Alþýðublað Hafnarfjarðar - 01.01.1986, Side 9
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR
9
Mig hefur alltaf langað til
að vera heima
Blaðamaður náði tali af Maríu Ásgeirsdóttur, sem er einn af
frambjóðendum í prófkjöri Alþýðuflokksins í Hafnarfirði 1.
og 2. febr. n.k.
María hefur alltaf starfað utan heimilis, þar til fyrir einu ári
að hún eignaðist sitt þriðja bam og er nú heimavinnandi hús-
móðir.
Við spyrjum hana fyrst hvemig þetta gangi.
,,Það er nú þannig, að mig búar eru orðnir langþreyttir á
hefur alltaf langað til að vera
lieima og sinna börnunum mín-
um, en framan af fannst mér
nauðsynlegt að vinna úti. Auð-
vitað var það bæði íjárhagslegt
mat og einnig það, að í mínu
l'agi, lyfjafræðinni, er ekki gott
að hætta alveg á vinnumarkaðn-
um í lengri tíma. Þegar þriðja
barnið fæddist fannst mér alveg
sjálfsagt að ég væri heima að
sinna heimili og börnum. Það
hefur komið mér á óvart, hve
margir eru undrandi á þessari
afstöðu minni, og þá ekki síst
konur. Eg játa, að auðvitað er
þetta erfiðara Ijárhagslega, en
hve mikið fær maður ekki í stað-
inn, að geta fylgst með börnun-
um sínum.
Eitt finnst mér að bæjar-
og sveitarfélög og ríkið, geti
gert fyrir þær konur, sem vilja
hætta að vinna úti og sinna ein-
göngu uppeldishlutverkinu,
það er að létta þeim skattbyrð-
ina. Utsvar og skattar greiðast
jú eftirá, þannig að konur sem
hætta snögglega að vinna úti
greiða skatta árið sem þær eru
tekjulausar. Það má ekki verða
munaður að geta alið upp sín
eigin börn. Við spörum á móti í
formi ónýttra dagheimils-
plássa, en þau eru jú dýr.“
Finnst þér ef til vill, að
jafnréttisbaráttan hafi gengið
of Iangt?
,,Nei, það er ekki mín skoðun.
Konur eiga að hafa sömu laun
fyrir sömu vinnu og karlar. En
þær konur, sem kjósa að sinna
uppeldishlutverkinu þann tíma,
sem það tekur, eiga ekki að
þurfa að gjalda þess á neinn
hátt.“
María, eru einhver bæjar-
málefni, sem vekja áhuga
þinn öðrum fremur?
„Því er n ú svo farið, að á-
hugamál manna beinast á ýms-
ar brautir og svo er einnig l’arið
með mig. Áhugamál mín eru
bókmenntir og tónlist. Ég hef
verið svo heppin að geta fylgst
grannt með þeim málaflokki
innan bæjarins, sem tengist
þessu hvoru tveggja, því ég hef
setið í stjórn ljókasafnsins sl. 4
ár, en sem kunnugt er, er þar
einnig starfrækt tónlistardeild.
Ennfremur hef ég mikinn áhuga
á heilbrigðismálum. Þau eru
bæði tengd mínu fagi og svo eru
þau engum óviðkomandi."
Snúum okkur fyrst að bóka-
safninu, hvemig hefur verið
að starfa í stjóm þess?
,,Það hefur verið ágætt á
margan hátt. Það er alltaí'gam-
an að vinna að einhverjum
framíörum, en það er erfitt, þeg-
ar allar fjárveitingar eru skornar
niður. Fjárveitingar til bóka-
kaupa hal'a alltaf verið of litlar.
Þannig hefur ckki verið hægt
að kaupa nægjanlegt magn
þeirra bóka, sem vinsælastar
eru, og ég veit að margir bæjar-
því. Þá hefur veriðætlunin árum
saman að koma upp góðu safni
handbóka, en fjárskortur hefur
hamlað því. Það var ánægjulcg-
ur og langþráður áfangi, þegar
lessalurinn var opnaður. Hann
hefur verið vel nýttur, sérstak-
lega haf'a langskólanemar nýtt
sér hann til próllestrar og er það
vel.
Nú er bvrjað að endurnýja
neðri hæðina, en því miðar
hægt, því á ljárveitingu er aðeins
gert ráð fyrir að lítið sé gert í
einu. Þessar smáskammta-
framkvæmdir verða svo dýrari
fyrir bragðið, en þegar vinna
má verkið og kaupa þá innan-
stokksmuni, sem til þarf, í einni
heild. Stundum dettur mér í
hug, hvort ekki væri nær að
ljúka hverju verkefni fyrir sig á
skömmum tíma, en vera ekki
með margt í takinu og allt gert í
smáskömmtum.“
Eg hef heyrt á það minnst
að bókasafnið sé komið með
myndbandaleigu?
„Það var ákveðið árið 1983 að
stofna myndbandaleigu innan
Friðriksdeildar, sem er tónlist-
ardeildin. Bæjarstjórn fannst
þetta prýðishugmynd, en það
skilaði sér ekki á næstn fjárveit-
ingu, því hún rétt dugði fyrir
tækjum til að hægt væri aðskoða
inyndljönd eftir leigu, svo þau
urðu að bíða næsta árs.“
Verður þetta venjuleg
myndbandaleiga?
„Ég býst við að þú meinir
hvort þarna verði sama efni og á
öðrum myndbandaleigum. Svo
er ekki. Ætlunin er að vera með
efni tengt tónlist, svo scm óper-
ur, balletta, konserta og fleira í
þeim dúr. Ennfremnr það cfiii,
sem á einhvern hátt tengist
Hafnaríirði, íslenskar myndirog
verðlaunamyndir. Við höfum
líka áhuga á að vera með efni
tengt vinabæjum okkar og er
það í athugun.“
Hvernig er með bók-
menntakynningar?
,JÚ, það hafa verið haldnar
tvær bókmenntakynningar, en
meiningin er að gera þetta að
föstum lið og fá lasta Ijárveit-
ingu fyrir honum, því allt kostar
peninga."
En þú minnist á heilbrigð-
ismálin, hvað viltu segja um
þau?
„Það sem mér finnst orðið ær-
ið aðkallandi í svo stóru bæjarfé-
lagi og Hafnarfirði, er að hér rísi
fullkomin heilsugæslustöð. Mér
finnst það vera lítilsvirðing við
bæjarbúa, hve þessi mál hafa
setið á hakanum. Hvað hefúr
gerst hér undanfarin ár í þessum
málum? Læknarnir hafa flutt
U|J]J um eina hæð á sparisjóðs-
húsinu og l'cngið aðeins rýmri
aðstöðu fyrir sig og sjúklinga
sína. Nú er hægt að koma mcð
smáskurði og fá saumað og
tekna sauma. Síðast en ekki síst,
með barnshafnadi konum. Þar
þurfa að vera röntgentæki,
þannig að ekki þyrfti að senda
sjúklinga út og suður í minni
háttar röntgenmvndatökur. Þar
þyrfti að vera augnlæknir,
tannlæknir og svo mætti lengi
telja. Þarna þyrfti sem sagt að
vera um samþjappaða þjón-
ustu að ræða á einum stað.
Eg hef heyrt að átt hafi að
bjóða byggingu heilsugæslu-
stöðvarinnar út sl. ár, en það var
ekki gert og á meðan er ekki
hægt að ljúka við Sólvangsálm-
una, því þar er opið á milli. Hér
er ekki eingöngu við bæjaryfir-
\öld að sakast, því ríkið á að
greiða 85% af kostnaðiuum.
Þannig þurfum við að sækja
undir fjármálastjórn Sjálfstæð-
isllokksins í báðum till'ellum og
þá er ekki von á góðu. Hefði ekki
verið þetta bræðralag á milli
meirihlutamanna hér í Hafnar-
firði og fjármálaráðherra, hefði
þá meirihlutinn gerst ákveðnari
og þrýst á ríkisvaldið til að fá
útboðsleyfi? Mér virðist því að
undirlægjuháttur við ríkis-
stjórnina ráði því að heilbrigðis-
mál okkar Hafnfirðinga sitji á
hakanum.“
Hvað um önnur mál, hvað
er þér efst í huga þar?
Mér er efst í huga, hvernig
staðið var að sölu Bæjarútgerð-
arinnar og hvernig meirihlutinn
hagaði sér þar eins og allir
muna. Málefni Tónlistarskól-
ans eru alltaf ofarlega í mínum
huga og ég sé ekki fram á, að úr
húsnæðismálum rætist á næst-
unni.“
Hvernig leggst þetta próf-
kjör í þig?
Vel. Við vonum bara að sem
llestir komi til að kjósa og hafi
þannig áhril' á hverjir veljist á
listann."
Gott bókasafn hefur mikið uppeldislegt gíldi.
það hefur verið steypt plata fyrir
nýja heilsugæslustöð á Sólvangi!
Sér eru hver stórvirkin. Hús-
næði það sem ungbarnaeftirlitið
hefur til umráða er t.d. engan
veginn boðlegt, hvorki starfs-
fólki, né þeim sem þangað
sækja, sökum þrengsla. Hús-
næðið á þriðju hæðinni er þegar
orðið of lítið og ef engin bót er
fvrirsjáanleg á næstunni, kemur
að því að hluti læknanna leitar
annað eftir húsnæði. Hefði þá
ekki verið bctra að taka tilboð-
inu frá Hraliiistu lyrir um 4 ár-
um, um að hluti læknanna
fengi aðstöðu þar í nýju álm-
unni. Það sem vantar tilfinnan-
lega hér er heilsugæslustöð, þar
scm læknar hcfðu alla þá að-
stöðu sem til þarl til að sinna
því, sem ætlast er til af heilsu-
gæslulæknum, t.d. að fylgjast
*
Askorun til greidenda skipagjalda
til Hafnarsjóðs Hafnarfjarðar
Hér með er skorað á þá, sem eigi hafa greitt gjaldfallin skipa-
gjöld ársins 1985 til Hafnarsjóðs Hafnarfjarðar, að gera l'ull
skil nú þegar.
Óskað verður nauðungaruppboðs á skipuin þeirra er eigi hafa
lokið greiðslu gjaldanna l'yrir 20. febrúar 1986, samkv. heim-
ild í lögum nr. 49/1951 um sölulögveða án undangengins
lögtaks, sbr. 24. gr. rgl. nr. 116, 4. mars 1975.
Hafnarfirði, 15. jan. 1986.
Innheimta Hafnarfjarðarhafnar.
m
laiffiriiiiiiEigs
Strandgotu 28 simi: 50759
Kaupfélagið
Garðabæ
Gardallol 16 Gardabæ Simi 42424
Matmra
= Fatnaöur
— Leikfoncj
- Gjafavara
Búsáhöíd
ALUAFILEIÐINNI
mmimL
VERSUJNARMIÐSTÖÐ HAFNARFIRDI