Alþýðublað Hafnarfjarðar


Alþýðublað Hafnarfjarðar - 02.09.1993, Page 1

Alþýðublað Hafnarfjarðar - 02.09.1993, Page 1
Málgagn jafnaðarmanna 8. tbl. 51. árg. 2. sept. 1993 Álfabyggð í Hafnarfirði kortlögð Ég lék mér eflaust við álfana sem barn - segir Páll Pálsson, formaður ferðamálanefndar sem er fæddur og uppalinn í fjörlegri álfabyggð við Mánastíginn „Álfakortið hefur vakið geysi- mikla athygli og áhuga manna og þar með á huliðsheimum okkar hér í Hafnarfirði”, sagði Páll Pálsson, formaður ferða- málanefndar, í samtali við Al- þýðublað Hafnarfjarðar. „Hingað flykkist fólk frá Reykjavík og nágrannabyggðunum til að skoða álfabyggðina í bænum en það hefur verið uppselt í allar skoðanaferðirnar hingað til.” Það er óhætt að segja að nýst- áriegar aðferðir og frumlegar hug- myndir ferðamálanefndar hér í bæ liafa vakið gífurlega athygli fjöl- miðla og fólks um allt land. Hafnarfjörður hefur vaxið mjög sem ferðamannabær hin síðari ár og er enn í mikilli sókn á því sviði. Vinir Hafnarfjarðar, Gaflarinn og nýtt huliðsheimakort er til marks um það lifandi kynningarstarf sem unnið er á vegum ferðainálanefndar bæjarins. Páll Pálsson, formaður nefnd- arinnar, segir að farnar hafi verið álfaskoðunarferði hvern fimmtudag undanfarið undir leiðsögn Erlu Stefánsdóttur og hafi færri komist þar að en vildu. Hún sé ein um leiðsögn enda ekki á hvers manns færi að sjá hulda vætti. Því tak- markist þátttakendafjöldi hverju sinni við rútustærð og vissara sé að panta tíma fyrirfram hjá upplýs- ingaskrifstofu ferðamála í Hafnar- firði, sem sé í Riddaranum gegnt byggðasafninu. En raska þessar ferðir ró álfa, hludufólks og annara vætta? ,,Það er lítil hætta á því enda eru svona feröir til þess fallnar að auka skilning og virðingu fólks fyrir náttúrunni í kringum sig,” segir Páll. „Reyndar segir Erla að álfarnir séu bara ánægðir með þessa athygli sem við dauðlegir mennirnir sýnum þeim.” Við kostlagningu Erlu álfabyggð- ar í Hafnarfirði kemur í ljós að Páll sjálfur er fæddur og alinn upp í einni mestu álfabyggð bæjarins við Mánastíginn. „Ég hef sjálfsagt leikið mér við álfana sem barn”, segir Páll, „enda fullyrðir Erla að svo hafi verið. Álfarnir héma fyrir utan hjá mér eru glaðlyndir og góðir og eflaust bý ég enn að góðum samskiptum við þá. Alla vega trúi ég því, að þeir standi með mér og séu mér hjálpsamir í lífsins ólgu sjó”. Þá segir Páll að enn séu ekki allar álfabyggðir í Hafnarfirði komnar á kort. Að lokum vildi Páll benda á að skoðunarferðirnar um álfabyggðir Hafnarfjarðar færu frá Riddaranum l’dll Pálsson ásamt syni sínum Páli Arnari á fimmtudögum og hægt væri að Ferðin kostar 350 kr. fyrir full- panta þær í síma; 650661 hjá orðna og 100 kr. fyrir börn. upplýsingaþjónustu ferðamála. Heilsdagsskóli í Hafnarfirði Núna í vetur verður í fyrsta skipti boðiö upp á heildagsskóla í grunnskóluni Hafnafjarðar. Með honum verður neniendum í 1. til 4. bekk boðið upp á að vera allan daginn í skólanum ef þess cr óskað. Öflugt átak í skólamálum uinliðina ára gerir það kleift að bjóða upp á þessa auknu þjónustu sem bærinn stendur fyrir. Tekið hefur verið í notkun nýtt skólahúsnæði á hverju ári frá því að Alþýöuflokkurinn tók forystuna í bæjarmálum í Hafnarfirði. Núna þess vikuna er verið að taka nýja áfanga í Setbergsskóla í notkun með pompi og pragt. Alþýðuflokkurinn hefur lagt áherslu á að vel sé búið að æsku þessa bæjar og þar skipta skólarnir ekki litlu máli. Á það jafnt við um hina ytri umgjörð og hið innra starf skólanna. Skólarnir eru nú að hefjast en Alþýðublað Hafnarfjarðar er eink- um helgað skólamálum að þessu sinni. í því er að finna margvísleg- an fróðleik um skólamál í Hafnar- firði, heilsdagsskólann, nýjungar í skólastarfi og uppbyggingu liðina ára. Setbergskóli stækkar í þessari viku verður síðari áfangi Setbergsskóla tekinn í notkun Lengri vistun leikskólabarna Sá tínii sem börum er almennt boðið upp á að vera á leikskólum bæjarins hefur verið að lengjast. Þannig hafa börn átt þess kost að vera samléllt í sex tíma á þcim leikskólum sem til þess hafa aöstööu. Þegar hafa fjórir leik- skólar boðið upp á þessa þjónustu, Arnarberg, Garðavellir, Hlíðarberg og nú síðast Hvammur. Nú geta því börn á þessum leikskólum ver- ið samfellt í vistun frá klukkan 8 á morgnana til klukkan tvö á daginn. Foreldrar þurfa að greiða aukalega fyrir þann tíma sem börn þeirra eru í leikskólanum umfram fjóra tímana. Blaðsíða 5 Heilsdagsskólinn: Viðtal við Gísla Ágúst Gunnlaugsson, formann skólanefndar Hafnarfjarðar Blaðsíða2 Sameining við Garðabæ kosningmál sjálfstæðismanna Blaðsíða 3 Harfnarfjörður, bærinn minn Kennslubók fyrir grunskólanemendur Blaðsíða 4 Öflug uPPbYgging skólamála í Hafnarfirði Blaðsíða 6 Keilir á toppnum Islandsmeistarar í sveitakeppni í Golfi Blaðsíða 3 Sundurlyndi s j álf stæðismanna og óeining í minnihluta bæjarstjórnar Þorgils Óttar vill velta Jóa Begg

x

Alþýðublað Hafnarfjarðar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublað Hafnarfjarðar
https://timarit.is/publication/411

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.