Alþýðublað Hafnarfjarðar - 01.12.1981, Page 1
Bæjarfulltrúar Alþýduflokksins
flytja tillögu að stefnumótun í
heilsugæslumálum Hafnfirðinga
Bæjarstjórnarmeirihlutinn hefur flotiö sofandi
aö feigdarósi í þessum málum
Margir Hafnfirðingar hafa haft
miklar áhyggjur af heilsugæslu-
málum Hafnarfjarðar og því meiri
sem þeir hafa þekkt betur tii.
Lengi var talað um að byggja
upp myndarlega heilsugæslustöð á
Sólvangi og nefnd sett til að undir-
búa þá byggingu.
Snemma á þessu ári lágu fyrir
teikningar af stórri og mikilli
byggingu á Sólvangi sem átti að
þjóna Hafnarfirði sem heilsu-
gæslustöð.
Þessar teikningar voru þó fljót-
lega lagðar til hliðar af bæjaryfir-
völdum, þar sem sýnilegt þótti að
bæjarfélagið réði ekki við að fjár-
magna svo stóra byggingu. Að vísu
á ríkið að greiða 85% kostnaðar við
byggingu heilsugæslustöðva, eti
reynslan út um land allt sýnir að
seint gengur að fá hlut ríkisins
greiddan og mörg sveitarfélög
stynja undan skuldum og vaxta-
súpu, sem þau verða að standa
undir. þar sem ríkið hefur ekki
greitt sinn hlut.
Jafnframt því sem teikningarnar
voru lagðar til hliðar var upplýst að
Sparisjóður Hafnarfjarðar vildi
ekki leigja lengur það húsnæði,
sem heimilislæknaþjónustan hefur
haft lil umráða á Strandgötu
8—10. Það var því fyrirsjáanlegt að
heilsugæslan í Hafnarfirði yrði á
götunni á næsta ári, ef ekkert yrði
að gert.
Þá voru bæjarstjóri, bæjarverk-
fræðingur og heilbrigðisfulltrúi
settir til að athuga hvaða valkostir
væru fyrir hendi og skiluðu þeir
álitsgerð um það.
Kom þá helst til urnræðu að
kaupa húsnæði í Dverg við
Brekkugötu 2 og breyta því svo að
hægt yrði að nota það til bráða-
birgða fyrir heilsugæslustöð.
I júnímánuði var greinargerð
þeirra þremenninganna send til
heilbrigðisráðherra og hann beð-
inn um álit um þann valkost að
setja upp heilsugæslustöð í hús-
næðinu i Dverg og láta starfsmenn
sína meta það bæði hvernig hús-
næðið hentaði fyrir heilsugæslu-
stöð og hve mikill kostnaður fylgdi
þeim breytingum sem óhjákvæmi-
lega þyrfti að gera, ef þar ætti að
reka heilsugæslustöð.
Síðan hefur ekkert gerst, ekkert
heyrst frá heilbrigðisráðuneytinu,
ekkert heyrst frá bæjarstjórnar-
meirihluta Sjálfstæðisflokksins og
Félags óháðra borgara, ekki hósti
eða stuna.
Á sama tíma eru læknarnir hér í
bænum að vonum óánægðir með
gang þessara mála, óánægðir með
það algera stefnuleysi, sem ríkt
hefur í þessum málum um langan
tíma og má raunar segja, að ör-
yggisleysi heilsugæslunnar í Hafn-
arfirði hafi hvílt eins og þungt farg
á öllu starfsfólki hennar.
Það hefur verið sótt uni fjárveit-
ingar til alþingis til þess að leysa
þessi mál, en sóknin á þeim víg-
stöðvum hefur ekki verið beitt, þar
sem ekki liggur þar fyrir skýr og
afdráttarlaus stefna hvað gera
skuli. hvert skuli stefna.
Það var því ekki vonum fyrr, að
bæjarfulltrúar Alþýðuflókksins
fluttu á síðasta bæjarstjórnarfundi
langa og ítarléga tillögu um
heilsugæslumálin og gerðu þannig
tilraun til að hrista upp í þessum
málum og koma þeim á hreyfingu
á ný.
I þessum tillögum felst ákveðin
og greinargóð stefnumótun og vilji
til að takast á við þetta vandamál í
stað þess að stinga höfðinu í sand-
inn og sofa á verðinum.
Alþýðublað Hafnarfjarðar mun
gera seinna betri grein fyrir þessum
málum, en birtir hér tillögur bæj-
arfulltrúa Alþýðuflokksins, en til-
lögurnar skýra sig að mestu sjálfar.
Tillagan var svohljóðandi:
,,Með tilliti til þess hve knýjandi
nauðsyn ber til að ekki dragist
lengur að marka skýra og afdrátt-
arlausa stefnu í heilsugæslumálum
Hafnfirðinga, þá samþykkir Bæj-
arstjórn Hafnarfjarðar eftirfarandi 1. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar
atriði. sem verða þá um leið telur að hugmyndin um eina
stefnumótandi í þessum málum. Frh. á bls. 6
Alþýðuflokkurinn hefur tekið af sk'arið hvað varðar stefnumótun í heilsu-
gæslumálum.
Seinkun framkvæmda viö HaftiarQardar-
veginn hefur skapaö ýmis vandræði:
Aðstæður til aksturs eru erfiðar um þessar mundir á Hafnarfjarðarvegi
og það á versta tima ársins.
Svavar og Alþýðu-
bandalagsmenn ábvrgir
Bæjarbúar hafa velflestir
vafalaust orðið varir við þær
stórfelldu framkvæmdir sem
nú standa yfir við Hafnar-
fjarðarveginn. Hillir nú loks
undir það, að vegurinn milli
Hafnarfjarðar og Reykjavfkur
verði boðlegur ökumönnum.
Það er löng saga að baki
hinum nýja Hafnarfjarðarvegi
og alltof lengi hefur það dreg-
ist úr hömlu að fá hina nýju
vegalagningu í gang. Nú á
þessu ári lá fyrir fjárveiting
vegna veg agerðarinnar og allt
til reiðu. En fyrirstaða bæjar-
yfirvalda í Garðabæ tafði
framkvæmdir. En það voru
fleiri sem settust á fram-
kvæmdirnar.
Svavar Gestsson félags-
málaráðherra tók það upp hjá
sér um mitt sumar að stoppa
framkvæmdir og bar við
óskiljanlegum skýringum. Og
það var ekki fyrr en nú í vetur
að hann féll frá fyrri ákvörðun
og gaf grænt Ijós á áframhald-
andi framkvæmdir. En þessi
tregða Svavars hefur hins veg-
ar orðið til þess, að nú eru f
gangi miklar framkvæmdir við
veginn á versta tíma ársins,
þegar allra veðra er von og
dagsbirtan varir aðeins lítinn
hluta sólarhringsins.
Framkvæmdirnar hafa því
valdið ökumönnum miklum
vandræðum og orsakað slysa-
hættu — slysahættu sem hefði
verið hægt að komast hjá, ef
drifið hefði verið í fram-
kvæmdum i sumar, eins og til
stóð. Ekki má heldur gleyma
því, að allar framkvæmdir af
þessu tagi eru að sjálfsögðu
mun dýrari við þessar erfiðu
ástæður en ella.
Alþýðubandalagsmenn hér i
Hafnarfirði hafa verið fáorðir
um afskipti flokksbróður síns f
þessu máli og undrar engan.
En skyldleikinn er öllum Ijós
og Alþýðubandalagsmenn hér í
Hafnarfirði geta ekki varpað
frá sér ábyrgðinni á þessa
fáránlegu töf, sem á fram-
kvæmdum hefur orðið. Þeir
eru samábyrgir flokksbróður
sinum — Svavari ráðherra og
hefðu eflaust getað haft vit
fyrir honum nú í sumar, ef
áhugi hefði verið fyrir hendi í
þeirra herbúðum.
—GÁS