Muninn

Årgang

Muninn - 01.12.1959, Side 9

Muninn - 01.12.1959, Side 9
VEFARAVISA Ég byrjaði að vefa eitt vor fyrir mörgum árum. Vefurinn er mitt líf frá byrjun. Og þú varst ekki til. Ég vakti þig upp frá dauðum. Vefurinn: hvítur grunnur, en græn og blá glitofin spor á stöku stað til að gefa sterkari, fegurri blæ þessum hreina vef. Ó, svörtu rósir er sóttuð mig heim eitt kvöld og seigar rætur festuð í vefnum mínum, því spruttuð þið til að eitra hann einmitt þá? Ég þekki mig ekki einn í myrkri. Ég sef aldrei um nætur, en hrekk upp við drauminn sem ber mig langt inn í skóg af svörtum rósum og rauðum. Ó, ráð þú drauminn. Ég hata þann Svartaskóg. Ég ætlaði að skera á rætur rósanna svörtu, en rýtingur minn: það er viljinn, — beit ekki nóg. HJÖRTUR PALSSON. í FESTUM Fölbleik var hlíðin, hrím á stráum þann haustsvala morgun er þú komst og kvaddir með kossi. Bak við skynjun mína skaut skelfingin rótum. Þótti mér sem þá af þúsimd orðum ekkert mundi nægja. f gulum skrúða grét í fangi þínu gleðisnauð mær og hafði aðeins eitt eggbiturt vopn: sín augu unaðsblá. Ennþá ég man þú sagðir: Þó að fækki fundum um stund, ég veit þú gleymir engu af því sem okkur forðum fór á milli. Ég fékk þér gullinn lokk úr hári mínu. Ó, þú, sem dvelur bak við húmblá höf, hvar heitir vindar gnýja í þungum krónum. Snú skipi þínu heim í vor og vitja varanna rauðu er þorrann þreyja máttu í þögn og myrkri norræns vetrar, vit það var oft sárt. Þó bíð ég enn og bið byrinn að fylla seglin, svo að skríði skjótar að landi skipið sem ég þrái. HJÖRTUR PÁLSSON. M U N I N N 33

x

Muninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.