Alþýðublað Hafnarfjarðar - 25.01.1978, Page 1

Alþýðublað Hafnarfjarðar - 25.01.1978, Page 1
ALÞYÐUBLAÐ HATNARF3ARÐAR 25. JANÚAR 1978 1. TBL. Hefur þú hugsað um það? Veistu.aökostnaður við vigbunaðarkapphlaupið er jafnmikill og árstekjur 1800 (átj- án hundruð) milljóna manna i 36 fátækustu rikjum heims? Veistu.að á hverri mimitu er einni milljón dollara (214 milljón krónum) varið til vopnafram- leiðslu. Veistu.að samanlagður kostnaður við vopnaframleiðslu ársins 1976 er hærri en samanlögð út- gjöld allra þjóða heims á sviði heilbrigðis- og menntamála. A meðan þjást svo 1500 (fimmtán hundruð) milljónir manna vegna ófullnægjandi heilbrigðisþjónustu og 800 (átta hundruð) millj- ónir manna eru ólæsir og óskrifandi. Veistu, að i dag eru til i heiminum gjöreyðingarvopn að styrkleika 150 þúsund Hirosima- sprengja. Prófkjör órnar Prófkjör um skipan fjögurra efstu sætanna á lista Alþýðuflokksins við komandi bæjarstjórnar- kosningar fer fram um næstu helgi. Kosið verður í Alþýðuhúsinu við Strandgötu laugardaginn 28. janúar kl. 14 til 20 og sunnudaginn 29. janúar klukkan 14 til 22. Kosningarétt hafa allir Hafnfirðingar, sem eru 18 ára og eldri og eru ekki félagar í öðrum stjórnmála- flokkum né samtökum, sem bjóða fram til bæjar- stjórnar. Frambjóðendur bjóða sig fram í tiltekin sæti á listanum. Á kjörseðli sést hverjir bjóða sig fram í hvert sæti og merkir kjósandi með krossi við þá f rambjóðendur, sem hann velur. í hvert sæti má aðeins kjósa einn frambjóðanda og sama fram- bjóðanda má aðeins kjósa í eitt sæti. Kjósa verður minnst þrjá en mest fjóra frambjóðendur til þess að kjörseðíII sé gildur. Niðurstöður próf kjörsins eru bindandi um skipan sætis á framboðslista, ef frambjóðandi hlýtur 1/5 hluta þeirra atkvæða, sem f ramboðslisti Alþýðu- flokksins hlaut i síðustu bæjarstjórnarkosningum. Frambjóðendur í prófkjörinu eru Grétar Þorleifs- son, Arnarhrauni 13, Guðni Kristjánsson, Lauf- vangi 2, Guðríður Elíasdóttir, Miðvangi 33, Hörður Zóphaniasson, Tjarnarbraut 13, Jón Bergsson, Kelduhvammi 27 og Larus Guðjónsson, Breiðvangi 11. Grétar er í framboði í sæti 2,3 og 4, Guðni í sæti 1,2 og 3, Guðríður í sæti 2,3 og 4, Hörður í sæti 1 og 2, Jón í sæti 1,2 og 3, og Lárus í sæti 2 og 3. Verksmiðjan flutt? Allir Hafnfirðingar þekkja allt of vel þá megnu fýlu sem leggur frá verksmiöju Lýsi og Mjöl er bræösla stendur yfir.. Samkvæmt reglugerð um mengunarvarnir er krafist hreinsunartækja í verksmiöju sem Lýsi og Mjöl. Þessi tæki eru ekki fyrir hendi. Ýmsar tillögur hafa veriö fram færðar til lausnar vand- ans, m.a. frá stjörn Lýsi og Mjffl, en sú áætlun hljóöar upp á litlar 350 miUjónir. Þá samþykkti heilbrigðis- ráð á fundi nýlega að sá mögu- leiki yrði vandlega kannaður hvort ekki væri heppilegt aö flytja verksmiðjuna i útjaöur bæjarlandsins. Ekkert hefur þö endanlega verið ákveðið i þessum efnum og mun þvi „Lýsi og Mjöl fýl- an” kitla nef bæjarbúa enn um sinn. Prófkjörsseðill Alþýðuflokksins til bæjarkosninga í Hafnarfirði 1978 1 hvert sæti má aðeins kjósa einn frambjóðanda. Sama frambjóðanda má aðeins kjósa i eitt sæti með þvi að setja X framan við nafn hans. Kjósa verður minnst þrjá og mest fjóra frambjóðendur til þess að kjörseðill sé gildur. 1. sæti 2. sæti 3. sæti 4. sæti Grétar'Þorleifsson Grétar Þorleifsson Grétar Þorleifsson Guöni Kristjánsson Guðni Kristjánsson Guðni Kristjánsson --- Guðriður Elíasdóttir Guðriður Elíasdóttir Guðriður Elíasdóttir Hörður Zóphaniasson Hörður Zóphaniasson Jón Bergsson Jón Bergsson Jón Bergsson Lárus Guðjónsson Lárus Guðjónsson Alþýðuflokksfélagið Alþýöuflokksfélagið i Hafnarfirði hefur starfað með hefð- bundnum hætti. Unnið var mikið og gott undirbúnings- og skipu- lagsstarf i sambandi við profkjörin. Ungir jafnaðarmenn 1 herbúöum ungra jafnaðarmanna hefur mikiö og öflugt starf verið unnið. Hafa félagar verið virkir og áhugasamir og tekið mörg mál til umfjöllunar, svo sem stefnuskrá Alþýðuflokksins^ jafnaðarstefnuna, utanrikismál svo og ýmis þjóðmál. Héldu þeir ráöstefnu i Munaðarnesi snemma á síðasta starfsári um stefnu Alþýðuflokksins til ýmissa mála. Buðu ungir jafnaöarmenn Sighvati Björgvinssyni alþingismanni á ráöstefnuna sem hélt erindi um jafnaðarstefnuna fyrr og nú svo og stöðu hennar í nútimanum. Vmsum öörum gestum var boöið til ráðstefnunnar sem tóku virkan þátt i þróttmiklum umræöum. A þessu ári er ráðgert að halda aðra slika ráðstefnu um önnur málefni. A siðasta starfsári gerðu ungir jafnaðarmenn Itrekaðar tilraunir til að fá unga sjálfstæöismenn til kappræðufundar um almenn stjórnmál, en þeir þorðu ekki. Ráðgert er að gera enn eina til- raun til þess að fá þá til kappræðufundar ef þeir þá þora i ár. 1 desember siðastliðinn tóku 10 fulltrúar þátt i sambandsþingi ungra jafnaðarmanna. Fór þingið vel fram þrátt fyrir allharðar umræður sem þar áttu sér staö. 1 ljós kom á þinginu að ungir jafnaðarmenn hafa starfað mjög vel m.a. á sviði utanrikismála. A þinginu voru gerðar margar gagnmerkar samþykktir og hafa þær verið að birtast I Alþýðublaöinu nú i janúar. Kvenfélagið Kvenfélag Alþýðuflokks Hafnarfjarðar hefur starfað mjög vel á siðasta starfsári. Hefur félagið haldið fundi einu sinni i mánuði og hafa þeir verið vel sóttir. Margir nýir félagar hafa innritast og tekið virkan þátt i félagsstarfinu. Félagið hefur haldið uppi leshring i vetur og tekið jafnaðarstefnuna fyrir. Aætlað er að haida áfram með leshringina og taka fyrir önnur mál til meðferðar. Félagiðátti 40ára afmæli 18. nóv. siðastliðinn og var þá haldið myndarlegt hóf i þvi sambandi.

x

Alþýðublað Hafnarfjarðar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublað Hafnarfjarðar
https://timarit.is/publication/411

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.