbótarþing-
menn:
Gylfa Þ. Gíslason frambjóð-
anda í Reykjavík.
Guðmund I Guðmundsson
frambjóðanda í Gullbringu- og
Kjósarsýslu.
Benedikt Gröndal frambjóð-
anda í Borgarfjarðarsýslu, og
Pétur Pétursson frambjóðanda
í Snæfellsness- og Hnappadals-
sýslu.
Alþýðuflokkurinn hefur nú 8
þingmenn í stað 6 áður eða rétt-
ara sagt í staðinn fyrir 5 áður,
eftir að Hannibal Valdimarsson
liljóp úr flokknum.
Framsóknarflokkurinn fékk
nú 17 þingmenn kjörna, en hafði
áður 16. Vann Seyðisfjörð og
Barðastrandarsýsky. en tapaði
hins vegar 2. þingsætinu í Suð-
ur-Múlasýslu.
Bandalag umbótaflokkanna
hefur þannig nú 25 þingsæti.
Alþýðubandalagið fékk 3
þingmenn kjördæmakosna og
auk þeirra 5 uppbótar þingmenn,
eða samtals 8. Sósíalistaflokkur-
inn hafði áður 7, en sé Hannibal
talinn með er þingmannatalan
óbreytt.
Sjálfstæðisflokkurinn fékk 17
kjördæmakosna og 2 uppbótar
þingmenn, samtals 19, en liafði
áður 21 kjördæmakosinn. Sjálf-
stæðisflokkurinn tapaði 5 kjör-
dæmum: Hafnarfirði, Akureyri,
Siglufirði, Seyðisfirði og Barða-
stradarsýslu, en vann 1 þingsæti
í Reykjavík.
Niðurstaða kosninganna er því
þessi:
Alþýðuflokkurinn 8 þingm.
Framsóknarfl. 17 —
Alþýðubandalagið 8 —
Sjálfstæðisflokkurinn 19 —
(Framhald á bls. 3)
Pétur Pétursson
Friðjón Skarphéðinsson
Guðmundur í. Guðmundsson
Benedikt Gröndal
Gylfi Þ. Gíslason