Muninn

Árgangur

Muninn - 01.12.1959, Blaðsíða 4

Muninn - 01.12.1959, Blaðsíða 4
Og þó er þetta ekki andstætt þekkingu vorri og lærdómi. Fjarri því. Það er aðeins rneira og meira — non contra, sed ultra. Og þannig nernum vér boðskap jólanna, sjáum dýrð þeirra og finnum heilagan og himneskan frið þeirra. Þá byggjum vér ekki lengur á því einu, sem vísindin vinna og iþekkingin fær oss í hendur. Þá þráum vér aðeins af öllu hjarta þann heim fegurð- ar og friðar, sem litla barnið í jötunni fæddist á þessa jörð til að boða og búa mönnunum. IÞá þyrsti oss ekki fyrst og fremst í meiri þekkingu og meiri vísdóm, heldur meiri kærleika og hreinleika og sannleika inn í líf vort og tilveru. Hann sjálfan, sem kom úr dýrð himnanna og með dýrð þeirra inn í þessa veröld Ijóss og skugga, gleði og sorgar, svo að vér mættum trúa á það góðra og heita því ævinlegri fylgd. Hann sjálfan, sem er ofar allri þekkingu og engir mannlegir vitsmunir komast að til að skýra né skilgreina. En þó á hverjum jólum aðeins lítið bam, liggjandi í jötu, hinn heilagi og blessaði Guðs sonur, fædd- ur á ný, til jress að vera fnelsari heims og þjóða, frelsari minn og þinn. Taktu á móti þessum gamla boðskap, í auðmýkt og af einlægu hjarta, sjálfur eins og barn. Og Jrú heldur áfram að eiga það, sem er dýrlegast af öllu dýrlegu, hafið yfir alla leyndardóma og alla þekkingu. Það eru í sannleika gleðileg jól. Og óskin um þau þér til handa fylgir þessum línum. GLEÐILEG JÓL! ALÞJOÐLEGT HJALPARMAL Árið 1859, nánar tiltekið 15. desember, fæddist í lítilli borg á Póllandi maður, sem hlaut nafnið Ludwig Zamenhof. Hann var af pólskum Gyðingaættum og ólst upp í umhverfi, þar sem hann heyrði sífellt í kringum sig fjögur tungumál. Engan þurfti jrví að furða á Jrví, að drengurinn fengi skjótt áhuga á að bæta sambúð iþjóðarbrotanna, sem var oft æði brösótt, einmitt með því að finna upp mál, sem þau gætu notað sín á milli. Hann fékkst því í tómstundum sínurn við að semja aljyjóðlegt mál, og þegar hann var á þrítugsaldri gaf hann út fyrstu kennslubókina í því. Dr. Zamenhof var hinn vitrasti maður og mál hans ber Jress 1 jósan vott, að hann helur borið frábært skynbragð á tungumál. Esperanto, en svo hefur málið verið nefnt, er einfaldasta og jafnframt myndríkasta tungumál, sem um getur. Mér finnst vel viðeigandi, að nú á hundr- að ára afmæli dr. Zamenhofs tökum við esperantó til athugunar og myndurn okkur skoðun um, hvort ekki væri hentugt að taka Jrað upp sem alþjóðamál. Það fyrsta, sem við tökum eftir, er, hve málið er reglulega byggt upp. Allar reglur í því eru án undantekningar. Framburður- inn er alveg reglulegur, því að sérhver hinna 28 bókstafa málsins er alltaf borinn fram á sinn sérstaka hátt. Föllin eru fjögur, en notkun þeirra er einföld. Sagnbeyging- arnar eru mjög einfaldar og hjálparsögn aðeins ein, esti, sem samsvarar að nokkru leyti vera í íslenzku. Öll nafnorð enda í nefnifalli eintölu á -o, en lýsingarorð á -a 02: sa°nir í nafnhætti á -i. í esperantó eru margfalt færri orðstofnar en í nokkru öðru máli. Ný orð má sífellt mynda með forskeytum og viðskeytum, sem hvert um sig breytir merkingunni æfcíð á sama veg, svo og venjulegum samsetningum orða. Dæmi: Juna = ungur, maljuna = 28 MUNINN

x

Muninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.