Muninn - 01.04.1958, Blaðsíða 30
JÓHANN G. MÖLLER
Jóhann Georg Möller er fæddur í Reykjavík
23. apríl 1937. Foreldrar hans voru hjónin Edith
og Jóhann G. Möller forstjóri. Föður sinn missti
Jóhann árið 1955, og var það honum þungbær
raun. Móður sinni var hann einkar kær og
elskulegur sonur. í vor tók hann þá ákvörðun að
heitbinda sig ágætri stúlku, Guðnýju Einars-
dóttur, systur Harðar, bekkjarfélaga okkar.
Jóhanni kynntist ég, er ég kom sem nýliði í
fjórða bekk M. A. haustið 1954. Fyrstu samskipti
okkar Jóhanns voru þau, að hann að lokinni
fyrstu kennslustund spurði mig, hvort ég væri
búinn að fá mér bækur, og bauðst svo til að vera
mér hjálplegur við útvegun þeirra. Já, þetta
voru okkar fyrstu kynni, og eftir það tókst með
okkur vinátta. Oft var Jóhann mér hjálplegur
við námið, og mun ég sannarlega ekki hafa verið
sá eini, sem hann rétti hjálparhönd.
Jóhann hafði lagt gjörva hönd á margt bæði
til sjós og lands. Hann hafði ferðazt erlendis og
sagði okkur oft af ferðum sínum á þann fróðlega
og skemmtilega hátt, sem honum einum var
unnt. Hann var fróður vel, og um hann var sagt,
að hann væri eini humoristinn í deildinni.
Nám sitt rækti hann vel, eins og vitnisburðir
hans báru vott um, og skólanum var hann til
sóma. í félagsmálum var hann vel starfandi og
hlúði að samvinnu milli ncmcnda. í haust inn-
ritaðist hann í læknadeild Háskóla íslands, og
tók hann það nám strax traustum tökum. Hann
var stórhuga og bjartsýnn og tók þegar fyrir
fleiri greinar námsins en nýstúdentar almennt
gera.
Við bekkjarsystkini Jóhanns og aðrir skóla-
félagar söknum hans úr hópnum, söknum hans
glaðværu vinarhóta, öruggu þekkingar og stað-
föstu drenglundar.
Við öll flytjum aðstandendum hans okkar
hjartans samúð og biðjum Guð að blessa minn-
ingu hins kæra vinar og skólafélaga.
Bjöm Pétursson.
RAGNAR RAGNARS
Hvenær dauðinn kallar, veit enginn. Vopn
hans er biturt og veldur ávallt svöðusári. Stimd-
um ber sigð hans niður í hóp ellilúinna jarðar-
búa, öðru sinni lýstur hún syni og dætur æsk-
unnar. Þá er gráturinn sárastur og sorgin
þyngst.
Minningarnar þyrlast upp í hugum ættingja og
vina, og spurningin mikla: Hvers vegna? vakn-
ar á meðal vor. En svarið veit enginn. Lærdóm-
ur, vizka og vísindi þegja ráðvana. Slíkur er
fallvaltlciki lífsins.
Eagnar er látinn. Glaðværð hans, hlýtt hand-
tak og vinarþel mun ekki framar ylja okkur
vinum hans. Þeir, sem guðimir elska, deyja
ungir.
Ragnar heitinn var fæddur á Siglufirði 31.
marz 1937, sonur hjónanna frú Ágústu og Ólafs
Ragnars kaupmanns og útgerðarmanns þar. Var
Ragnar elztur fjögurra systkina. Hann hóf nám
í Menntaskólanum á Akureyri árið 1951 og sett-
ist þá í 1. bekk skólans ásamt þeim, sem þetta
ritar. Vegir okkar lágu því saman um 6 ára
skeið. í blíðviðri júnímánaðar stóðrnn við saman
hlið við hlið með snjóhvítar stúdentshúfurnar
sem tákn yfirstiginna örðugleika, glaðir í huga,
rneð fullt fangið af fyrirheitum og dagdraumum.
Ekkert land í heimi býr yfir bjartari júnímánuði
en ísland.
Sex ára samveru okkar Ragnars gleymi ég
aldrei. Glaðværð hans var viðbrugðið, og hver
sá, sem ekki hreifst af tilgerðarlausri og hjart-
næmri kátínu hans, hlaut að hafa einkennilega
skapgerð. Hann var traustur og góður vinur
þeirra, sem hann lagði lag sitt við, einlægur,
hjálpsamur og greiðvikinn við þá, sem til hans
leituðu.
Seinasta skólaárið í M. A. urðu samvistir okk-
ar Ragnars nánari og vinátta okkar innilegri.
Við ræddum oftar saman um áhugamál okkar,
lásum saman og tengdumst fastar þeim böndum,
sem vináttan ein og ómenguð bindur. Þótt leiðir
skilji að loknum burtfararprófum, rofna tengsli
skóla og bekkjarfélaga þó eigi með öllu þrátt
fyrir skóla- og námsefnaskipti. Menntaskólaárin
hafa ofið á milli okkar stcrkari þáttu en skiln-
aðurinn megnar að slíta.
Okkur er ennþá óskiljanlegt, að þú skulir vera
horfinn okkur, Raggi minn. Jafnvel á áþreifan-
legar staðreyndir slær blæ efasemda og fiu-ðu.
En við verðum, hversu sárt og ótrúlegt sem það
annars er, að trúa.
Bekkjarsystkini þín kveðja þig og félagana
þrjá með djúpum söknuði og trega. Samvistirn-
ar urðu ekki langar, en þeim mun minnisstæð-
ari og innilegri.
Vertu sæll, kæri, trausti vinur. Innilegustu
þakkir fyrir allar sameiginlegu gleðistundirnar.
Vertu sæll, og guð blessi þig.
Hörðxu- Einarsson.
70 M U N I N N