Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1924, Blaðsíða 6

Heimilisblaðið - 01.12.1924, Blaðsíða 6
126 HEIMILISBLAÐIÐ arheimili vegna týnda sonarins? — Eg gat ekki komið mér að því að spyrja hvernig i öllu lægi. Þegar hún var búin að lesa bréfið, strauk hún það ástúðlega með hendinni um leið og hún lagði það á borðið tárfellandi. Við sátum hljóð litla stund. Þá rétti hún mér bréfið og brosti í gegnum tárin og sagði: «Lesið þér sjálfir bréfið. við leynum engu fyrir yður, þér hafið svo iðulega tekið þátt í sorg og gleði með okkur. Eg tók óðara bréfið og las, en komst brátt að því, að það voru ekkí sorgartár, sem húsfreyjan hafði felt, heldur feginstár, því að bréfið flutti gleðitíðindin þau, að góði hirðirinn hafði fundið týnda lambið. Nú skrifaði sonurinn: »Nú er eg sæll, þvi nú veit eg, nú hvílist sála min i þeirri trú, að Jesús er minn. Betri og dýrðlegri fregn geta trúaðir foreldrar eigi fengið frá barni sínu. Þau meta það meira, en þótt það hefði komist til æðstu metorða eða safnað ógna auði eða orðið heimsfrægt. Og til eru þeir biðjandi foreldrar, sem gefa vildu alt til þess, að geta fengið þá gleðifregn, sem var i þessu bréfi. Það voru engin undur, þó að fagnaðarrík þakkarbæn streymdi af vörum þessarar móður. En hvernig atvikaðist það, að góði hirð- irinn fann þennan týnda sauð? Skipið nam staðar i höfn nokkurri á ítaliu. Prestur nokkur ítalskur kom fram á skipið og bauð öllum skipverjum til guðs- þjónustu heima hjá sér. Prestur þessi var lútherskur. Hann talaði hlýlega við skips- menn, einkum við hinn unga vélstjóra. En fáir þágu boðið. En þessi ungi vélstjóri var einn af þeim, sem þágu boðið. Hann tók sér nú sæti i þessari útlendu kirkju. Nú átti hann að syngja sálma og hlusta á guðspjallið á útlendu máli. Þá runnu upp í huga hans allar kirkjustund- irnar, sem hann hafði átt heima i gömlu kirkjunni foreldranna sinna. Þar tók hann skirn, þar var hann fermdur, þar hafði hann setið hjá foreldrum sínum og systr- um í bernsku og æsku. Honum komu í hug húslestrarnir heima. Þá var sungið um myndasmiðinn mikla, sem bræðir og hreins- ar málminn í deiglunni sinni. Og nú mint- ist hann þess, þegar faðir hans hneigði höfuðið djúpt og þakkaði Guði fyrir hverja máltíð, morgun, kvölds og miðjan dag: »Gef oss i dag vort daglegt brauð«. Þá mintist hann þess líka, þegar vinir þeirra komu til vinaboðs á kvöldin og móðir hans tók á móti þeim með alúð og gleði og sálmabókin var tekin og sungið einum rómi: Hve sælt er scrhvert hús, þó sc það þröngt og smátt, ef hver af bjarta fús, þar heflr frið og sátt. Ei finnast þrengsli þar og þeim ei amar neitt, er alt til ununar hver öðrum getur veitt«. En nú hafði hann laumast burtu frá þessu öllu, sneitt sig meira og meira hjá þvi. Hann mundi eftir hverju svipbrigði í ásjónu ást- vinanna sinna heima. Þar lýsti sér sorg, al- vara og bæn. — Frá öllu þessu sagði hann i bréfinu og mörgu fleiru. Heima þreyttu foreldrar og systur við Guð í fyrirbæn fyrir honum, og á þeirri sömu stundu átti hann sér afturhvarfsstund í erlendri kirkju fyrir kraft bænarinnar heima. Gleymið þessu ekki biðjandi feður og mæður. Þið vitið ekki hvað gerist i fjarlægð, meðan þið eruð að biðja heima. Þá er ef til vill að birta í þeirri sál, sem þið eruð að biðja fyrir. Guð er alstaðar nálægur og »Hann vantar hvergi vegi, hann vantar aldrei mátt, hans bjargráð bregðast eigi til bóta á einhvern hátt«. »Þegar eg kom heim«, sagði hann síðast í bréfinu, »þá skal eg kannast við frelsara minn. Þá skal eg syngja honum Iof og þakkargerð með ykkur. Þá skal eg fara í kirkju með ykkur og lofa hann og vegsama þar, og hlusta á orð hans. Þá skal eg bjóða vini okkar jafnvelkomna og pabba og mömmu. Nú veit eg, hvað það er að vera

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.