Muninn

Ukioqatigiit

Muninn - 01.02.1946, Qupperneq 1

Muninn - 01.02.1946, Qupperneq 1
Útgefandi: Málfundafclagið „HUGINV M. A. MUNINN Ritstjórn: Aðœlsteinn SigurSsson Kristján Róbertsson Ólaf ur llalldórsson 18. árgangur Akureyri, febrúar 1946 4. tölublað Árni Þorvaldsson Látinn er 10. þ. m. sá maður, er lengstan kennsluferil átti að baki allra þeirra, er verið hafa fastir kennarar í Möðruval laskóla, Gagnfræðaskólan- um á Akureyri ög Menntaskólanum.á Akureyri, talið ftá stofnun skólans 1880. Þessi maður var Arni Þorvalds- son. Hann var fæddur í Hvammi í Norð- urárdal 30. ágúst 1874. Voru foreldrar lians Þorvaldur prestur þar Stefánsson óg seinni kona lians Kristín Jónsdótt- ir prests á Breiðabólsstað í Vesturhópi Sigurðssonar students í Varmahlíð undir Eyjafjöllum Jónssonar. Móðir frú Kristínar og kona sr. Jóns var Ragnheiður Jónsdóttir stúdents í Víðidalstungu Friðrikssonar prests á Breiðabólsstað í Vesturhópi Þórarins- sonar. En móðir frú Ragnheiðar var Kristín Jónsdóttir prests á Gilsbakka Jónssonar. Kona sr. Friðriks var Hólm- fríður Jónsdóttir varalögmanns Ólafs- sonar. en móðir Hólmfríðar var Þor- björg Bjarnadóttir sýslumanns á Þing- eyrum Halldórssonar; móðir Þor- bjargar var Hólmfríður Pálsdóttir Vídalín lögmanns í Víðidalstungu. Var Árni því 7. maður frá þeirn fræga lögmanni. Þórarinn, faðir sr. Friðriks á Breiðabólsstað, er ættfaðir Thorar- ensen-ættarinnar, kvæntur Sigríði Stef- ánsdóttur prests á Höskuldsstöðum Ólafssonar. Bróðir hennar var Ólafur stiftamtmaður Stefánsson (Steplien- sen). Sr. Þorvaldur, faðir Árna, var sonur sr. Stefáns í Stafholti Þorvalds- sonar [pr. í Holti undir Eyjafjöllum og sálmaskálds Böðvarssonar] og konu hans Ingibjargar Jónsdóttur prófasts í Steinnesi Péturssonar. Var Halldór prófastur á Hofi í Vopnafirði bróðir frú Ingibjargar. En mæður þeirra V h jóna, sr. Stefáns og Ingibjargar, voru systur, dætur sr. Björns Jónssonar í Bólstaðarhlíð. Stóðu þannig að Árna stórir ættstofnar: Högnaættin (því að sr. Þorvaldur í Holti var Böðvarsson Högnasonar prestaföður Sigurðsson- ar), Stephensensættin, Thorarensens- ættin, Vídalínsættin, Ólafsætt frá Eyri í Seyðisfirði vestra (Jón varalögmaður sonur Öíafs á Eyri) og Bólstaðarhlíðar- ættin. í karllegg Árna eru níu prestar í röð, talið frá sr. Þorvaldi til sr. Ölafs sálmaskálds á Sauðanesi Guðmunds- sonar (að báðum meðtöldum), en sr. Ólafur var samtíðarmaður Guðbrands biskups. Árni Þorvaldsson ólst upp í Hvammi í Norðurárdal og í Fagradal innra við Gilsfjörð. Hann hóf snemma latínunám undir inntöku- próf í Lærðaskólann, tók próf í 2. b. 1892 og iauk stúdentsprófi 1896, sigldi til Khafnar þá um haustið og var innritaður í háskólann Jrar. Lagði stund á latínu um hríð, en valdi sér brátt ensku sem námsefni og Jjýzku og frönsku sem aukagreinar. Lauk hann embættisprófi í þessum greinum árið 1905, |)á þrítugur að aldri. Gegndi hann næstu fjögur ár stundakennslu í Rvík. þar á meðal í Menntaskólan- um. Mun hann vera fyrsti kandídat í enskri tungu, er kennt liefir í þeim skóla. Höfðu aðeins örfáir Islendingar á tindan honum lesið ensku við há- skóla og flestir Jreirra horfið þaðan, án Jiess að ljúka prófi. Kannaði Árni Jjví ókunna stigu íslendingum, er hann hóf enskunám við háskólann. Kennifaðir hans var inn frægi hljóð- fræðingur, Otto Jespersen prófessor, er setti nýtt snið á enskukennslu. Gerðist Árni því brautryðjandi, er hann með kennslusniði Jespersens hóf enskukennslu á Islandi haustið 1905. Flykktiist 'að honum nemendur í Rvík. Jjá þégary konur og karlar, ungir og gamlir. Hann þýddi á íslénzku enska málmyndalýsingti Jespersens og lagaði hana handa islenzkum nemendum (nteð Böðvari Kristjánssyni), og kom bókin út í Rvík haustið 1906. Hjaltalín skólastjóri gagnfræðaskól- ans norðlenzka kenndi þar ensku sína tíð, en liann andaðist haustið 1908. Enskur trúboði, búsettur hér í bæn- um, var fenginn til að kenna ensku í skólanum veturinn eftir, en 14. júlí 1909 var Árna Þorvaldssyni veitt 2. kennaraembættið hér við skólann, og tók hann við enskukennslunni haust- ið 1909. Gegndi liann þeim starfa samfleytt 30 ár, til haustsins 1939. En á annað ár Jjar á eftir fékk hann ann- an mann til að kenna fyrir sig, fyrir sakir vanheilsu. Lausn fékk hann frá embætti frá 1. febr. 1941. 1. kennari skólans varð hann haust- ið 1918, er Þorkell Þorkelsson, síðar

x

Muninn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.