Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1924, Qupperneq 2

Heimilisblaðið - 01.12.1924, Qupperneq 2
122 HEIMILISBLAÐIÐ sé í up'phœbum! Avarp til hinna iingu! A Ð voru englarnir, sem lof- uðu Guð og sungu: »Dýrð sé Guði í upphœð- um /« En til hvers sungu englarnir þennan jólasöng fyrir hirðana í Betlehem?« Þeir sungu hann til þess að kenna börn- unum að syngja hann. En ekki öðrum? Jú, öllum ungum og gömlum. íJau börn eru nú orðin margar miljónir, sem lært hafa siðan að syngja þennan söng, eins og á að syngja hann. Vitið þið, börn og unglingar, hvernig þið eigið að syngja þennan söng, svo að hann sé rétt sunginn? Það er að skilja: svo að það verði Guði til lofs og dýrðar? Þá verðið þiö að syngja af öllu hjarta, en ekki eingöngu með vörunum. Nú ætla eg að minna sjálfan mig og ykkur á, áður en blessuð jólin byrja, fyrir hvað við eigum að lofa Guð og heiðra. Við syngjum í jólasálminum, sem öll börn hafa heyrt og mörg kunna: »Viö fögnura komu frelsarans Viö erum systkin oröin hans. Hallelújacc (Loflð Drottinn). Við erum systkin frelsarans, hann er bróðir okkar, Guð er faðir okkar vegna hans. Hugsið nú um þetta. Guð vildi vera faðir okkar allra. Almáttugur Guð, skapari him- ins og jarðar, vildi verða faðir okkar. Vegna þess sendi hann sinn elskaða son og lét hann fæðast af fátækri mey, til þess að hann skyldi verða frelsari okkar. Og frá hverju? Frá syndinni, því að með allri synd óvirðum við Guð. En Guð sendi son sinn til þess, að við gætum gefið Guði alla dýrðina, því að syndin kom inn í heiminn með því að Guði var ekki gefin dýrðin. Nú vill hann fá allan heiðurinn aftur hjá mönnunum, hjá hverju barni, hjá hverjum unglingi, með þvi að senda okkur sinn eingetinn son til að frelsa okkur frá syndinni. Ekki áttum við það skilið, ekki höfum við unnið til þess. Hann gaf okkur sinn eingetinn son. Jesús er gjöf frá Guði. Nú kallar hann til sín hvert fátækt barn og gengur því í föður stað. Hann lítur hvorki á fátækt né auðæfi né heiður og hylli mannanna. Hann boðar öll- um börnum og öllum mönnum, ungum og gömlum, ríkum og fátækum, háum og lág- um þetta sama: »Yður er i dag frelsari fæddurl« hið sama sem engillinn boðaði. Já, dýrð sé Guði í upphæðum!« En með þessum orðum óskum við þess einmitt, að Guði megi hlotnast allur heið- urinn. Reynum nú að syngja þennan söng, eins og við eigum að syngja hann. — Syngjum hann af öllu hjarta. Ef við gerum það, þá vaknar hjá okkur löngun til að heiðra Guð réttilega. Guð sendi okkur son sinn að gjjöf. »Svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf sinn eingetinn son«. Við heiðrum Guð þá bezt með því, að þiggja þessa miklu og óumræðilega dýr- mætu jólagjöf okkar himneska föður. En nú kunnið þið ef til vill að spyrja? Hvar er Jesús, svo að við getum tekið á móti honum? Munið þið ekki, hvernig hirðarnir í Betle- hem tóku á móti honum? Þeir fóru til Betlehem til að sjá það, sem gerst hafði, og engillinn hafði sagt þeim frá. Og þegar þeir voru búnir að finna barn- ið í jötunni, þá snéru þeir aftur og lofuðu

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.