Muninn

Árgangur

Muninn - 01.12.1959, Síða 10

Muninn - 01.12.1959, Síða 10
ANNÁLL SKÓLANS Þáttur þessi kemur nú í fyrsta sinn fyrir sjónir lesenda „Munins“. Það mun fiafa verið skólameistari, sem átti hugmyndina að honum. Ýmsir hafa réttilega fundið að því, að í blaðinu hefur ekki birzt neinn sæmilega greinargóður annáll úr skólanum. Annálsritari hafði ekki hugmynd um þetta væntanlega starf sitt, «fyrr en með nokkurra daga fyrirvara, og láðist honum því að rita sér til minnis umtalsverða at- burði jafnóðum og þeir gerðust. Hann biður lesendur velvirðingar á því, sem gleymzt hefur að geta um, og einnig kunna sums staðar að vera kveðnir upp rangir dómar, þar eð höfundur ihefur stundum þurft að leita sér upplýsinga hjá öðrum. En skylt er, að hafa það heldur, sem sannara reynist, og hefur svo annál þennan. Starfið hafið. Fimmtndaginn 1. október kl. 2 e. h. var skólinn settur. Skólameistari gat m. a. um breytingar á kennaraliði skólans. Vernharð- ur iÞorsteinsson lézt hinn 19. júní s.l., og vísa ég til minningargreinar um hann í síð- asta tbl. Munins. Skarphéðinn Pálmason og Eyjólfur Kolbeins eru erlendis við nám. Hákon Loftsson gerðist aftur kennari við skólann, sömuleiðis Sigurður L. Pálsson. Nýir kennarar eru Guðmundur Vigfússon og Jón Margeirsson. Hafa þeir umsjón á karlavistum. Busar voru tolleraðir að vanda. Var töluvert líf í þeirri athöfn, og vörðust margir hraustlega. Meybusar réðust inn á karlavistir og sneru öllu við í híbýlum bekkjarbræðra sinna. Brugðust jaeir reiðir við og bjuggu meybusum kerlaug mikla, hvar í þeir síðan voru færðir og baðaðir al:l- rækilega. Atburður þessi gerðist hinn 10. október. Málfundir. Hinn 15. okt. s.l. var aðalfundur „Hug- ins“ haldinn á Sal. Var þar kjörin stjórn ,,Hugins“ og ritnefnd „Munins". Sjá emb- ættismannatal síðasta „Munins". Aðalfund- ur „Óðins“ var svo haldinn daginn eftir. Sjá embættismannatal. „Huginn" hélt fyrsta málfund þessa skólaárs. Umræðuefni var kosningaúrslitin. Frummælandi var Gunnar Sólnes. Fundur- inn var haldinn að kvöldi til. Var hann sæmilega sóttur og vel tekið til máls. Aðalfundur nemendasjóðs var ihaldinn fyrsta vetrardag, svo sem venja hefur verið. Skólameistari skýrði frá stofn- nn sjóðsins og fjárhag. í úthlutunarnefnd voru kosnir: Sveinn Jóhannsson, inspector soholae, Guðmundur Sigurðsson, Leó Krist- jánsson og Rögnvaldur Hannesson. Dansleikir. Fyrsta dansleikinn á vetrinum hélt V bekkur. Var það laugardaginn 15. október. Dansleikurinn var vel sóttur og hinn skemmtilegasti. Var og spiluð kynningar- vist, og mun það hafa fallið í góðan jarðveg. Laugardaginn 31. okt. héldu kvennavist- arbúar dansleik. Rasmínur sungu gaman- vísur um ýmsa kennara skólans, og svo var dansað. Var dansinn fremur vel sóttur og skemmtilegur. Landsprófsbekkur hélt dansleik hinn 14. nóv. s.l. Varþar samankominn mikill fjöldi nemenda úr Gagnfræðaskólanum. Mun dansleikur þessi síztur þeirra þriggja, sem hér eru taldir. 34 m u N I N N

x

Muninn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.